Ósanngjarn dómur 1. mars 2005 00:01
Leikur Selfoss og Stjörnunnar í 1. deildinni var vægt til orða tekið eftirminnilegur enda gaf Hlynur Leifsson dómari tvo "krossa" og eitt rautt spjald undir lok leiksins. Hlynur var þar með fyrsti dómarinn í háa herrans tíð sem beitir þessari hörðustu refsingu í handboltanum. Hlynur var harkalega gagnrýndur af Haraldi Þorvarðarsyni, leikmanni Selfoss, fyrir að gefa sér krossinn. "Vissulega hefði framkoma mín verðskuldað rautt spjald en ekki krossinn. Það var fáránlegt," sagði Haraldur í viðtali við Fréttablaðið um daginn en hann neitaði í sama viðtali að hafa slegið Vilhelm Sigurðsson, leikmann Stjörnunnar sem einnig fékk krossinn. Á myndbandsupptöku, sem íþróttadeild Fréttablaðsins hefur undir höndum, sést að Haraldur reynir að slá til Vilhelms eftir að Vilhelm ýtir knettinum í andlit hans. Högg Haraldar hittir aftur á móti ekki en hönd Haraldar virðist strjúkast við hönd Vilhelms. "Ég man lítið eftir þessu atviki enda gerðust hlutirnir fljótt. Ég fann samt ekki fyrir því að Haraldur hefði snert mig og hann sagði við mig að boltinn hefði ekki komið við sig," sagði Vilhelm við Fréttablaðið í gær en hann hefur ekki séð upptökuna. "Ég var mjög gáttaður þegar hann sýndi okkur krossana. Mér fannst þetta ekki sanngjarn dómur þar sem krossinn er fyrir líkamlegt ofbeldi. Þetta var ekkert ofbeldi og rautt spjald hefði meira að segja verið strangur dómur. Mér fannst þetta fyndið frekar en annað því ég trúði þessu ekki."
Íslenski handboltinn Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Grótta í sambandi við Davíð Smára Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ „Hans besti leikur“ 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Dagskráin: Doc Zone en fyrst stórleikur Chelsea og Man. Utd Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Sjá meira