Tónleikar á Íslandi

Fréttamynd

Allt sem í­búar og tón­leika­gestir þurfa að vita

Íbúar í Kórahverfi í Kópavogi munu þurfa að nýta sér hjáleiðir vegna götulokana í kringum Kórinn í Kópavogi um helgina þar sem fram fara stórtónleikar Laufeyjar. Lokanirnar eru í gildi átta og hálfa klukkustund á laugardag og sunnudag. Þá geta langflestir tónleikagestir ekki mætt á bíl á tónleikana, heldur er þeim gert að mæta í Smáralind. Afkastagetu fyrir 4G og 5G á svæðinu hefur verið aukið.

Innlent
Fréttamynd

„Eins og best verður á kosið í heiminum“

Yfir fimm hundruð manns koma að undirbúningi og annarri vinnu í tengslum við tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina og hefur undirbúningur staðið yfir í meira en ár að sögn tónleikahaldara. Þá er búið að opna svokallað Laufeyjarland í Smáralind.

Innlent
Fréttamynd

Hollt að sinna hús­verkum og fá engin hrós

„Ég upplifi stundum að ég sé að reyna að halda á tímanum en hann lekur bara úr höndunum á mér,“ segir tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr, betur þekktur sem Emmsjé Gauti. Síðastliðin tíu ár hefur hann verið gríðarlega vinsæll hérlendis og troðið upp á hinum ýmsu skemmtunum. Hann stendur á tímamótum og ræddi við blaðamann um þau, lífið og listina.

Tónlist
Fréttamynd

Fá rödd Guðna lánaða

Tónleikastaðurinn Sviðið á Selfossi hefur fengið Guðna Ágústsson til að taka upp sérstakar tilkynningar sem heyrast í salnum fyrir og eftir viðburði. Guðni mun þar bjóða gesti velkomna, taka við þeim í hléi og þakka þeim loks fyrir komuna.

Menning
Fréttamynd

Kór­stjórinn sem ól upp kyn­slóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjarta­laus skóli“

Kórstjórinn Þórunn Björnsdóttir, Tóta eins og hún er yfirleitt kölluð, stofnaði Skólakór Kársness fyrir fimmtíu árum síða, 7. mars 1976. Næstu fjóra áratugina eftir það ól hún upp heilu kynslóðirnar af börnum gegnum kórstarfið. Meðal þeirra sem stigu sín fyrstu skref hjá Tótu eru Emilíana Torrini, Halla Tómasdóttir, Gissur Páll Gissurarson og Erpur. Tóta er fyrsti íslenski grunnskólakennarinn sem fékk kórstarfið inn í stundarskrá og segir sönglausa skóla vera hjartalausa skóla.

Lífið
Fréttamynd

Opna Laufeyjarverslun fyrir tón­leikana

Á þriðjudaginn mun Sena opna sérstaka Laufeyjarverslun í Smáralindinni í tilefni af stórtónleikum Laufeyjar í Kórnum 14. og 15. mars. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist, gjafaleiki og Laufeyjarvarning vikuna fyrir tónleikana.

Tónlist
Fréttamynd

10cc spilar á Ís­landi í sumar

Enska poppbandið 10cc treður upp í Eldborgarsal Hörpu þann 23. júní næstkomandi. Sveitin er frægust fyrir slagara á borð við I'm Not in Love, Dreadlock Holiday og The Things We Do For Love.

Lífið
Fréttamynd

Sturluð vika hjá Krist­mundi Axel

„Okei, fallega fólk. Förum aðeins yfir þetta, stóra vikan! „Kominn heim“ er mest streymda íslenska lagið í dag,“ skrifar tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel á Instagram sitt en ellefu dagar eru liðnir frá því hann og Bubbi Morthens sendu frá sér lagið „Kominn heim“.

Tónlist
Fréttamynd

Öskursyngja ABBA lögin með á­horf­endum

Allir stærstu slagarar ABBA munu hljóma á einstöku ABBA söngpartýi sem fram fer í Hörpu og í Hofi á Akureyri. Selma Björns á von á trylltu stuði og segir ABBA aðdáendur alltaf taka vel undir ef tækifæri gefst til að öskursyngja ABBA lög.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusar­daginn 52 ára

„Ég rankaði við mér fyrsta árið okkar saman og áttaði mig á því að ég hafði aldrei áður verið á föstu á Valentínusardaginn,“ segir popp-prinsinn Páll Óskar sem ætlar að eiga rómantískan dag á laugardag með hans heittelskaða Antonio en fyrst kemur hann fram á tónleikunum Allskonar ást í Laugarneskirkju.

Tónlist
Fréttamynd

Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins

Rappsenan tók yfir Gamla Bíó á dögunum þegar rapparinn Izleifur blés til alls herjar tónlistarveislu í tilefni af plötuútgáfu. Frítt var inn og ásamt Izleifi kom þotulið tónlistarfólks fram.

Tónlist
Fréttamynd

„Ég er að heiðra litla Aron“

„Ég var klárlega búinn að fá einhver merki um að ég þyrfti aðeins að hægja á mér. Þessi pása lét mig einfaldlega elska þetta meira og ég saknaði tónlistarinnar,“ segir tónlistarmaðurinn og stjarnan Aron Can. 

Tónlist
Fréttamynd

Skilur meðvirkni eftir í for­tíðinni

„Satt best að segja finnst mér hvert ár bara alltaf verða betra og betra,“ segir tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, jafnan þekkt sem GDRN, en hún fagnaði þrítugsafmæli um helgina en ætlar að fagna áfanganum betur þegar hún klárar meðgönguna. Sömuleiðis var hún að gefa út plötu og heldur sér alltaf á tánum.

Tónlist
Fréttamynd

Krist­mundur Axel tók við af Bubba

Tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel tróð upp á Litla Hrauni á aðfangadag. Hann tók við af Bubba Morthens sem hefur til lengri tíma séð um tónlistarhaldið.

Lífið
Fréttamynd

Ís­kaldir IceGuys jólatónleikar

Strákahljómsveitin Ice Guys steig fjórum sinnum á svið í Laugardalshöll um helgina. Þeir fylltu salinn aftur og aftur og stigu þaulæfð danspor á ísilögðu sviði.

Lífið
Fréttamynd

Bríet ældi á miðjum tón­leikum

Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar hélt hátíðartónleika í Fríkirkjunni á föstudaginn með öflugum hópi hljóðfæraleikara. Þar lenti hún í þeirri miður skemmtilegu uppákomu að æla á miðjum tónleikum.

Lífið
Fréttamynd

Gefðu töfrandi skemmtun í jóla­gjöf

Það getur oft verið erfitt að finna jólagjafir handa þeim sem okkur þykir vænt um en nú er hægt að leysa það á auðveldan hátt með úrvali af sex heimsklassa tónleikum í Eldborgarsal Hörpu á næsta ári.

Lífið samstarf