Á skilorði en heldur áfram að bera sig Karlmaður hefur ítrekað berað sig fyrir framan börn í Laugardal og eru foreldrar orðnir langþreyttir á ástandinu. Móðir stúlku sem lenti í manninum í gær ætlar að kæra hann til lögreglu. Innlent 17. maí 2022 12:56
Dagur hefur ekki svarað símtölum Hildar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík hefur ekki svarað símtölum Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segist hafa rætt við alla oddvitana í borginni eftir kosningar, utan tveggja. Innlent 17. maí 2022 10:42
Hækkað úr 80 milljónum í 129 Ásett verð raðhúsaíbúðar í Árbæ í Reykjavík hefur hækkað um ríflega sextíu prósent frá því í febrúar 2019 og farið úr 79,9 milljónum í 129,3. Þar af hefur eignin hækkað um rúmar 9 milljónir króna frá því í mars síðastliðnum. Fasteignasali segir alla sammála um að fasteignamarkaðurinn sé kominn úr böndunum. Viðskipti innlent 17. maí 2022 09:00
Ráðherra birtist óvænt í miðju viðtali og reyndist sammála viðmælandanum Svo heppilega vildi til þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðingur var til viðtals í Íslandi í dag, að Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra gekk framhjá. Hannes bauð honum að setjast með sér og spyrli. Í ljós kom, ef til vill fáum til undrunar, að hann tók heils hugar undir með Hannesi, að það yrði erfitt fyrir Framsóknarflokkinn að réttlæta myndun nýs meirihluta í Reykjavík með nýföllnum meirihluta. Innlent 17. maí 2022 07:31
Meirihlutarnir fimm sem eru í boði Eftir yfirlýsingar Vinstri grænna um að taka ekki þátt í myndun nýs meirihluta í borgarstjórn og útilokanir Pírata og Sósíalista á samstarfi við suma flokka koma aðeins fimm meirihlutamyndanir til greina í Reykjavík. Innlent 17. maí 2022 07:00
Undarlegt að hafa ekki heyrt frá Degi Oddviti Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavík telur mikilvægt að félagshyggjustjórn taki við í borginni og að undarlegt sé að borgarstjóri hafi ekki hringt í sig. Fréttir 16. maí 2022 19:24
Útilokar að undirgangast stefnu Samfylkingarinnar í borginni Oddviti Framsóknarflokksins segir það ekki koma til greina að taka þátt í meirihlutasamstarfi undir stefnu Samfylkingarinnar. Viðræður við flokka í dag hafi verið óformlegar og að ekki hafi verið farið út í nein málefni. Innlent 16. maí 2022 18:56
Vill ekki að fólk oftúlki orð sín – stefnan sé sett á samflot Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að ekki megi oftúlka orð hennar um að útiloka ekki neinn. Oddvitar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata hafi talað sig saman um að vera í samfloti í gegnum meirihlutaviðræður. Innlent 16. maí 2022 17:53
Einar Örn 63 ára hjólaði í vinnuna úr Reykjavík á Selfoss Einar Örn Thorlacius fer alla leið í átakinu „Hjólað í vinnuna“ því hann hjólaði í morgun frá Þingholtunum í Reykjavík þar sem hann býr á Selfoss, en þar vinnur hann hjá Matvælastofnun. Innlent 16. maí 2022 15:26
Þetta eru nýju borgarfulltrúarnir í Reykjavík Af þeim 23 borgarfulltrúum sem náðu kjöri í kosningunum um helgina koma tíu nýir inn. Sumir hafa áður setið í borgarstjórn og einn tók sæti sem borgarfulltrúi á yfirstandandi kjörtímabili. Innlent 16. maí 2022 14:45
Kosningapartý, fjör og gleði Það var mikið líf og fjör um helgina þar sem kosningapartý voru haldin víðsvegar um Reykjavík á meðan beðið var eftir niðurstöðunum. Ljósmyndari frá Vísi kíkti við í nokkur teiti og fangaði stemninguna þar sem flokkarnir fögnuðu kvöldinu. Lífið 16. maí 2022 12:00
Einar segir stöðuna galopna og hefur áhuga á borgarstjórastólnum Oddviti Framsóknarflokksins vill ræða við oddvita allra flokka í Reykjavík í dag. Hann segist hafa áhuga á stóli borgarstjóra og telur stöðuna galopna. Þrátt fyrir það virðast fáir valkostir í myndun meirihluta á borðinu eins og staðan er núna. Innlent 16. maí 2022 11:54
