Arnarnesvegur opnar loks á morgun Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 4.10.2026 13:37
„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Kona sem fæddist í Oleshky í Úkraínu en hefur búið á Íslandi í tuttugu ár segir fjölskyldu sína borða gras og snigla úr garðinum til þess að lifa af. Veturinn framundan muni vera hörmulegur fyrir íbúa Oleshky sem er undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. Íbúar hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði og skortir mat og aðrar nauðsynjar. 4.10.2026 13:03
„Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir. 4.10.2026 11:56
Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við yfirlögregluþjón á Austurlandi um banaslysið sem varð þar í gær. 4.10.2026 11:39
Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Enginn var handtekinn í gærkvöldi þegar lögreglan fylgdist með samkomu Vítisengla við Auðbrekku í Kópavogi í gærkvöldi. Lögreglan hefur ítrekað fylgst með slíkum sakomum. 4.10.2026 10:30
Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Tveir létust í fjögurra bíla árekstri sem varð rétt fyrir hádegi í gær á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum. Þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri. 4.10.2026 09:38
Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Mikill viðbúnaður lögreglu var í bænum Halden í morgun eftir skotárás þar sem tveir létust og einn særðist. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins. Þeir þrír sem urðu fyrir skotum voru allir hluti af veiðihópi. 4.10.2026 09:15
Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Mörg þúsund manns fylla götur og torg á Spáni í dag til að mótmæla ástandinu á húsnæðismarkaðnum þar í landi. Skipulögðu mótmælin fara fram í meira en 50 borgum en þar á meðal er Madrid, Valencia og Barcelona. 3.10.2026 15:52
Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Lögreglan hefur áhyggjur af nýrri tískubylgju meðal hóps ungra ökumanna sem virðist vera að ryðja sér til rúms á samfélagsmiðlum. Athæfið birtist þannig að ökumenn taka sig upp á ógnarhraða og smella af sér bílbeltinu. 3.10.2026 12:46
Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við samfélagslögreglu sem hefur áhyggjur af nýju æði sem hefur gripið um sig meðal ungmenna. Þar keyra þau á allt að 160 kílómetra hraða og taka sig upp á meðan þau smella af sér bílbeltinu. 3.10.2026 11:43