Fótbolti

Risa sigur fyrir Leeds United

Leeds United vann afar mikilvægan sigur gegn Nottingham Forest í fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur á Elland Road urðu 3-1 Leeds United í vil.

Enski boltinn

Segir fótboltasérfræðinga bera á­byrgð

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, hefur varað við því að skoðanir sérfræðinga og viðbrögð á samfélagsmiðlum geti haft áhrif á andlega heilsu yngri leikmanna. Hann hefur miklu meiri áhyggjur af næstu kynslóð frekar en sinni kynslóð.

Enski boltinn

Sakar Arsenal um virðingar­leysi

Liam Rosenior, aðalþjálfari Chelsea, viðurkenndi að hann hefði misst stjórn á skapi sínu gagnvart leikmönnum Arsenal vegna þess sem hann telur vera virðingarleysi gagnvart liði sínu fyrir seinni undanúrslitaleikinn í Carabao-bikarnum á þriðjudag.

Enski boltinn

„Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“

Stuðningsmenn Al Nassr lýsa eftir Cristiano Ronaldo og einn frægasti fjölmiðlamaður Sádi-Arabíu gerði grín að honum. Ronaldo er í verkfalli vegna þess að hann er ósáttur með hvernig fjárfestingarsjóður Sádi-Arabíu stjórnar félaginu í sádi-arabísku úrvalsdeildinni.

Fótbolti

Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af á­settu ráði

Franski varnarmaðurinn Jérémy Jacquet verður ekki leikmaður Liverpool fyrr en í júlí. Liverpool og Rennes höfðu að sögn fjölmargar ástæður til að samþykkja sextíu milljóna punda samning en seinka komu hans um hálft ár. Sú helsta var vilji enska úrvalsdeildarliðsins til að forðast að brjóta fjármálareglur.

Enski boltinn

„Don Orri Steinn Óskars­son“

Orri Steinn Óskarsson tryggði í gær Real Sociedad sæti í undanúrslitum spænska konungsbikarsins þegar hann tryggði liðinu 3-2 útisigur á Alavés með marki tíu mínútum fyrir leikslok.

Fótbolti

Verk­falli Ronaldo lokið

Cristiano Ronaldo er mættur aftur til æfinga hjá Al-Nassr eftir að hafa ekki gefið kost á sér fyrir leik liðsins í Sádi-Arabíu í gær. 

Fótbolti