Illa gengur að stilla til friðar í Austur-Tímor 31. maí 2006 13:30 Xanana Gusmao, forseti Austur-Tímor. MYND/AP
Illa gengur að koma á friði í Austur Tímor eftir að forsætisráðherrann rak 600 hermenn sem höfðu hafið verkfall. Átökin hafa kostað alls 27 manns lífið. Um tvö þúsund hermenn frá Nýja-Sjálandi komu til Austur-Tímor í morgun til að reyna að stemma stigu við þeim átökum sem verið hafa í landinu undanfarið. Hernaðaryfirvöld í Ástralíu gera ráð fyrir að ástralskir friðargæsluliðar verði á Austur-Tímor í allt að sex mánuði. Átök brutust út í landinu eftir að Mari Alkatiri forsætisráðherra rak sex hundruð hermenn úr stjórnarhernum eftir að þeir kvörtuðu undan því að hermönnum úr vesturhluta landsins væri mismunað og ætluðu þeir því í verkfall. Xanana Gusmao, forseti Austur-Tímor, tók í gær yfirstjórn hersins í sínar hendur en yfirstjórn hans á lögum samkvæmt að vera í höndum forsætisráðherra. Þessu neitar forsætisráðherrann, varnar og öryggismál heyri enn undir ríkisstjórnina og að hann sé enn höfuð hennar. Utanríkisráðherra Austur-Tímor, hefur hins vegar staðfest að Gusmao fari alfarið með yfirstjórn hermála í samráði við ástralska friðargæluliðið í landinu. Verst er ástandið í höfuðborginni Dili, en þar hafa flokkar ribbalda gengið berserksgang og brennt hús fólks til grunna. Auk nýsjálensku hersveitanna sem komu til landsins í morgun eru þar fyrir hermenn frá Ástralíu og Malasíu.
Erlent Fréttir Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Sjá meira