Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur
1 2 3 4 5 6 … 83 ›
Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Utanríkismálanefnd hefur boðað til opins fundar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu klukkan 14 í Smiðju. Gestur fundarins verður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Fundinn má sjá í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 24.4.2026 13:32
Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innanlandsflug hefur fallið undir evrópskt kerfi með losunarheimildir frá upphafi þvert á það sem starfshópur innviðaráðuneytis um strandsiglingar fullyrti. Ekki er heldur nein heimild til þess að fella niður skuldbindingar vegna kerfisins á strandsiglingar eins og ráðherra hefur boðað. Innlent 24.4.2026 07:33
Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í. Innlent 23.4.2026 00:08
Ný nefnd hefur náðað þrjá Frá því ný náðunarnefnd tók til starfa í nóvember hafa þrír verið náðaðir. Allir voru náðaðir á grundvelli heilsufars en nefndin hefur hafnað 24 beiðnum. Innlent 22.4.2026 22:37
Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur samþykkt að leggja fram frumvarp þess efnis að laun kjörinna fulltrúa og embættismanna hækki um 3,5 prósent nú í júlí. Sú hækkun kemur í stað fyrirhugaðrar 9,7 prósenta launahækkunar. Innlent 22.4.2026 17:13
Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Þegar tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið kom til umræðu á Alþingi kom fram hugmynd frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur um að óska eftir áliti Feneyjanefndar Evrópuráðsins á tillögunni. Skoðun 22.4.2026 16:16
Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjö sóttu um nýtt embætti sýslumanns Íslands sem verður stofnað í byrjun árs 2027. Meðal umsækjenda eru tveir sýslumenn og fyrrverandi lögreglustjóri. Innlent 22.4.2026 14:31
Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Alma Möller heilbrigðisráðherra hyggst ráðast í heildarendurskoðun á lögum um tæknifrjógvun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Meðal áforma er að koma í veg fyrir of náinn skyldleika vegna smæðar þjóðarinnar. Innlent 22.4.2026 13:53
Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Morgunblaðið afrekaði að breiða yfir stórfrétt sem blaðið þó birti og vann. Í fréttinni, sem birtist 11. apríl, staðfesta sérfræðingar stærstu banka landsins að lánakjör almennings af húsnæðislánum myndu lækka og batna með upptöku evru. Skoðun 22.4.2026 11:01
Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Hækkanir og sveiflur á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna innrásar Bandaríkjanna í Íran og lokunar Hormússunds minna okkur á að orkuskiptin eru ekki aðeins umhverfis- og loftslagsmál heldur líka grjóthart efnahagsmál. Skoðun 22.4.2026 08:11
Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Dómsmálaráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi til breytingar á útlendingalögum og lögreglulögum sem felur meðal annars í sér styttri kærufresti fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og skýrari stjórn á landamærunum. Formaður Miðflokksins segir frumvarpið fela í sér afnám Dyflinarreglugerðarinnar og aðlögun að Evrópusambandinu á einu erfiðasta sviðinu. Innlent 21.4.2026 18:33
Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Tilfærsla Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, fyrrverandi Ríkislögreglustjóra, frá dómsmálaráðuneytinu í mennta- og barnamálaráðuneytið er tímabundin til eins árs. Innlent 21.4.2026 16:28
Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum Alþingi samþykkti í dag frumvarp Ölmu Möller heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi árið 2022 og hefur síðan verði lagt fjórum sinnum fyrir þingið. Innlent 21.4.2026 16:17
Sigríður Björk aftur færð til Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi Ríkislögreglustjóri, hefur þegar látið af störfum í dómsmálaráðuneytinu en hún varð sérfræðingur þar á bæ eftir að hafa sagt af sér embætti Ríkislögreglustjóra í nóvember. Hún er nú sérfræðingur á skrifstofu barnamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Innlent 21.4.2026 12:22
Netglæpir eru skipulögð brotastarfsemi Flest okkar þekkja það að fá skilaboð, símtal eða tölvupóst sem reynist vera tilraun til fjársvika. Það sem virðist saklaust er hluti af stærri mynd. Skoðun 21.4.2026 07:31
„Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er augljóslega að verða pirruð á því að vera þráspurð af stjórnarandstöðunni um komandi aðildarviðræður. Hún sagði einsýnt að stjórnarandstaðan ætlaði að keyra á stagli og þvælu í andstöðu við málið og hræðsluáróðri. Innlent 20.4.2026 15:54
Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hyggst segja sig frá þingstörfum þar sem hún hefur verið skipuð í embætti sendiherra til fimm ára. Hún hefur störf 1. ágúst. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að hún verði sendiherra í London í Bretlandi. Innlent 20.4.2026 15:31
Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Forsætisráðuneytið býður til samtals um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar í dag, mánudaginn 20. apríl, á Hilton Nordica. Fundurinn, sem er öllum opinn, hefst kl. 8.30 og er gert ráð fyrir að fundinum ljúki klukkan tíu. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 20.4.2026 08:01
Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Adam Erik Bauer, náttúrufræðingur og doktorsnemi, hefur í tvö ár rannsakað magn ópíóíða, ketamíns og annarra vímuefna í fráveitu með það að markmiði að tryggja rétt viðbragð og auka forvarnir. Nýjustu niðurstöður sýna að kókaín í umferð sé nánast hreint og að töluvert magn sé af oxycontin í umferð. Hann segir þó jákvætt að ekkert fentanýl finnist í fráveitu eða annars staðar. Innlent 19.4.2026 19:31
Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Eins vil ég ítreka að það er gildandi samningur og ég kann því afar illa við fyrirsögn um að ég sé of upptekin að funda. Það er bara ótrúlega skrítið. Sér í lagi þegar við erum með gildandi samning.“ Innlent 19.4.2026 14:36
Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Ég hef alltaf haft hjarta fyrir Foreldrahúsi,“ segir Sædís Ósk Harðardóttir. Til stendur að loka starfseminni þann 1. maí og stendur Sædís nú fyrir undirskriftarlista til að hvetja ráðamenn í að fjármagna starfsemina. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir mennta- og barnamálaráðherra of upptekna til að funda með þeim. Innlent 19.4.2026 11:28
„Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir mörg dæmi um að tillit sé tekið til sérstöðu umsóknarríkja í aðildarviðræðum. ESB geti fært Íslandi stöðugleika á víðsjárverðum tímum í alþjóðamálum og sérþekking Íslands komi til með að nýtast sambandinu. Innlent 17.4.2026 19:01
Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn hefur tekið til starfa en markmið þess er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi. Innlent 17.4.2026 15:14
Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir engar aðildarviðræður að sambandinu vera eins. Mörg dæmi séu um að tekið sé sérstakt tillit til mismunandi umsóknarríkja, líkt og í tilviki Íslands og sjávarútvegsmála. Hann segir samningaviðræður við sambandið raunverulegar samningaviðræður. Innlent 17.4.2026 12:47
„Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Formaður Miðflokksins segir stjórnarliða annað hvort viljandi eða óviljandi hafa sagt þinginu og þjóðinni ósatt varðandi eðli þeirra viðræðna við Evrópusambandið, sem kosið verður um í ágúst. Þingmaður Viðreisnar vísar því á bug og segir ekki hægt að plata þjóðina inn í ESB. Innlent 17.4.2026 12:05
Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Nú eru liðnir tæpir þrjátíu og tveir dagar frá því að framlengdur frestur til að svara upplýsingabeiðni ESA um útgáfu leyfa til sjókvíaeldis á laxi rann út. Fresturinn rann út án þess að stjórnvöld hirtu um að svara. Innlent 17.4.2026 11:22
„Það er ósatt, ósatt með öllu“ Barna- og menntamálaráðherra segir það rangt að formaður Kennarasambands Íslands (KÍ) hafi fyrst heyrt af fyrirhuguðum breytingum hennar á námsmatskerfi grunnskóla á þingi KÍ í gær. Þær fyrirætlanir að hverfa frá notkun bókstafa við námsmat hafa reynst umdeildar meðal kennara. Innlent 16.4.2026 23:58
Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu „Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann. Innlent 16.4.2026 18:18
MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði á menntaþingi í gær að skólar ættu aftur að taka upp tölustafakerfi. Slíkar breytingar krefðust breytinga á aðalnámskrá. Innlent 16.4.2026 17:00
Hvað sagði konan? Inga Sæland hélt ræðu á þingi Kennarasambands Íslands í gær sem skildi salinn eftir í nokkru uppnámi. Skoðun 16.4.2026 15:32