Viðskipti

Lilja Dögg ráðin for­stjóri

Lilja Dögg Stefánsdóttir tekur við starfi forstjóra Icepharma 1. nóvember næstkomandi. Hörður Þórhallsson, sem gegnt hefur forstjórastarfi bæði hjá Icepharma og móðurfélaginu Ósum, einbeitir sér framvegis að forstjórastarfi Ósa og þeim verkefnum sem fylgja vexti samstæðunnar.

Viðskipti innlent

Fækka heim­sóknum til muna með einni breytingu

Sýslumenn um land allt búast nú við færri heimsóknum eftir breytingu sem leiðir til þess að umsækjendur þurfa ekki að mæta til sýslumanns til að skila inn mynd. Nú er hægt að nota mynd úr vegabréfi í öllum stafrænum umsóknum.

Neytendur

Sam­fé­lags­legt mál að jafn­rétti sé virt

Góður rekstrarárangur einn og sér dugar ekki til að teljast framúrskarandi. Creditinfo hefur hert skilyrði vottunarinnar Framúrskarandi fyrirtæki og gerir nú kröfu um að fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutföll í stjórnum uppfylli þau. Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, og Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, fagna ákvörðuninni. Bæði leggja jafnframt áherslu á að fjölbreytni í stjórnum snúist um fleira en kyn.

Framúrskarandi fyrirtæki

Kostar allt að 580 þúsund

Nýr iPhone tæknirisans Apple kemur í almenna sölu hér á landi á föstudag. Ódýrasta útgáfa símans kostar 360 þúsund krónur og sú dýrasta 580 þúsund. Síminn seldist upp í forsölu.

Neytendur

Skoða að sam­eina Tesla og SpaceX

Elon Musk, auðugasti maður heims, segir til skoðunar að sameina tvö þekktustu fyrirtæki hans, bíla- og vélmennafyrirtækið Tesla og geimferða-, gervigreindar- og internetfyrirtækið SpaceX. Bæði fyrirtæki hafa stofnað sérstakar nefndir sem hafa það hlutverk að kanna hvað hægt væri að græða á slíkri sameiningu.

Viðskipti erlent

Eitt greiðir arð en annað með nei­kvætt eigið fé

Tekjur tveggja stærstu kvikmyndahúsafyrirtækja landsins drógust saman milli ára. Eigið fé félagsins sem rekur kvikmyndahús Sambíóa er orðið neikvætt en stjórn Smárabíós leggur til að eigendur félagsins fái allan hagnað síðasta árs greiddan í arð. Eigendur Laugarásbíós virðast vera að ná að snúa rekstrinum við. 

Viðskipti innlent

Willum í stjórn Litla spítalans

Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, stefnir samkvæmt heimildum Vísis í stjórn Litla spítalans, einkarekinnar heilbrigðisstofnunar sem til stendur að starfrækja við Háaleitisbraut. Núverandi forstjóri Sjúkratrygginga Íslands var skipaður í ráðherratíð Willums.

Viðskipti innlent

Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical

Embla Medical, móðurfélag Össurar, hagnaðist um þrjá milljarða króna á þriðja fjórðungi ársins. Það er aukning um nítján prósent, borið saman við sama tímabil í fyrra. Vöxturinn er að miklu leyti til kominn vegna mikillar sölu stoðtækja í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku, samkvæmt forstjóra Emblu.

Viðskipti innlent

Af­koman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus

Hækkun kílómetragjalds á flutningabíla mun skila sér beint út í verðlag hér á landi að sögn framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. Hann segir breytingarnar koma á óheppilegum tíma þegar heimsmarkaðsverð olíu sé í hæstu hæðum, gleymst hafi að líta til áhrifa hækkunarinnar á vöruflutninga. 

Viðskipti innlent

Fella niður 1,4 milljarða sekt Lands­virkjunar

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi 1,4 milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á Landsvirkjun vegna sölu á raforku til Landsnets. Landsvirkjun segir niðurstöðuna staðfesta að ekki hafi steinn staðið yfir steini í rannsókn Samkeppniseftirlitsins.

Viðskipti innlent

Play komið í eignasafn Icelandair

Tæplega helmingshlutur í maltneska félaginu Fly Play Europe Holdco ehf. er nú í eigu Icelandair. Félagið er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Markmiðið er að auka sveigjanleika félagsins og skapa möguleika á hagræðingu í flugrekstrinum á Íslandi. 

Viðskipti innlent

Klám­fengið spjall­menni Zucker­bergs vekur ugg innan klám­geirans

Áhrifavaldar sem framleiða klámfengið efni á áskriftarmiðlinum Only Fans eru afar ósáttir með nýtt gervigreindarspjallmenni fyrirtækisins Meta. Þeir gagnrýna að fyrirtækið takmarki aðgang notenda að þeirra efni á samfélagsmiðlum Meta en leyfi spjallmenninu að ræða á klámfenginn hátt við notendur. Meta sé að stela af þeim viðskiptavinum. 

Viðskipti erlent

Aug­lýsi sjúk­dóma til að komast fram hjá reglum

Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast hjá reglum um bann við því að auglýsa lyfseðilsskyld lyf. Hún segir Lyfjastofnun með málið til skoðunar og telur mikilvægt að lögum sé fylgt.

Neytendur

Í­huga að krefja Ölgerðina skýringa

Lífeyrissjóður verzlunarmanna íhugar að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á fyrirtækinu. Sjóðurinn er einn tíu lífeyrissjóða sem eiga samanlagt tæplega helming í móðurfélagi Ölgerðarinnar. Í hluthafastefnu sjóðsins er lögð áhersla á að fyrirtæki fari að samkeppnislögum.

Viðskipti innlent

Fljúga dag­lega til Boston

Bandaríska flugfélagið Delta tilkynnti í dag að það ætli að hefja áætlunarflug milli Boston Logan-flugvallar og Keflavíkurflugvallar í apríl á næsta ári. Flugið verður í boði fram í lok október. 

Viðskipti innlent

Ekkert fannst í búi Omnom

Ekkert fannst í búi fyrirtækisins sem áður rak sælgætisgerðina Omnom. Kröfur í búið námu um 166 milljónum króna. Góa keypti vörumerkið og allan tækjabúnað áður en félagið varð gjaldþrota.

Viðskipti innlent