Stjórnarandstaðan setur fyrirvara við væntanlega endurskoðun Kjaradóms 27. desember 2005 21:29 MYND/Valgarður
Stjórnarandstaðan styður að hálfu leyti þá ákvörðun Halldórs Ásgrímssonar að skipa Kjaradómi að endurskoða ákvörðun sína varðandi laun þjóðkjörinna fulltrúa. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill aðkomu Alþingis að málinu og Ögmundur Jónasson vill einnig sjá endurskoðun á launum dómara. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, tilkynnti aðilum vinnumarkaðarins þá ákvörðun sína í dag að hann óskaði eftir því að Kjaradómur endurskoðaði launahækkun þingmanna og ráðherra. Hann sagði óeðlilegt að framkvæmdavaldið og löggjafarvaldið hefðu afskipti af kjörm dómara. Hann sagðist jafnframt ekki sjá ástæðu til að kalla saman þing. Stjórnarandstaðan styður ákvörðun forsætisráðherra en setur þó fyrirvara. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagðist ekki setja sig upp á móti þeirri leið sem forsætisráðherra kýs að fara og sagðist líta á þetta sem biðleik í stöðunni. Hún sagðist einnig gjarnan hafa viljað sjá aðkomu Alþingis að málinu þar sem Alþingi ber ábyrgð á lagasetningunni. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, hefði viljað víðtækari endurskoðun launa í stað þess að binda endurskoðunina eingöngu við þjóðkjörna fulltrúa. Hann segir einnig ákvörðun Kjaradóms um launahækkanir enduspegla launastefnu ríkisstjórnarinnar þar sem stöðugt sé leitast við að hífa upp laun þeirra hæst launuðu en aðrir fái minna.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Erlent Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ Innlent Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Innlent „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Innlent Árásarmannsins enn leitað Erlent Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Innlent Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Innlent Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Innlent Fleiri fréttir Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Mikill reykur vegna elds í bílatætara Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Ráðherra skoðar frekari girðingar á strandveiðar Rafmagnið komið í lag og verðbólgan eykst á ný „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Fá ekki áheyrn vegna stympinga kennara og nemanda Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sjá meira