Samgöngumál

Fréttamynd

Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður

Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis.

Innlent
Fréttamynd

Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta

„Ég er mjög ánægður og stoltur af samningsaðilum að hafa komist að þessari niðurstöðu,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, um samkomulag Flugvirkjafélags Íslands við Icelandair um að aflýsa verkfallsaðgerðum sem hófust í nótt. Til stóð að setja lög á verkfallið en hann segir þó ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta.

Innlent
Fréttamynd

Stóra sam­hengið sem gleymdist

Það skýtur skökku við að lesa umfjöllun Morgunblaðsins og Viðskiptablaðsins að undanförnu um meintan niðurskurð í samgöngumálum.

Skoðun
Fréttamynd

„Gengið með eins eðli­legum hætti og hægt er“

Allt hefur gengið sinn vanagang á Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir að 26 flugferðum Icelandair hafi verið aflýst vegna verkfalls flugvirkja segir upplýsingafulltrúi Isavia. Hann biðlar til fólks að mæta ekki á Keflavíkurflugvöll ef flugi þess er aflýst. 

Innlent
Fréttamynd

Verk­fallið skaði orð­spor Ís­lands

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir boðað verkfall flugvirkja ekki einungis hafa tímabundin áhrif á rekstur Icelandair og ferðaþjónustu landsins heldur gæti það haft töluverð áhrif á orðspor bæði fyrirtækisins og Íslands. Hann á von á því að stjórnvöld grípi í taumana ef kemur til verkfalls.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Litlu nær um peningana í Fljótagöng

Enn vantar skýr svör um framlag ríkisins til Fljótaganga að mati Stefáns Vagns Stefánssonar þingmanns. Hann spurði um fjárveitingu til ganganna en innviðaráðherra vísaði til heimildar til að leggja fé eða eignir í innviðafélagið, án þess að nefna fjárhæð.

Innlent
Fréttamynd

Tengir stór­fram­kvæmdir við fram­tíð lýð­ræðisins

Stofnun innviðafélagsins Ganga og brúar er líka pólitískt verkefni um að sýna að lýðræðislega kjörnar ríkisstjórnir geti komið stórum hlutum í verk, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Hún segir stóra erlenda fjárfesta sýna félaginu áhuga og að með því skapist fjárhagslegur rammi fyrir Sundabraut og fleiri stór samgönguverkefni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sunda­braut verði eitt það fyrsta á dag­skrá

Samgönguráðherra segir að Sundabraut verði eitt af fyrstu verkefnum nýs innviðafélags sem ber heitið Göng og brú. Hún muni gjörbylta samgöngum og draga úr akstri á höfuðborgarsvæðinu um hundrað og fimmtíu þúsund kílómetra á dag.

Innlent
Fréttamynd

Sunn­lendingar buðu best í breikkun á Kjalar­nesi

Verktakarnir Suðurverk og Fossvélar áttu lægsta boð í breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga. Sameiginlegt tilboð þeirra hljóðar upp á nærri 4,7 milljarða króna. Það er hálfum milljarði króna undir kostnaðaráætlun, eða 90,4 prósent af áætluðum verkakakostnaði, sem er tæplega 5,2 milljarðar króna.

Innlent
Fréttamynd

Höfnuðu ráð­gjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í for­gangi

Vestfirskir sveitarstjórnarmenn höfnuðu í september í fyrra tillögu ráðgjafarfyrirtækis sem setti jarðgöng undir Klettsháls efst á forgangslista yfir næstu göng í fjórðungnum. Þess í stað ákvað Fjórðungsþing Vestfirðinga að setja ekki fram neina forgangsröðun með þeim rökum að slík forgangsröðun myndi ekki hljóta samstöðu sveitarstjórna á Vestfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Bensín­lítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðslu­minni bíla

Ökumenn eyðsluminni bíla greiða um 452 krónur fyrir bensínlítrann og 486 krónur fyrir dísillítrann á næsta ári að teknu tilliti til kílómetragjalds miðað við útreikninga stéttarfélagsins Visku. Félagið krefst þess að hækkun krónutölugjalda og kílómetragjalds verði takmörkuð við tvö og hálft prósent. 

