Alfreð vill fyrsta sæti Framsóknar 1. júní 2005 00:01
Búist er við því að framsóknarmenn velji fulltrúa sína á R-listann með flokksvali á kjördæmisþingi flokksins eða í prófkjöri en fleiri munu hallast að fyrrnefnda kostinum. Ekki er annað vitað en að Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi muni gefa kost á sér til áframhaldandi starfa fyrir flokkinn en Alfreð Þorsteinsson sagði í samtali við Fréttablaðið að hann gæfi kost á sér til forystu fyrir flokkinn í Reykjavík. Hann sigraði Önnu naumlega í flokksvali fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar en búist er við því að þau muni bæði reyna ná efsta sætinu. Ef til flokksvals kemur hefur verið haft á orði að hafa svipaðan hátt á og hafður var þegar Framsóknarflokkurinn valdi fulltrúa sína fyrir síðustu alþingiskosningar í norðvesturkjördæmi. Þar var haldið svokallað tvöfalt kjördæmisþing. Þá velst sem fulltrúi á þingið einn fyrir hverja fimm félaga sem skráðir eru í hvert það félag sem starfandi er í kjördæminu. Þannig má segja að um einhvers konar útfærslu á prófkjöri sé að ræða en með þessu er markmiðið að reyna að koma í veg fyrir að fólki verði smalað í flokkinn og aðeins kjósi þeir sem stjórnir viðkomandi félaga hafi valið. Fulltrúar framsóknarmanna lögðu sjálfir fram tillögu um að hver hinna þriggja flokka fengi tvo fulltrúa í annað til sjöunda sæti listans en hinir yrðu valdir með öðrum hætti. Um slíkt mun verða nokkuð góð sátt innan raða framsóknarmanna og er ekki talið að þeir muni geta gert tilkall til borgarstjóraefnis listans. Viðræðunefnd R-listaflokkanna fundaði í fyrradag og var mest fjallað um málefnasamning milli flokkanna. Næsti fundur viðræðunefndarinnar verður haldinn á fimmtudaginn að viku liðinni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni og einn handtekinn Innlent Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár Erlent Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Erlent Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Innlent Getur frelsað El Salvador-fangann en vill það ekki Erlent „Ég skipaði þá aðila sem ég taldi hæfasta“ Innlent Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Erlent Hiti gæti náð fimmtán stigum Veður Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Innlent Fleiri fréttir Kalla saman ráðherranefnd svo rafmagnsleysi endurtaki sig ekki hér Birgir Guðjónsson er látinn Niðurstöðu um styrkjamálið megi vænta með vorinu „Þetta er mikill merkisdagur fyrir okkur“ Handtóku vopnaðan mann og kröfugöngur verkalýðsins „Ég skipaði þá aðila sem ég taldi hæfasta“ Hátíðardagskrá um allt land á verkalýðsdaginn Tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni og einn handtekinn Líkamsárás á veitingastað Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Mun sjá eftir árásinni alla ævi Segir lögreglumann sem njósnaði hafa gert mistök Frekari breytingar í Valhöll Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Lítur málið mjög alvarlegum augum Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Kristófer Breki nýr formaður Vöku Skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða tilbúin Gætu þurft að endurskoða aukastörf lögreglumanna Mjöll Snæsdóttir er látin Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Jafnréttisstofa krefur Ingu Sæland um útskýringu á vali á stjórnarmönnum „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Sjá meira