Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Það er líka mannasaur og mikið af blautþurrkum af því að fólk fer í útivist og vill vera tandurhreint. Þá fer það með fullan poka af Kleenex. Það skilur þetta eftir út um allar koppagrundir.“ 28.9.2026 09:08
Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Farþegi olli skemmdum á innréttingu í flugvél Icelandair í flugi þeirra frá Keflavík til Amsterdam í gær. Við komu til Amsterdam hafi lögregla tekið á móti farþeganum og handtekið hann. 28.9.2026 07:46
Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra boðar ný lög um gervigreind strax í vetur. Mikilvægt sé að ná tökum á tækninni sem er í sífelldri þróun og best væri ef alþjóðasamfélagið gæti komið sér saman um sameiginlegan lagaramma. 27.9.2026 15:26
Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Stóra málið sem var tekið fyrir í þætti tvö varðaði gervigreindina enda virðist fátt annað rætt við matarborð landsmanna þessa dagana. Miklar vendingar hafa orðið í gervigreindarheiminum og virðast Bandaríkin og Kína leggja allt í sölurnar til að verða ofan á í gervigreindarkapphlaupinu. 27.9.2026 10:00
Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Hjólahópurinn Team Rynkeby afhenti Umhyggju, félagi langveikra barna og fjölskyldna þeirra, rúmlega 32 milljónir króna í dag. Féð safnaðist á liðnu ári samhliða undirbúningi hópsins fyrir um 1.300 kílómetra hjólaferð frá Danmörku til Parísar. 26.9.2026 22:27
Buxnalaus Lalli olli glundroða Uppi varð fótur og fit í myndveri fréttastofu þegar enginn annar en Lalli töframaður lék listir sínar fyrir þáttastjórnanda. Það kom þáttastjórnanda eins og ýmsum öðrum á óvart að Lalli væri ber að neðan. 26.9.2026 13:01
„Það voru margir með tár á hvarmi“ Hátíðarstjórnandi Riff segir ýmsa hafa gengið af opnunarmynd hátíðarinnar með tár á hvarmi í gær. Myndin segir frá hinstu för Johns Snorra sem lést við það að ganga upp K2 að vetri til. Það hafi verið mögnuð upplifun að sjá myndina með fjölskyldu og vinum Johns. 25.9.2026 11:54
Holmes flutt á áfangaheimili Elizabeth Holmes, stofnandi fallna heilbrigðisfyrirtækisins Theranos sem olli einu mesta fjaðrafoki Kísildals, verður flutt úr lágmarksöryggisfangelsi á áfangaheimili í ágúst á næsta ári. 25.9.2026 09:02
„Þetta var rétt ákvörðun“ „Það eru auðvitað tvær hliðar á öllum svona málum. Guðmundur Ingi tók sjálfur þá ákvörðun að segja af sér sem ráðherra. Hann tilkynnti þetta, hann sagði frá þessu sjálfur og komst að þeirri niðurstöðu með hliðsjón af heilsufari sínu. Auðvitað segir það sig sjálft að svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi.“ 24.9.2026 16:59
Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Tvær skriður féllu í Landmannalaugum laust eftir hádegi. Önnur skriðan þveraði veginn til og frá Landmannalaugum og eru nú um 30 manns innlyksa á svæðinu. Litlu munaði að skriðan hafnaði á smárútu þar sem þrettán manns voru um borð. 24.9.2026 15:20