Byggðamál

Fréttamynd

„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls.

Innlent
Fréttamynd

„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“

Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Loft­brú: Ráð­herra í 0% tengingu við lands­byggðina

Fyrr á þessu ári sagði Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, að ekkert yrði hróflað við Loftbrúnni nema að loknu samráði við íbúa landsbyggðarinnar. Ráðherra virðist þó hafa gleymt þessu loforði sínu þegar hann mundaði niðurskurðarkutann í enn eitt skiptið í liðinni viku og tilkynnti þá einhliða ákvörðun að skorin verður feit og pattaraleg sneið af Loftbrúarkökunni um áramótin.

Skoðun
Fréttamynd

Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segist vera með til skoðunar að breyta fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkerfi Loftbrúarinnar og hækka afsláttinn á hvern fluglegg um tvö þúsund krónur. 

Innlent
Fréttamynd

Að­förin gegn lands­byggðinni

Það skaut verulega skökku við þegar við fréttum nú síðsumars að leggja ætti niður leið landsbyggðarstrætós hér í uppsveitum. Í kjölfar mótmæla fékkst í gegn að halda inni tveimur ferðum á dag, að morgni og síðdegis, en þó aðeins á virkum dögum.

Skoðun
Fréttamynd

Sjö þúsund krónur séu ekki nóg

María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir fyrirhugaða breytingu á afsláttarkerfinu Loftbrú ekki duga nóg. Hún hafi miklar áhyggjur af stöðu innanlandsflugsins.

Innlent
Fréttamynd

Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd segir landsbyggðina brjálaða vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Samgönguráðherra hafi lofað samráði um málið í óundirbúnum fyrirspurnartíma í apríl og því sé samráðsleysi í málinu sérstaklega alvarlegt.

Innlent
Fréttamynd

Loftbrúin er fjár­festing í landsbyggðunum

Ég lít á Loftbrúna sem fjárfestingu í byggðajöfnuði, atvinnuþróun og samkeppnishæfni Íslands, fremur en kostnaðarlið sem rétt sé að skerða. Samgöngur þurfa að styðja við það markmið að fólk geti búið og starfað um allt land.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég er bara svo­lítið sár“

Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.

Innlent
Fréttamynd

Föst krónu­tala í stað hlut­falls

Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verður framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi, eða 40 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi

Eigandi eina hótelsins í Kulusuk á Grænlandi hefur skellt í lás og ákveðið að hafa lokað í allan vetur. Ástæðuna segir hann vera þá að enginn stuðningur fáist frá landsstjórninni eftir að Icelandair hætti flugi milli Íslands og Kulusuk yfir vetrarmánuði.

Innlent
Fréttamynd

Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á lands­byggðinni

Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu.

Innlent
Fréttamynd

Norð­austur­land fær loks langþráðan veg

Íbúar Norðausturlands sjá fram á þáttaskil í samgöngumálum með nýjum uppbyggðum vegi yfir Brekknaheiði. Með vegagerðinni þvert yfir Langanes, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar, fæst samfellt slitlag um Norðurausturveg sem skapar áhugaverðari valkost í ferðalögum um norðausturhorn landsins.

Innlent
Fréttamynd

Er lands­byggðin hluti af lausninni?

Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildaviðræður við ESB var sláandi munur á skoðunum landsmanna af höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar.

Skoðun
Fréttamynd

Hyggst kanna hug í­búa til á­forma í Finnafirði

Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins.

Innlent
Fréttamynd

„Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“

Þórhildur Ólöf Helgadóttir forstjóri Póstsins segir alþjónustu sem Pósturinn á að tryggja á Íslandi kostnaðarsama. Alþingi verði að svara því hversu langt eða stutt fólk eigi að þurfa að fara til að sækja óst. Hún segir það hafa færst verulega í aukana að fólk fái pakka í póstbox. Pósturinn tilkynnti um gjaldskrárhækkanir um síðustu mánaðamót.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þegar ,,ríkið” yfir­gaf byggðina

Þegar ÁTVR lokaði Vínbúðinni á Fáskrúðsfirði yfirgaf ríkið byggðina. Skýringin var einföld: reksturinn bæri sig ekki. Þjónusta sem átti að vera svo lífsnauðsynleg að enginn annar mætti sinna henni var lögð niður um leið og hún hætti að borga sig.

Skoðun
Fréttamynd

Vex Ís­land í eina átt?

Ein helsta skýringin á vexti höfuðborgarsvæðisins er sú að þar hefur stærstur hluti ríkisvalds, stjórnsýslu og opinberrar þjónustu safnast saman. Alþingi, ráðuneytin, stærstu ríkisstofnanirnar og meirihluti opinberra starfa eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu.

Skoðun