Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Tónlistarhátíðin Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar og Smekkleysu fór fram á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í gær. Kona sem býr í nágrenni við Víðistaðatún lýsir vonbrigðum og reiði yfir tónlistarhátíðinni. Hún hafi rofið dýrmæta kyrrð sem átti að ríkja á degi sem íbúar hverfisins höfðu leyft sér að hlakka til árum saman. 13.8.2026 16:32
Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Kvika banki hagnaðist um 1545 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður sama tímabils í fyrra, árið 2025, var rúmir tveir milljarðar og lækkar hagnaður um 24 prósent milli ára. 13.8.2026 11:59
Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Almyrkvi á sólu sést á vestanverðu Íslandi síðdegis í dag. Við fylgjumst með í vaktinni hér á Vísi. 12.8.2026 06:00
Maðurinn fundinn Maðurinn sem lögregla auglýsti eftir í gær er fundinn, heill á húfi. Lögregla þakkar veitta aðstoð. Fréttin hefur verið uppfærð. 11.8.2026 21:17
Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi. 11.8.2026 20:56
Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Lögreglu barst tilkynning um aðila sem reynt hafði að greiða með stolnu kreditkorti í verslun miðsvæðis í Reykjavík. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að aðilinn var með þýfi á sér úr annarri verslun og var hann handtekinn. Maðurinn var einnig með meint fíkniefni á sér. 11.8.2026 17:27
Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Almyrkvi sást síðast á Íslandi árið 1954 og samkvæmt heimildum sást hann einna best í Vestmannaeyjum. Eyjamennirnir Hávarður Birgir Sigurðsson og Svavar Steingrímsson muna vel eftir því þegar almyrkvinn skall á. Eftirminnilegast þykir þeim hvernig umhverfið hljóðnaði og dýr lögðust til svefns. 9.8.2026 09:00
Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Sigurjón Sighvatsson, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi, var í kvöld heiðraður með Raimondo Rezzonico-verðlaununum á Locarno-kvikmyndahátíðinni í Sviss fyrir framlag sitt til alþjóðlegrar kvikmyndagerðar. 6.8.2026 23:56
„Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ „Evrópusambandið er ekki konfektkassi þar sem við getum farið og valið okkur bestu molana og sagt nei við hinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún segir vegferð ríkisstjórnarflokkanna dapurlega og að ESB-umræðan sé fyrst og fremst ætluð til að breiða yfir stöðu efnahagsmála. 6.8.2026 23:54
Slökktu eld á Kársnesi Eldur kom upp við Kópavogshöfn á Kársnesi nú á tíunda tímanum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo bíla á staðinn en þegar þangað var komið sást eldur í ruslahrúgu. 6.8.2026 23:07