Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Hiti náði fjörutíu gráðum í borginni Bordeaux í dag. Rauðar veðurviðvaranir ná yfir um það bil hálft Frakkland á morgun auk þess sem appelsínugular viðvaranir gilda í stórum hluta landsins. Mikil hitabylgja gengur nú yfir Evrópu meðal annars vegna streymis heits lofts norður á bóginn frá Sahara-eyðimörkinni. 21.6.2026 21:02
Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Vel virðist hafa farið á með Jökli Júlíussyni, nýrri kærustu hans og forsetahjónunum, frú Höllu Tómasdóttur og Birni Skúlasyni á Þingvöllum í gær. Mbl greindi frá því á föstudagskvöld að Jökull hefði eignast nýja vinkonu, brasilíska íþróttafréttakonu og fyrirsætu að nafni Bruna Ludmila. 21.6.2026 21:01
Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Bragi Þór Thoroddsen hefur verið ráðinn sveitarstjóri Fljótsdalshrepps. Bragi hefur síðustu sjö ár verið verið sveitarstjóri Súðavíkurhrepps en flytur sig nú um í starfi hinum megin á landið. 21.6.2026 18:31
Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Áhyggjufullur vegfarandi tilkynnti um mann í sjónum í dag. Verkefnið féll í hendur Lögreglustöðvar 2 sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ. Hér reyndist þó aðeins vera um vaskan sjósundsmann að ræða og því lítillar aðstoðar af hendi lögreglu krafist. 21.6.2026 17:43
Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Alvarlegt lestarslys varð á Englandi í gær þegar tvær lestir rákust saman. Lestarnar voru báðar á leið frá Mið-Englandi suður til St. Pancras-stöðvar Lundúnaborgar. Tuttugu og átta liggja enn inni á sjúkrahúsi, þar sem níu í lífshættu. 21.6.2026 00:02
Hafði fé af mótsgesti Maður sem í dag var staddur á mótsvæði Norðurálsmótsins á Akranesi í dag gekk sannarlega ekki til góðs. Maðurinn sagðist safna áheitum fyrir góðgerðarfélag og ginnti gest til að greiða í posa. 20.6.2026 23:12
HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Háskólinn í Reykjavík útskrifaði í dag sjö hundruð og tuttugu nemendur. Tvískipt athöfn fór fram í Eldborgarsal Hörpu. 20.6.2026 22:44
Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Fréttastofu bárust ábendingar frá tónleikagestum á Þingvöllum um miklar tafir á tónleikasvæðinu vegna margmennis. Vonsvikinn gestur segir sviðið of lítið, áhorfendasvæðið rúmi ekki mannfjöldann og ekki sé nægt pláss í kringum matarvagnana. Tónlistarhátíðin Bergmál fór þar fram í dag en búist var við tuttugu þúsund gestum. 20.6.2026 22:10
Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina „Það er sól í heiði og allir í brosandi góðu skapi,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mikill umferðarþungi hefur verið á leiðinni að Þingvöllum í dag vegna tónlistarhátíðarinnar Bergmáls. 20.6.2026 18:48
Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðar mál manns sem ónáðaði hlaupakonur miðsvæðis í Reykjavík í dag. Maðurinn kom aðvífandi á rafskútu og ýmist kleip í eða sló á rass þeirra. 20.6.2026 18:14