Iverson sendur í bað 3. janúar 2007 14:08 Iverson var sendur í bað þegar rúm mínúta var eftir af leiknum í nótt NordicPhotos/GettyImages
Allen Iverson náði sér aldrei á strik í fyrsta leik sínum gegn sínum gömlu félögum í Philadelphia í nótt þegar Denver lá heima fyrir botnliðinu 108-97. Iverson skoraði 30 stig og gaf 9 stoðsendingar, en hitti illa, tapaði 7 boltum og var sendur í bað í lokin fyrir að brúka munn við dómara. Iverson lét hörð orð falla um forráðamenn Philadelphia fyrir leikinn og sagði dómarann hafa lagt sig í einelti í leiknum. Kyle Korver skoraði 26 stig fyrir Philadelphia og Andre Miller skoraði 17 stig og gaf 10 stoðsendingar á gamla heimavelli sínum. Leikurinn var sýndur á NBA TV í stað viðureignar Chicago og Phoenix, en þessu var breytt á síðustu stundu. Cleveland vann góðan sigur á San Antonio á heimavelli sínum 82-78. LeBron James skoraði 19 stig fyrir Cleveland en Tony Parker var með 26 fyrir San Antonio. Orlando lagði LA Clippers 91-86. Corey Magette skoraði 20 stig fyrir Clippers en Jameer Nelson skoraði 29 stig fyrir Orlando. Golden State vann útisigur á New Orleans 97-89. Matt Barnes og Baron Davis skoruðu 29 stig hvor fyrir Golden State en Rasual Butler skoraði 30 stig fyrir New Orleans. Phoenix notaði góðan endasprett til að leggja Chicago á útivelli 97-96. Amare Stoudemire skoraði 24 stig og hirti 18 fráköst fyrir Phoenix en Ben Gordon skoraði 41 stig fyrir Chicago. Dallas burstaði Seattle 112-88 þar sem Dirk Nowitzki skoraði 31 stig og hirti 15 fráköst fyrir Dallas en Ray Allen skoraði 27 stig fyrir Seattle. Loks vann Sacramento sigur á New York á heimavelli 112-100 þar sem Ron Artest skoraði 29 stig fyrir Sacramento en Jamal Crawford skoraði 28 fyrir New York.
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Sjá meira