Hvalveiðar eru eins og bílasala 6. nóvember 2006 07:15 Markaður fyrir hvalafurðir er mikið í umræðunni og sitt sýnist hverjum.
Ein virtasta fréttastofa Evrópu, DPA í Þýskalandi, hefur eftir Stefáni Ásmundssyni, skrifstofustjóra sjávarútvegsráðuneytisins, að Íslendingar gætu þurft að endurskoða afstöðu sína til atvinnuhvalveiða ef ekki verður hægt að selja kjötið á erlendum mörkuðum. Stefán segist ekki hafa átt við að stjórnvöld væru að meta hvort eigi að endurmeta leyfi til atvinnuhvalveiða vegna markaðsskorts. „Það sem ég var að segja var að þetta er atvinnustarfsemi eins og hver önnur og að það er atvinnurekandinn sem heldur utan um markaðsmálin. Auðvitað heldur hann ekki áfram ef hann hefur ekki markaði," segir Stefán. DPA hefur einnig eftir Stefáni í viðtalinu að hvalveiðar séu ekkert ólíkar bílasölu; ef framleiðandi hefur ekki kaupendur að bílunum þá hætti hann framleiðslu. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að stjórnvöld komi ekkert að því að taka ákvörðun um að stöðva veiðarnar á markaðsforsendum. Það verði sjálfhætt ef ekki er rekstrargrundvöllur. „Sá sem annast veiðina ber ábyrgð á sölu afurðanna eins og í öllum öðrum greinum sjávarútvegs. Það segir sig sjálft að ef hvalveiðar verða ekki arðbærar þá verða þær ekki stundaðar frekar en aðrar óarðbærar atvinnugreinar."
Innlent Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent