„Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir eðlilegt að þjónusta vínbúðanna þróist í takt við samfélagið þegar hann er spurður um áform ríkisins um heimsendingu á áfengi. Hans skoðanir á því hvort gera eigi verslun með áfengi frjálsa skipti litlu máli þar sem skiptar skoðanir eru á málinu í ríkisstjórninni. 30.10.2026 13:50
Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Formaður Miðflokksins segir umræðuna um regnbogafánana hafa komið sér á óvart. Allir eigi að fá að vera eins og þeir vilji vera en hópar telji fánann þvingandi og útilokandi og segir formaðurinn hættu á að hann ýti börnum út í „eitthvað trend“. Menntakerfið megi ekki beina þeim í „ákveðnar áttir“. Formaðurinn hefur ekki greitt atkvæði á þessu þingi en hyggst brátt tala manna mest og boðar nýjar tillögur í útlendingamálum. 30.10.2026 07:02
Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Einn eigenda netverslunarinnar Sante segir áform ríkisins um að hefja heimsendingu á áfengi merkileg í ljósi þess að áfengislögin kveði á um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að áfengi. Sama stofnun og ætli nú að hefja heimsendingar hafi í sex ár kallað heimsendingar ógn við lýðheilsu. Nú þurfi forsvarsmenn vínbúðanna að fara að ákveða hvort ÁTVR sé lýðheilsustofnun eða verslun sem keppir um viðskiptavini. 28.10.2026 12:02
Gefur meirihlutanum falleinkunn Formaður stéttarfélagsins Sameykis gefur meirihlutanum í Reykjavík falleinkunn. Hann býst við því að svipuðum fjölda verði sagt upp í dag og í síðustu skipulagsbreytingum borgarinnar. 27.10.2026 11:21
Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Áhrifavaldar í Noregi og Finnlandi voru nýverið sektaðir fyrir að auglýsa ólögleg fjárhættuspil á netinu. Í Grikklandi eru átján áhrifavaldar til rannsóknar vegna athæfisins. Enginn hefur verið sektaður hér á landi. 26.10.2026 16:08
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Varaformaður þingflokks Viðreisnar segist ekki hafa sóst eftir því að verða gerð að þingflokksformanni. Aðspurð hvernig hún svari gagnrýni Jóns Gnarr segir hún að engar athugasemdir hafi verið gerðar við stöðu hennar innan þingflokksins að henni vitandi. 26.10.2026 12:06
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Formaður Sjálfstæðisflokksins segir enga tryggingu fyrir því að gjaldtaka á ferðamannastaði verði eyrnamerkt innviðauppbyggingu. Um sé að ræða skatt á eina sveit. 25.10.2026 16:30
„Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Össur Skarphéðinsson segir Jón Gnarr eina mestu prímadonnu íslenskra stjórnmála. Hann hafi verið í einu versta hlutverki sem stjórnmálamaður kemst í, fyrir utan það hlutverk að vera í minnihluta borgarstjórnar Reykjavíkur. Össur segist enn aðdáandi Ólafs Ragnars Grímssonar þó hann sé ekki lengur formaður aðdáendaklúbbsins. 25.10.2026 16:21
Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Þó nokkrir hafa sett sig í samband við Bjarkarhlíð í kjölfar umdeilds sýknudóms í nauðgunarmáli að sögn teymisstýru úrræðisins. Niðurstaðan dragi úr vilja þeirra til þess að leita réttar síns. 25.10.2026 11:39
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Edda Pétursdóttir sigraði keppni um skelfilegasta graskerið sem fram fór í dag. 24.10.2026 16:27