Milljarður í hagnað hjá HS 31. ágúst 2006 13:42 Hitaveita Suðurnesja.
Hitaveita Suðurnesja (HS) skilaði tæplega 1,1 milljarðs krónu hagnaði á fyrri helmingi ársins. Þetta er 357 milljónum krónum meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra þegar hann nam 709 milljónum króna. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að rekstrartekjur hafi numi tæpum 2,7 milljörðum króna en þær námu tæpum 2,3 milljörðum króna á sama tíma í fyrra. Hækkunin nemur 16 prósentum og stafar aðallega af aukningu í raforkusölu um 306 milljónir króna. Þá námu rekstrargjöld án afskrifta rúmum 1,2 milljónum króna sem er 18 milljónum króna hækkun á milli ára. Raforkukaup og raforkuflutningur hækka um 50 milljónir króna aðrir rekstrarliðir breytast óverulega, að því er segir í tilkynningunni. Hrein fjármagnsgjöld voru tæp 1,5 milljarðar króna á tímabilinu samanborið við 44 milljónir króna árið áður. Veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum leiðir til tæplega 1,6 milljarðs króna gengistaps en á fyrri hluta síðasta árs en þá nam gengistapið 42 milljónum krónum. Vaxtagjöld ríflega þrefaldast frá fyrra ári, einkum vegna fjármögnunar byggingar Reykjanesvirkjunar en þær námu 363 milljónum króna. Færður er til tekna í rekstrarreikningi hitaveitunnar tekjuskattur að fjárhæð rúmlega 1,5 milljarðar króna. Annars vegar er um að ræða tekjufærðan tekjuskatt að fjárhæð 99 milljónir króna vegna rekstrartaps á fyrri árshelmingi en hins vegar er tekjufærður rúmlega 1,4 milljarðar króna tekjuskattur vegna tímabundinna mismuna á bókfærðu verði einstakra eigna og skulda félagsins annars vegar og skattalegu verði þeirra hins vegar, að því er segir í tilkynningunni. Eignir voru bókfærðar á tæplega 29,4 milljarða krónur og hækkuðu þær um rúma 4,7 milljarða krónur frá ársbyrjun, aðallega vegna fjárfestinga félagsins í Reykjanesvirkjun, sem tekin var í notkun í maí. Skuldir hitaveitunnar nema 10,8 milljörðum króna samkvæmt efnahagsreikningi, þar af eru skammtímaskuldir rúmir 2,7 milljarðar króna og hafa þær hækkað um 5,4 milljarða krónur á milli ára. Hækkunin skýrist af lántökum félagsins vegna Reykjanesvirkjunar. Þá var eigið fé hitaveitunnar 14,4 milljarðar króna í lok júní. Brottför varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli í lok september mun hafa áhrif á starfsemi félagsins en Varnarliðið hefur verið stærsti einstaki kaupandi heits vatns og raforku af félaginu, að því er segir í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira