Sveitarstjórnarkosningar 2026
1 2 3 4 5 6 7 … 13 ›
Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Kjartan Magnússon, fráfarandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að andstæðingum borgarlínunnar í borgarstjórnarflokknum hafi verið bolað af lista fyrir komandi kosningar, eða færðir lengst niður. Þau Marta Guðjónsdóttir bókuðu á borgarstjórnarfundi á dögunum að réttast væri að hætta við verkefnið eins og það leggur sig. Innlent 5.3.2026 12:22
Ekki í fyrsta skipti sem oddvitarnir kljást um bílastæðamál Komandi sveitarstjórnarkosningar eru ekki þær fyrstu þar sem Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, koma til með að takast á um bílastæði. Báðar sinntu þær formannsstörfum í stúdentapólitíkinni. Innlent 5.3.2026 07:35
Leikskólastjóri og fyrrverandi fótboltamaður fram fyrir Miðflokkinn Kjördæmastjórn Miðflokksins í Kópavogi hefur staðfest hvaða frambjóðendur verða í efstu fimm sætunum á lista flokksins í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Greint var frá því í síðustu viku að Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður flokksins, yrði oddviti í bæjarfélaginu. Innlent 4.3.2026 17:45
Brynjar ráðinn korter í kosningar Brynjar Níelsson, sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum hefur óvænt verið ráðinn starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ráðningin er gerð tíu vikum fyrir kosningar í borginni þar sem telja má fullvíst að Brynjar nái kjöri sem borgarfulltrúi. Innlent 4.3.2026 13:49
Þau skipa D-listann í Hveragerði Ingimar Guðmundsson, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, leiðir lista D-listans í Hveragerði. Töluverð endurnýjun er á listanum. Innlent 4.3.2026 13:37
Rósa í heiðurssæti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði hefur birt framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Rósa Guðbjartsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, er í heiðurssæti listans. Innlent 4.3.2026 13:20
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. Innlent 4.3.2026 08:30
Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Karólína Helga Símonardóttir, framkvæmdastjóri og varaþingmaður, mun leiða lista Viðreisnar í Hafnarfirði. Frá þessu var greint á félagsfundi flokksins í kvöld. Innlent 3.3.2026 22:13
Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson, 35 ára gamall lögmaður, mun leiða lista Miðflokksins í Hafnarfirði. Það var niðurstaða uppstillingarnefndar Miðflokksins. Innlent 3.3.2026 18:36
Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi segist styðja lista Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi af heilum hug og hann lofar því að hann muni ekki flytja aftur til Vestmannaeyja en orðrómur um að hann blandist í bæjarmálapólitíkina þar hefur lifað góðu lífi. Innlent 3.3.2026 16:30
Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Um helgina var framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kynntur með pompi og prakt í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Á fjórða hundrað manns voru meðal gesta og fjölmörg þekkt andlit úr pólitíkinni. Lífið 3.3.2026 15:02
Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Fulltrúaráð Sjálfstæðifélaganna á Seltjarnarnesi samþykkti á dögunum einróma framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnakosningar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri skipar áfram efsta sæti listans. Innlent 3.3.2026 11:36
Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Framboðslisti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi flokksins í kvöld 2. mars. Jafnaðarmenn í Ísafjarðarbæ eru mættir til leiks að því er segir í tilkynningu. Innlent 3.3.2026 08:13
D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Sjálfstæðisfélagið Ægir í Ölfusi hefur kynnt D-listann í Ölfusi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Athygli vekur að efstu sex sætin eru skipuð sömu frambjóðendum og fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 en eina breytingin er sú að Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi og Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar, býtta á sætum. Innlent 2.3.2026 23:02
Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Viðreisn hefur samþykkt lista sinn í Ísafjarðarbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu. Innlent 2.3.2026 21:58
Nýtt framboð í Bolungarvík Nýtt framboð hefur verið boðað til sveitarstjórnar í Bolungarvík. Framboðið nefnist Betri Bolungarvík og hefur stofnfundur verið boðaður á bæjarkránni Verbúðinni næstkomandi fimmtudagskvöld. Innlent 2.3.2026 13:13
Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Framboðslisti Framsóknar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík var samþykktur í dag á tvöföldu kjördæmaþingi í Víkingsheimilinu í Safamýri. Innlent 28.2.2026 17:17
Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Hildur Björnsdóttir, Bjarni Eggerts Guðjónsson, Brynjar Þór Níelsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason verða í efstu fimm sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Listinn var kynntur í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll nú fyrir stundu. Innlent 28.2.2026 16:51
Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík kynnir framboðslista sinn fyrir komandi borgarstjórnarkosningar klukkan 16:30 í dag. Listinn verður kynntur í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll, að loknum fundi fulltrúaráðs sem hófst klukkan 15:00, þar sem tillaga kjörnefndar að framboðslista verður afgreiddur. Innlent 28.2.2026 16:00
Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum rann út í gærkvöldi. Fjórtán einstaklingar buðu sig fram og verða því í kjöri í prófkjörinu sem fram fer föstudaginn 13. mars. Innlent 28.2.2026 14:48
Guðmundur Árni leiðir áfram listann Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði var samþykktur á félagsfundi flokksins í dag. Guðmundur Árni Stefánsson leiðir áfram listann og Stefán Már Gunnlaugsson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Hildur Rós Guðbjargardóttir eru þar jafnframt ofarlega. Elín Anna Baldursdóttir sálfræðingur vermir fjórða sætið. Innlent 28.2.2026 14:14
Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands, er oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ komandi sveitarstjórnarkosningum. Í öðru sæti er Valdimar Birgisson rekstrarráðgjafi og varaþingmaður og í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Listinn var staðfestur á félagsfundi nú í morgun. Innlent 28.2.2026 13:15
Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ var samþykktur á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ á Hótel Keflavík í gærkvöldi. Innlent 28.2.2026 11:06
„Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Það eru verulega spennandi kosningar í vændum í Reykjavík að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar stjórnmálafræðings, en spennan gæti magnast enn frekar eftir að kosningaúrslitin liggja fyrir í vor. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tróna yfir aðra flokka í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu á fylgi flokkanna í borginni og hið nýja Vinstri gæti náð inn að minnsta kosti tveimur fulltrúum úr röðum VG og Vors til vinstri. Innlent 27.2.2026 22:32
„Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur nú svipt hulunni af sínum lista yfir frambjóðendur flokksins í sveitarfélaginu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hilmar Gunnarsson, ritstjóri og Mosfellingur leiðir listann, en í öðru og þriðja sæti eru þær Jana Katrín Knútsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur, og Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari. Innlent 27.2.2026 20:13
Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Framsóknarflokkurinn í Mosfellsbæ hefur samþykkt framboðslista flokksins í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sævar Birgisson, viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi, leiðir listann og þau Halla Karen Kristjánsdóttir, íþróttakennari og formaður bæjarráðs og Leifur Ingi Eysteinsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur verma annað og þriðja sæti listans. Innlent 27.2.2026 18:18
Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Stjórn Samfylkingarfélagsins Rósarinnar hefur lokið viðræðum sínum um mögulegt samstarf við stjórnmálasamtökin Vor til vinstri, sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í sameiningu með Vinstri grænum undir nafni Vinstrisins. Niðurstaða viðræðnanna er sú að Rósin hyggst ekki fara í samstarf með Vinstrinu, heldur halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar. Innlent 27.2.2026 17:41
„Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var ekki viðstödd kynningu á framboðslista Samfylkingarinnar í borginni síðdegis í gær. Eftir því var tekið að Heiða Björg var ekki á hópmynd sem tekin var og frambjóðendur hafa keppst við að dreifa á samfélagsmiðlum. Pólitískir andstæðingar telja fjarveru Heiðu benda til ósættis innan raða Samfylkingarinnar. Innlent 27.2.2026 15:17
Samfylking stærst en Sjálfstæðisflokkur skammt undan Samfylking mælist með mest fylgi í Reykjavík, 24 prósent, en Sjálfstæðisflokkur fylgir henni fast á hæla með 22,7 prósent, samkvæmt nýjum Borgarvita Maskínu. Nýtt framboð Vinstrisins mælist með 9,1 prósents fylgi Innlent 27.2.2026 14:13
Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Tekin hefur verið ákvörðun um það innan Fyrir Heimaey, sem hefur haft forystu í bæjarmálapólitíkinni í Vestmannaeyjum, að ekki verði boðinn fram listi í bæjarstjórnarkosningum í vor. Innlent 27.2.2026 12:59