Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Stjórn Íslandsbanka hefur samþykkt nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Markmið breytinganna er að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir og þannig efla þjónustu bankans við viðskiptavini enn frekar. Með breytingunum verður stjórnendum fækkað um 15 prósent og forstöðumönnum um 20 prósent. Alls verður starfsmönnum fækkað um fimmtíu á árinu. Viðskipti innlent 28.4.2026 10:22
Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Sala á fyrsta ársfjórðungi Emblu Medical hf. árið 2026 nam 232 milljónum Bandaríkjadala eða 29 milljörðum íslenskra króna, sem samsvarar 15 prósenta heildarvexti og fjögurra prósenta innri vexti. Hagnaður félagsins á fyrsta ársfjórðungi nam tveimur milljörðum íslenskra króna og jókst um 21 prósent. Viðskipti innlent 28.4.2026 07:54
Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta ársreiknings Reykjavíkurborgar er jákvæð um átta milljarða króna en niðurstaðan af rekstri A-hluta var neikvæð um ríflega fimm milljarða. Helsta skýring neikvæðrar niðurstöðu er sögð mikil hækkun lífeyrisskuldbindinga auk þess sem mikil verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði leiddu til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna. Viðskipti innlent 27.4.2026 14:19
Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota SDG Design Studios, dótturfélag auglýsingastofunnar Pipar\TBW, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Það sem eftir var af starfseminni sameinaðist annarri starfsemi Pipar\TBWA í Noregi undir merkjum SDG. Viðskipti innlent 24.4.2026 15:25
Vara við svikaherferð í nafni bankans Arion banki hefur varað við óvenju umsvifamikilli svikaherferð sem nú stendur yfir þar sem óprúttnir aðilar senda skilaboð í nafni bankans. Viðskipti innlent 24.4.2026 14:57
Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Icelandair stofnaði fyrr á árinu nýtt dótturfélag, Icelandair Third Party Technical Services, í Vilníusi í Litáen, sem annast mun skipulag og eftirlit með viðhaldi flugvéla sem eru í langtímaleigu hjá erlendum viðskiptavinum Loftleiða, leiguflugsarms Icelandair. Dótturfélagið hefur meðal annars auglýst eftir sérfræðingum í viðhaldsstjórnun. Unnið er að endurskipulagningu deildarinnar sem sinnt hefur sömu verkefnum hér á landi en engum hefur verið sagt upp störfum. Viðskipti innlent 24.4.2026 11:59
Endurræsing hafin hjá Norðuráli Endurræsing er hafin hjá Norðuráli eftir að bilun síðasta október varð til þess að framleiðsla dróst saman um tvo þriðju. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa árs. Samkvæmt áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði. Viðskipti innlent 24.4.2026 09:47
B12 Space gjaldþrota Tískuvöruverslunin B12 Space hefur lokað dyrum sínum og hefur samnefnt einkahlutafélag verið tekið til gjaldþrotaskipta. Viðskipti innlent 23.4.2026 19:11
Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Fiskeldisfyrirtækið First Water hefur lokið um ellefu milljarða króna fjármögnun, en um er að ræða útgáfu um sex milljarða króna breytanlegs skuldabréfs sem leidd sé af núverandi hluthöfum félagsins og um fimm milljarða króna lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka. Viðskipti innlent 22.4.2026 14:35
Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu „Ég er enn að fá hingað fullt af fólki sem ætlar að fá sér ís,“ segir Teitur Árni Sigurðarson, nítján ára athafnamaður sem var að opna bílasölu á Seltjarnarnesinu þar sem ísbúðin Huppa var áður. Viðskipti innlent 22.4.2026 14:10
Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Birta Karen Tryggvadóttir hefur verið ráðin hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs. Viðskipti innlent 22.4.2026 08:40
Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Níu af hverjum tíu fasteignasölum telja að virkni á fasteignamarkaði sé lítil miðað við árstíma í byrjun apríl og er algengast að færri en fjórir skoði hverja eign í fyrstu viku sölutíma. Íbúðum til sölu heldur jafnframt áfram að fjölga en í byrjun apríl voru um 6.200 íbúðir til sölu á landinu öllu og hafði þeim þá fjölgað um tæplega 30 prósent á einu ári. Viðskipti innlent 22.4.2026 07:24
Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti í dag tillögu stjórnar um 165 milljóna bandaríkjadala arðgreiðslu í ríkissjóð, sem á núverandi gengi er um 20 milljarðar króna. Samanlagður arður vegna rekstraráranna 2021 til 2025 nemur um 110 milljörðum króna. Viðskipti innlent 21.4.2026 16:51
Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Prentsmiðjan Ísafold hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta og sautján starfsmenn missa vinnuna. Prentsmiðja Ísafoldar var elsta prentsmiðja landsins og jafnframt sú næststærsta en Ísafold sá hér áður fyrr um að prenta Fréttablaðið og prentaði 105 þúsund eintök 7 daga vikunnar þegar mest lét. Viðskipti innlent 21.4.2026 13:49
Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Kröfu fulltrúa Sporthallarinnar um að útboð Vestmannaeyjabæjar um líkamsræktarstöð yrði stöðvað tímabundið var hafnað vegna þess að bærinn samdi við World Class áður en kærunefnd komst að niðurstöðu. Nefndin hefur kæru vegna útboðsins enn til skoðunar. Viðskipti innlent 21.4.2026 13:16
Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Helga Kristín Biering Auðunsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Um er að ræða nýja stöðu. Viðskipti innlent 21.4.2026 12:53
Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Þjónustufyrirtækið Dagar hf. hefur ráðið til sín Magnús Jón Magnússon, viðskiptafræðing, sem nýjan fjármálastjóra. Hann tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins en alls starfa þar um sjö hundruð manns á þremur starfsstöðvum. Viðskipti innlent 21.4.2026 10:06
Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? 44 ára kona spyr: Sæll Björn. Ég er móðir ungra háskólanema. Getur þú reiknað fyrir þau hvað þau myndu spara á ári við það að kaupa ekki og reka ekki bíl? Jafnvel tekið dæmi um hve mörgum árum það gæti seinkað því að þau ættu fyrir útborgun í íbúð? Viðskipti innlent 21.4.2026 07:02
„Þetta er ekki græðgi“ Í sumar hefst gjaldskylda á bílastæðinu við Egilshöll í Grafarvogi. Forsvarsmaður segir breytinguna ekki til að græða, heldur til að auka þjónustu. Of margir skilji eftir bíla og ferðavagna á stæðinu í lengri tíma. Viðskipti innlent 20.4.2026 19:29
Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Lyfja hyggst festa kaup á rekstri Borgarapóteks í Borgartúni. Kaupin eru sögð gerð með fyrirvara um að Samkeppniseftirlitið leggi blessun sína yfir viðskiptin. Viðskipti innlent 20.4.2026 13:35
Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því að Ísland falli um eitt sæti landa í Evrópu með mestu landsframleiðsluna árið 2025 að teknu tilliti til kaupmáttajöfnuðar, úr sjöunda sæti í áttunda sæti árið 2030. Landið helst í fjórða sæti yfir lönd með mestu landsframleiðslu á mann að nafnvirði og er efst Norðurlanda á þann mælikvarða. Viðskipti innlent 20.4.2026 10:48
Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins María Kjartansdóttir hefur verið ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins. Viðskipti innlent 20.4.2026 09:03
Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans segir nýsköpunarfyrirtæki í alvarlegri stöðu eftir að hafa fengið synjun um endurgreiðslu á kostnaði sem fylgir rannsóknum og þróun. Hann kennir auknu skrifræði um og hvetur stjórnvöld til þess að einfalda fyrirkomulagið og standa við gefin fyrirheit um stuðning. Viðskipti innlent 18.4.2026 17:03
Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro zinks ehf. og Metals ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur. Viðskipti innlent 17.4.2026 15:54