Neytendur
Fréttamynd

Ingólfur leysir Baldur af

Ferjan Baldur fer í slipp í Hafnarfirði þann 6. október og verður farþegabátnum Ingólfi siglt í stað Baldurs. 

Innlent
Fréttamynd

Telur yfir milljarð á dag í húfi

Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þriðjungur borgar­búa vill skipta um ferða­máta

Þriðjungur Reykvíkinga sem aka til vinnu vill skipta um ferðamáta og til að mynda nýta sér almenningssamgöngur og hjólreiðar samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknarverkefni Reykjavíkurborgar. Að auki kemur þar fram að yfir 90 prósent svarenda flokki reglulega úrgang en flokkunarvenjur ráðist fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár

Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg segir ekki hagkvæmt að gera gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar fullmislæg nú. Vegagerðin telur ljósastýrðu lausnina geta annað umferð vel í tuttugu ár eftir opnun, þótt bílferðum á höfuðborgarsvæðinu sé spáð að fjölga verulega.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum að gera stóra hluti í sam­göngum“

Hærri fjárhæðir eru ætlaðar til vegakerfisins og vetrarþjónustu í samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar en í tillögu fyrri ríkisstjórnar. Núverandi ríkisstjórn stefnir jafnframt að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027 og undirbúa fleiri jarðgöng.

Innlent
Fréttamynd

Skera rúma fjóra milljarða af vega­gerð

Ráðamenn Vegagerðarinnar og Betri samgangna lesa stórfelldan niðurskurð til framkvæmda í vegagerð út úr nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, niðurskurð upp á samtals 4,4 milljarða króna. Hjá Vegagerðinni er boðaður 2,4 milljarða króna niðurskurður. Hjá Betri samgöngum, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er boðaður tveggja milljarða króna niðurskurður, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Rukka meira fyrir aksturinn og sér­stak­lega fyrir veginn

Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri upp­sagnir og ó­vissa um Borgar­línuna

Frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar eru fram undan hjá Reykjavíkurborg. Sjóðir eru tómir og því gæti komið til frekari gjaldskrárhækkana. Framtíð samgöngusáttmálans veltur á því að ríkið standi við gefin loforð og óvissa ríkir um Borgarlínuna.

Innlent
Fréttamynd

Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg

Framkvæmdir við Borgarlínu eru hafnar við Nauthólsveg og HR. Þar er um að ræða hluta af fyrstu lotu Borgarlínunnar sem felur í sér breytingar á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs. Einnig stendur til að breyta gatnamótum og götutengingum en verkinu á að ljúka í júlí 2028.

Innlent
Fréttamynd

Norð­austur­land fær loks langþráðan veg

Íbúar Norðausturlands sjá fram á þáttaskil í samgöngumálum með nýjum uppbyggðum vegi yfir Brekknaheiði. Með vegagerðinni þvert yfir Langanes, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar, fæst samfellt slitlag um Norðurausturveg sem skapar áhugaverðari valkost í ferðalögum um norðausturhorn landsins.

Innlent
Fréttamynd

Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skóla­árinu?

Nú þegar líða fer á seinni hluta ágústmánaðar kemst lífið í fastari skorður og rútínan tekur aftur við. Fólk kemur úr sumarfríi og næsti frídagur verður ekki fyrr en í desember, skólastarf hefst og kyrrseta í umferðinni tekur við, og manni finnst umferðin aukast með hverju árinu sem líður.

Skoðun
Fréttamynd

Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar

Mest nýtta leið Strætó á höfuðborgarsvæðinu er leið 1 en nú hefur þremur aukavögnum verið bætt við hana alla virka morgna og er það gert til þess að auka þjónustu í takt við þyngri umferð í upphafi hausts. Leið eitt liggur frá Skarðshlíð í Hafnarfirði, í gegnum Vellina, norður í gegnum Garðabæ og Kópavog og þaðan áleiðis niður í miðbæ Reykjavíkur með lokastoppistöð við Skúlagötu.

Neytendur