Faraldurinn enn í vexti í Rússlandi Fleiri en 100.000 manns hafa nú greinst smitaðir af nýju afbrigði kórónuveiru í Rússlandi. Greint var frá mestri daglegri fjölgun nýrra smita frá upphafi faraldursins í dag. Vladímír Pútín forseti varar við því að faraldurinn hafi enn ekki náð hámarki sínu. 30.4.2020 10:24
Nýtt jökulsker skýtur upp kollinum á Breiðamerkurjökli Um kílómetra langur kambur utan í Mávabyggðarrönd er nýjasta jökulskerið í Breiðamerkurjökli. Skerið hefur smám saman verið að birtast undanfarin þrjú til fjögur ár en það mun að öllum líkindum enda á að kljúfa jökulinn í tvo strauma á þessari öld. 30.4.2020 09:00
Bandaríska hagkerfið dróst saman um 4,8% Samdráttur upp á 4,8% í Bandaríkjunum á fyrsta ársfjórðungi er sá mesti sem mælst hefur þar fjármálakreppunni fyrir rúmum áratug. Engu að síður telja hagfræðingar það aðeins lognið á undan storminum þar sem samdrátturinn gæti náð allt að 30% á næsta fjórðungi. 29.4.2020 16:27
Innan við tíu á sjúkrahúsi vegna Covid-19 Tveir greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn, samkvæmt nýuppfærðum tölum á Covid.is. Alls hafa því 1.797 greinst með veiruna hér á landi. 29.4.2020 13:01
Fjórir særðust í hnífaárás í Hanau Ekki er ljóst hvað hópi manna sem stakk og særði fjóra vegfarendur gekk til í borginni Hanau í Þýskalandi í gærkvöldi. Lögregla telur þó ekkert benda til þess að árásirnar tengist fjöldamorði kynþáttahatara á fólki ef erlendum uppruna í borginni í febrúar. 29.4.2020 10:09
Áfram verulegur samdráttur í umferð en merki um að hún sé að aukast aftur Um fimmtungssamdráttur var áfram á umferð á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar tvær vikur. Betri mynd er sögð fást af áhrifum kórónuveirufaraldursins á umferð á milli ára eftir þessa viku þegar páskar trufla ekki samanburðinn. Vegagerðin telur sig sjá merki um að umferðin sé tekin að þyngjast aftur. 28.4.2020 16:30
Banna farþegaflug til og frá Argentínu fram í september Ríkisstjórn Argentínu hefur bannað allt millilanda- og innanlandsflug með farþega vegna kórónuveirufaraldursins til 1. september. Samtök flugfélaga segja að þúsundir manna gætu misst vinnuna fyrir vikið og alþjóðleg flugmálayfirvöld segja aðgerðirnar brot á samningum. 28.4.2020 16:28
Ákveðnar tegundir krabbameins stórauka hættu af Covid-19 Sjúklingar með blóð- eða lungnakrabbamein eru allt að þrisvar sinnum líklegri en aðrir til að látast af völdum Covid-19. Rannsókn sem var gerð á krabbameinssjúklingum í Hubei-héraði í Kína bendir einnig til þess að þeir sem eru með krabbamein sem hefur dreift sér um líkamann sé einnig í sérstakri hættu vegna sjúkdómsins. 28.4.2020 15:43
Leyniþjónustan varaði Trump ítrekað við kórónuveirunni Donald Trump Bandaríkjaforseti var ítrekað varaður við hættu sem gæti stafað af nýju afbrigði kórónuveiru í daglegum kynningum leyniþjónustunnar í janúar og febrúar, á sama tíma og hann gerði lítið úr alvarleika mögulegs faraldurs. Forsetinn hefur reynt að kenna Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og Kínverjum um hversu margir hafa látist í faraldrinum í Bandaríkjunum. 28.4.2020 13:52
Greindu þrjú ný smit Þrír greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn, samkvæmt nýuppfærðum tölum á Covid.is. Alls hafa því 1.795 greinst með veiruna hér á landi. Tiltölulega fá ný smit hafa greinst á landinu undanfarna daga. 28.4.2020 13:00