Spá efnahagsbata á næsta ári eftir harðan skell Íslenska hagkerfið gæti dregist saman um 9,2% á þessu ári vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins en náð fyrri styrk eftir tvö ár. Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka er gert ráð fyrir hóflegri verðbólgu á komandi misserum og frekari lækkun vaxta. 14.5.2020 07:00
Um 5% fólks á Spáni gætu hafa smitast af veirunni Mótefnamæling á Spáni bendir til þess að allt að 5% íbúa þar hafi smitast af nýju afbrigði kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum. Það eru um tífalt fleiri en fjöldi staðfestra smita í landinu. Heilbrigðisráðherra Spána segir mælinguna sýna að ekkert hjarðónæmi sé til staðar. 13.5.2020 21:04
Samherji endurgreiðir ríkinu hlutabætur Stjórnendur Samherja Íslands og Útgerðarfélag Akureyringa hafa ákveðið að endurgreiða ríkinu hlutabætur sem það greiddi starfsmönnum. Félög Samherja muni í staðinn sjálf bera allan kostnað af skertu starfshlutfalli starfsmanna sinna. 13.5.2020 20:32
Ekki útlit fyrir frekari viðræður Icelandair og flugfreyja Forstjóri Icelandair segir áhyggjuefni að ekki verði lengra komist í viðræðum við Flugfreyjufélag Íslands. Í yfirlýsingu frá flugfélaginu kemur fram að ekki hafi verið boðað til frekari funda og að ekki sé útlit fyrir að svo verði eftir að fundi var slitið fyrir hádegi í dag. 13.5.2020 19:08
Enginn lengur á Landspítalanum með Covid-19 Vatnaskil urðu í kórónuveirufaraldrinum á Íslandi í dag en nú liggur enginn sjúklingur lengur inni á Landspítalanum með Covid-19, sjúkdóminn sem nýtt afbrigði kórónuveiru veldur. Engu að síður en níu sjúklingar enn á sjúkrahúsinu sem eru jafna sig á alvarlegum veikindum. 13.5.2020 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvissa um opnun landamæra, áhættugreining fyrir Landspítala og sumastörf fyrir námsmenn eru á meðal efnis kvöldfrétta Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 13.5.2020 18:10
Deila Eflingar og sjálfstæðra skóla til sáttasemjara Formaður Eflingar hefur óskað eftir því að sáttasemjari taki við stjórn á viðræðum í kjaradeilu Eflingarfólks sem starfa hjá fyrirtækjum innan Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) gagnvart Samtökum atvinnulífsins. 13.5.2020 18:09
Jón Ásgeir og Ingibjörg vilja þrjá milljarða í bætur frá Sýn Þau Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir og félag hennar 365 hf. hefur stefnt fjarskiptafyrirtækinu Sýn hf., forstjóra þess og öllum stjórnarmönnum til að greiða þeim alls þrjá milljarða í skaðabætur. Áður hafði Sýn stefnt hjónunum og krafist um 1,7 milljarða króna vegna meintra brota á kaupsamningi. 13.5.2020 17:52
Sameiginlegt verkefni að ná langtímasamningum Forstjóri Icelandair segir það sameiginlegt verkefni félagsins og starfsmanna að ganga frá langtímasamningum til þess að geta sýnt væntanlegum fjárfestum fram á samkeppnishæfni flugfélagsins. Í viðræðum við flugstéttir sé lögð áhersla á að auka vinnuframlag en verja ráðstöfunartekjur starfsmanna. 12.5.2020 23:41
Ótímabær opnun gæti leitt til óþarfa dauðsfalla Einn helsti yfirmaður sóttvarna í Bandaríkjunum sagði Bandaríkjaþingi í dag að verði takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins aflétt of snemma gæti það leitt til frekari útbreiðslu veirunnar og óþarfa dauðsfalla. Fjöldi ríkja er byrjaðu að slaka á aðgerðum eða hafa það í hyggju, meðal annars að áeggjan Donalds Trump forseta. 12.5.2020 22:48