Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Hezbollah mót­mælir við­ræðum og Íranir krefjast skaða­bóta

Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael.

Erlent
Fréttamynd

Öllum írönskum skipum út­rýmt nálgist þau her­kví

Boðuð herkví Bandaríkjaforseta á ströndum Írans tók gildi nú síðdegis og samkvæmt forsetanum hafa skip þegar fengið að sigla um Hormússund. Hann hótar því að öllum írönskum skipum sem nálgist skip bandaríska sjóhersins verði útrýmt.

Erlent
Fréttamynd

Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump

Leó fjórtándi páfi segist ekki óttast ríkisstjórn Donalds Trump eftir að bandaríski forsetinn hellti úr skálum reiði sinnar yfir hann á samfélagsmiði í nótt. Hann ætli að halda áfram að tala máli friðar.

Erlent
Fréttamynd

Trump hjólar í páfa

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn gegn Leó páfa á samfélagsmiðlum í nótt og í samtali við fréttamenn. Hann sagðist ekki aðdáandi páfa, sakaði hann um að ganga erinda vinstri manna og sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn.

Erlent
Fréttamynd

Olíu­verð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps

Alþjóðlegt olíuverð hefur hækkað um 7 prósent frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist myndu láta loka fyrir umferð um Hormússund við Persaflóa. Blátt bann á að taka gildi klukkan 15 á morgun, mánudag, en óskýrt er hvort skipum sem tengjast ekki Íran verði hleypt í gegn þar sem misræmis gætir í málflutningi Trump og hersins í þeim efnum.

Erlent
Fréttamynd

Friðar­við­ræður runnu út í sandinn

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur yfirgefið Islamabad, höfuðborg Pakistan, eftir að friðarviðræðum við Íran lauk án samkomulags. Hann sagðist hafa lagt fram „besta og endanlegasta tilboð“ sem hann væri fær um fyrir hönd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Aug­liti til aug­litis í fyrsta sinn frá ís­lömsku byltingunni

J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979.

Erlent
Fréttamynd

Hótaði Rutte hefndarað­gerðum í reiði­lestri í Hvíta húsinu

Fundur Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í vikunni er sagður hafa einkennst af fúkyrðaflaumi forsetans. Hann á að hafa hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum vegna þess að þau hafa ekki viljað taka þátt í aðgerðum Bandaríkjamanna í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Fundaði með Trump eftir harða gagn­rýni á NATO

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sótti fund með Bandaríkjaforseta til að tala gegn því að Bandaríkin gangi úr bandalaginu. Forsetinn hefur gagnrýnt bandalagið ítrekað, sem hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni, og íhugar að ganga úr því.

Erlent
Fréttamynd

Gerir ráð fyrir á­fram­haldandi hækkun bensínverðs

Hagfræðingur hjá ASÍ segir enn margt óljóst hvað varðar lokun Hormússunds og áhrifum þess á bensínverð. Sé lokun aðeins tímabundin geti það leitt til lægra bensínverðs en haldi vopnahléið ekki og lokunin haldi áfram megi búast við áframhaldandi hækkunum á bensínverði.

Innlent
Fréttamynd

Líbanon verið hluti af sam­komu­laginu og Trump þurfi að velja

Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. 

Erlent
Fréttamynd

Íran og Hormuz-sund

Bandaríkin og Íran hafa náð samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé og samningaviðræðum um varanlegan frið sem hefjast á föstudag n.k. í Pakistan.

Skoðun
Fréttamynd

Hormússund sagt lokað á ný

Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkja­for­seti gangi fram líkt og götu­strákur

Samkomulag um tveggja vikna vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran markar á engan hátt lausn á átökunum í Miðausturlöndum segir prófessor í sagnfræði. Það sé áhyggjuefni að Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur og beiti alvarlegum hótunum í því skyni að fá andstæðinga til þess að beygja sig undir sitt vald.

Innlent
Fréttamynd

Al­menn á­nægja með vopna­hléið og vonir um enda­lok á­taka

Leiðtogar víða um heim hafa lýst ánægju sinni með hið tveggja vikna vopnahlé sem komið er á milli Bandaríkjanna og Ísrael annars vegar og Íran hins vegar. Stjórnvöld í Kína sögðust í morgun myndu halda áfram að greiða fyrir viðræðum til að koma á friði og þá sögðust ráðamenn í Japan hafa væntingar um að vopnahléið myndi leiða til varanlegrar lausnar.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkin og Íran komist að sam­komu­lagi um vopna­hlé

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa fallist á tillögu um tveggja vikna vopnahlé í Íran með því skilyrði að stjórnvöld séu reiðubúin að hleypa skipum óáreittum í gegnum Hormússund á ný. Stjórnvöld í Íran segjast hafa samþykkt miðlunartillögu Pakistans.

Erlent
Fréttamynd

Gefur ekki mikið fyrir yfir­lýsingar Trump um út­rýmingu Íran

Albert Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum og fyrrverandi sendiherra, segir erfitt að rýna í nýjustu yfirlýsingar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann hafi á sínum forsetaferli gefið út ýmsar yfirlýsingar sem hann svo stendur ekki við. Það verði að gefa sér að það sama gildi nú.

Innlent
Fréttamynd

Hegðun Trumps von­brigði

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, telur að kjósendur Donalds Trump Bandaríkjaforseta hafi orðið fyrir vonbrigðum vegna stríðsreksturs stjórnvalda í Íran. Hann segir málflutning forsetans óboðlegan.

Innlent
Fréttamynd

Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag

Ísraelsher hefur varað Írani við því að nota lestarkerfi landsins í dag og fram til klukkan 21 í kvöld. Viðvörunin var gefin út á samfélagsmiðlinum X, þar sem sagði að íbúar væru vinsamlegast beðnir um að ferðast ekki með lestum í dag eða vera nálægt lestarleiðum, þar sem það myndi setja líf þeirra í hættu.

Erlent
Fréttamynd

Íranska þjóðin fagni sprengju­regni

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði írönsku þjóðina vilja heyra í sprengjuregni vegna þess að hún vill vera frjáls. Þungar loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels séu Írönum til gagns.

Erlent