Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rannsakendur Sameinuðu þjóðanna komust að því að flugvélar í eigu bandarísks málaliðafyrirtækis hafa verið notaðar til að flytja málaliða frá Suður-Ameríku, vopn og dróna fyrir alræmda uppreisnar- og vígamenn í Súdan. Rapid support forces, eða RSF, hafa verið sakaðir um þjóðernishreinsanir í Darfur-héraði og bera ábyrgð á fjölmörgum ódæðum í Súdan á undanförnum árum. Erlent 30.7.2026 10:53
Skotbardagi við forsetahöll Tjad Vopnaðir menn réðust á forsetahöll Tjad í N‘Djamena, höfuðborg landsins, í gær. Nítján féllu í skotbardaga þar þegar árásin var stöðvuð en yfirvöld segja 24 sérsveitarmenn hafa ráðist á forsetahöllina, í meintri tilraun til valdaráns. Erlent 9.1.2025 10:52
Ummæli um vanþakklæti Afríkubúa valda reiði Ráðamenn í Senegal og Tjad hafa fordæmt ummæli Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ríki Sahelsvæðisins svokallaða hafi „gleymt að þakka fyrir“ hernaðaraðstoðina gegn víga- og uppreisnarhópum undanfarin ár. Frönskum hermönnum hefur verið gert að hypja sér frá báðum ríkjunum, auk annarra ríkja á undanförnum mánuðum. Erlent 7.1.2025 16:41
Neita að ræða við uppreisnarmennina sem felldu forsetann Herráð Tjad mun ekki hefja viðræður við uppreisnarmennina sem felldu Idriss Deby, forseta landsins til þrjátíu ára. Eykur það líkurnar á því að uppreisnarmennirnir láti verða af hótunum sínum og ráðist á höfuðborg landsins, í samráði við aðra hópa sem eru ósáttir við að sonur Deby, Magamat, hafi tekið völdin í Tjad. Erlent 26. apríl 2021 08:42
Forseti Tjad féll í átökum við uppreisnarmenn Idriss Deby, forseti Tjad, er dáinn. Hann er sagður hafa dáið vegna sára sem hann hlaut þegar hann heimsótti víglínu hers Tjad og uppreisnarmanna í norðurhluta landsins. Upplýsingar um dauða forsetans eru enn á reiki. Erlent 20. apríl 2021 11:21
FIFA setur tvö knattspyrnusambönd í bann FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, hefur sett knattspyrnusambönd Pakistans og Tjads í bann vegna afskipta annarra af samböndunum. Fótbolti 7. apríl 2021 12:02
Þrjátíu látnir í námuslysi í Tsjad Þrjátíu manns hið minnsta eru látnir eftir að gullnáma í Afríkuríkinu Tsjad féll saman. Erlent 26. september 2019 11:12
Átta friðargæsluliðar SÞ látnir eftir árás í Malí Árásin beindist að herstöð Sameinuðu þjóðanna í Aguelhok í norðausturhluta landsins. Erlent 20. janúar 2019 13:19
Macron um Trump: „Bandamaður á að vera áreiðanlegur“ Emmanuel Macron Frakklandsforseti kveðst harma mjög ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta að kalla herlið Bandaríkjanna heim frá Sýrlandi. Erlent 23. desember 2018 18:37
Tugir myrtir í fjórum árásum Gærdagurinn markaðist af mannskæðum árásum. Fregnir bárust af hryðjuverkaárásum í Afganistan, Tsjad og Pakistan í gær. Frambjóðandi myrtur í Pakistan og ellefu leigubílsstjórar myrtir í Suður-Afríku eftir harðar deilur. Erlent 23. júlí 2018 06:00
Banna Oxfam að starfa á Haítí í kjölfar vændishneykslis Ríkisstjórn Haítí hefur bannað bresku góðgerðarsamtökunum Oxfam að starfa í landinu og gildir bannið til frambúðar. Ákvörðunin er tekin eftir að vændishneyksli skók samtökin snemma á þessu ári. Erlent 13. júní 2018 23:32
Næstráðandi Oxfam hættir vegna vændisskandals Penny Lawrence, næstráðandi hjá Oxfam, einum stærstu góðgerðarsamtökum Bretlands, hefur sagt starf sínu lausu í kjölfarið á skandal sem kominn er upp innan samtakanna. Erlent 12. febrúar 2018 16:02
Stafar enn ógn af starfsemi ISIS Árinu 2017 er að ljúka og kalífadæmi ISIS er í molum. Samtökin eru þó enn fullfær um að beita skæruhernaði. Það sást greinilega í gær þegar sjálfsmorðssprengjuárás kostaði 41 lífið í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Erlent 29. desember 2017 06:00
Flóttamenn seldir í þrældóm á uppboði í Líbíu Fréttainnslag CNN, sem sýnir hvernig flóttamenn eru seldir í þrældóm á uppboði í Líbíu, hefur vakið mikla reiði og leitt til mótmæla í París á síðustu dögum. Erlent 27. nóvember 2017 14:38
Fleiri lönd bætast á ferðabannslista Bandaríkjanna Ferðabann Bandaríkjanna tekur nú til Norður-Kóreu, Venesúela og Tsjad. Erlent 25. september 2017 07:47
Utanríkisráðherra Tsjad nýr framkvæmdastjóri Afríkusambandsins Moussa Faki Mahamat tekur við stöðunni af hinni suður-afrísku Nkosazana Dlamini-Zuma. Erlent 30. janúar 2017 17:40