Forstjórinn fékk væna launahækkun 13. júní 2007 01:00 Forstjóri stillir sér upp. Stuart Rose, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Marks & Spencer, fékk jafnvirði 990 milljóna króna í laun og aðrar greiðslur í fyrra. Markaðurinn/AFP
Stuart Rose, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Marks & Spencer, ætti að hafa tilefni til að brosa þessa dagana. Rose fékk 7,8 milljónir punda í laun og bónusgreiðslur í fyrra. Þetta jafngildir rúmum 990 milljónum íslenskra króna, sem er 68 prósenta launahækkun á milli ára. Um þriðjungur var beinar launagreiðslur í reiðufé. Þær námu 2,6 milljónum punda, jafnvirði 330 milljóna króna. Bónusgreiðslurnar eru hámark þess sem hann getur fengið samkvæmt ráðningarsamningi en þær hljóða upp á fjórföld laun. Rose, sem tók við forstjórastólnum árið 2004, er þakkaður góður árangur verslanakeðjunnar, sem tók skrefið upp á við sama ár og skilaði hagnaðaraukningu upp á tæp 29 prósent í fyrra. Þrátt fyrir vænt launaumslag á hann enn eitthvað inni því í ráðningarsamningi hans er kveðið á um að hann fái bónusgreiðslur upp á átta milljónir punda, rétt rúman einn milljarð króna, í reiðufé og hlutabréfum aukist hagnaður verslunarinnar um tíu prósent að lágmarki á ári.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Fleiri fréttir Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira