Fréttamaður

Tómas Arnar Þorláksson

Tómas Arnar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Salmonella greindist í kryddi Kokku

Matvælastofnun varar við neyslu á Timur berry kryddi frá Lifa ehf. sem er selt í Kokka þar sem Salmonella greindist í kryddinu. Fyrirtækið hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað vöruna.

Þing­maðurinn hefði mögu­lega ekki átt að taka Íbúfen

„Það þarf að meta hvert tilfelli fyrir sig og það er ekki gert í matvöruverslunum. Einstaklingur sem leitar sér þjónustu þar sem lyf eru seld þarf að geta leitað til lyfjafræðings og fengið ráðgjöf. Maður hefur áhyggjur af því, maður hefur verulegar áhyggjur af því.“

Viður­kennir mis­tök við skipan Jafnréttissjóðs

„Þetta voru mistök, þau hafa verið leiðrétt núna þannig að kynjahlutföllin eru eins og við viljum hafa þau. Ég legg bara áherslu á það að þegar svona mistök verða þá er sjálfsagt mál að leiðrétta þau.“

„Maður undir­býr sig fyrir það versta“

„Maður býst ekki við neinu aftakaveðri fyrr en um hádegi á morgun. Ég býst nú við að menn hýsi í kvöld, þannig sofa menn betur og samviskan er betri. Maður undirbýr sig fyrir það versta.“ 

Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg

Þingmaður Framsóknarflokksins segir að stjórnvöld megi ekki sofa á verðinum þegar kemur að sjóvörnum. Niðurskurður til málaflokksins skjóti skökku við í ljósi hækkunar sjávar og aukinnar sjávarflóðahættu. Ísland sé á flæðiskeri statt.

Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek

Stóra málið sem var tekið fyrir í þætti þrjú var að þessu sinni örlítið sjálfhverft. Fréttamennska og fjölmiðlar á Íslandi voru í brennideplinum. Í þættinum ákvað þáttastjórnandi að sýna á bak við tjöldin vegna vaxandi umræðu um fréttamennsku í samfélaginu. 

Guð­laugur Þór villtist inn í mynd­ver

Í nýjasta þættinum af Hvað er að frétta? vakti það kátínu margra þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, virtist villast inn í myndver fréttastofu Sýnar með hárnet og svuntu. Tilefnið var auðvitað kjördæmavika þingmanna.

Ung og upp­rennandi: „Pabbi segir mér al­veg að hætta þessu“

„Maður sér fullorðið fólk í dag og það er fáránlega leiðinlegt. Eins og gamlar konur sem hafa aldrei unnið úr vandamálunum sínum. Þær hata allar ungar konur og hata lífið sitt ógeðslega mikið og það er allt öllum öðrum að kenna. Ég horfi  á svona fullorðið fólk og hugsa bara: Guð, ég ætla aldrei að vera svona. Ég ætla bara að laga mín vandamál. Maður getur ekki látið æskuna taka yfir allt lífið, skilurðu?“

Mennirnir sem létust voru feðgar

Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Sjá meira