Ummæli forsætisráðherra á CNN 7. júlí 2004 00:01
Ummæli Davíðs Oddssonar í Hvíta húsinu í gær um að framtíð allrar heimsbyggðarinnar væri bjartari vegna aðgerðanna í Írak hafa vakið athygli heimspressunnar. Þingmaður Vinstri-grænna efast þó um að forsætisráðherra hafi þar á réttu að standa. Helstu fregnir íslenskra fjölmiðla af fundi þeirra Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og George Bush Bandaríkjaforseta hafa snúist um framtíð varnarsamstarfs þjóðanna. Heimspressan virðist lítinn áhuga hafa á rekstri varnarstöðvarinnar í Keflavík eða stöðu atvinnumála á Suðurnesjum. Ummæli Davíðs um stríðið í Írak vöktu hins vegar athygli og meðal þeirra sem báru ummæli hans um heimsbyggðina var fréttastöðin CNN. Þar tók hann undir með Bush sem lagði áherslu á að umbreyting hefði orðið í Írak eftir innrás herliðs bandamanna. Davíð sagðist sammála Bush um Írak og að framtíð heimsins alls væri bjartari vegna aðgerðanna í landinu. Ástandið væri mun verra nú hefði ekki verið gripið til aðgerða; nú væri von þar sem enga von var áður að finna. Bush Bandaríkjaforseti þakkaði fyrir en aðrir undrast þessi orð forsætisráðherra Íslands. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, segir að sennilega hafi á annan tug þúsunda óbreyttra borgara fallið í Íraksstríðinu, fyrir utan alla þá særðu. Hún segir það ekki taka nokkru tali að halda því fram að innrásin hafi gert heiminn betri en hann var fyrir aðgerðina. Kolbrún vísar í erlenda fjölmiðla sem halda því fram að hryðjuverkaógnin í veröldinni hafi vaxið eftir innrásina í Írak, þrátt fyrir það sem Bandaríkjaforseti hefur kallað stríð á hendur hryðjuverkum. Hún segir ekki óeðlilegt að fólk hafi áhyggjur af því að ummæli forsætisráðherra beini athygli hryðjuverkamanna að Íslandi þegar jafn stór sjónvarpsstöð og CNN sjónvarpi þessu um allan heim.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Halldór Blöndal er látinn Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Innlent Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Innlent Fleiri fréttir Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Sjá meira