Segir ljóst að ekkert breytist verði Framsókn varahjól undir bíl fallins meirihluta Óformlegar viðræður eiga sér nú stað í Reykjavík. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að lítið verði um breytingar ákveði Framsókn að vera „varahjól“ undir föllnum meirihluta. Hildur mun eiga fundi með nokkrum oddvitum í dag en vill lítið gefa upp um hverja hún hittir. Innlent 16. maí 2022 10:27
Eldur í ruslagámi við Ánanaust Eldur kviknaði í ruslagámi við Ánanaust í morgun. Engin hætta skapaðist samkvæmt varðstjóra hjá Slökkviliðinu hjá höfuðborgarsvæðinu. Innlent 16. maí 2022 08:47
„Við fórum yfir stöðuna og ákváðum að halda saman“ Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar í borgarstjórn segir að oddvitar meirihlutaflokkanna hafi á fundi í gær ákveðið að „halda saman“. Miklar vangaveltur eru uppi um hvaða flokkar muni mynda meirihluta í borgarstjórn en meirihlutinn féll í sveitarstjórnarkosningum á laugardag. Innlent 16. maí 2022 08:35
Ók á 200 kílómetra hraða og komst undan Lögreglan veitti ökumanni bifreiðar eftirför um klukkan sjö í gærkvöldi. Atburðarrásin hófst í miðbænum þar sem tilkynnt var um ölvaðan ökumann. Innlent 16. maí 2022 07:27
Tafirnar skýrast af glænýrri reglugerð sem kjörstjórnin skilur ekkert í Margir pirruðu sig á mikilli seinkun sem varð á fyrstu tölum úr Reykjavík eftir kosningar í gær. Formaður yfirkjörstjórnar gagnrýnir nýjar og strangari reglur um talningu og sér ekki tilganginn með þeim. Innlent 15. maí 2022 22:00
Segir engar viðræður hafnar en útilokar ekki samstarfið Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir engar viðræður hafnar milli flokks síns og Framsóknarflokksins. Hún telji þó raunhæfan möguleika að starfa með Framsókn, Viðreisn og Flokki fólksins Innlent 15. maí 2022 20:51
Líf útilokar þátttöku í meirihlutasamstarfi Líf Magneudóttir, oddviti og eini borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík, hefur tjáð samstarfsfélögum sínum í fráfarandi meirihluta að Vinstri græn muni ekki sækjast efir því að taka þátt í viðræðum um meirihlutasamstarf. Innlent 15. maí 2022 20:21
Einar kannast ekki við fullyrðingar síns gamla vinnustaðar Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir engar óformlegar viðræður um myndun meirihluta hafnar af sinni hálfu. Hvorki við Sjálfstæðisflokk né aðra. Innlent 15. maí 2022 19:37
Aðeins einn raunhæfur möguleiki á þriggja flokka meirihluta í borginni Möguleikar eru á myndun að minnsta kosti níu samsetningum að meirihlutum í borgarstjórn að loknum kosningunum í gær. Aðeins væri hægt að mynda tvo þriggja flokka meirihluta þótt annar þeirra verði að teljast ólíklegur. Innlent 15. maí 2022 19:20
Konurnar sem skráðu sig á spjöld sögunnar í nótt Tímamót urðu á að minnsta kosti tveimur vígstöðvum eftir að talið var upp úr kjörkössunum í nótt. Yngsti borgarfulltrúi sögunnar náði kjöri í Reykjavík og gamalreyndur bæjarfulltrúi verður fyrst kvenna bæjarstjóri á Ísafirði. Þær eru spenntar fyrir komandi verkefnum. Innlent 15. maí 2022 17:28
Pawel segir Viðreisn vilja í starfhæfan meirihluta Pawel Bartoszek datt út úr borgarstjórn í nýafloknum sveitarstjórnarkosningum. Hann var annar maður á lista Viðreisnar sem náði einungis einum manni inn. Hann segir að ekki fyrirfinnist sá stjórnmálamaður sem er sáttur við að fá minna fylgi en síðast. Innlent 15. maí 2022 15:26
Telja rétt að fráfarandi meirihlutaflokkar stilli saman strengi fyrst Oddvitar stærstu stjórnmálaframboðanna í Reykjavík segja fátt um mögulegt meirihlutasamstarf eftir að meirihlutinn féll í kosningunum í gær. Borgarstjóri og oddviti Pírata eru sammála um að réttast sé að fráfarandi meirihlutaflokkar ræði fyrst saman. Innlent 15. maí 2022 12:37
Afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi Hik í uppbyggingu í samgöngumálum og afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi fyrir metnað Íslendinga í loftslagsmálum, að sögn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar. Ráðherra Sjálfstæðisflokks segir úrslitin í Reykjavík kröfu um breytingar. Innlent 15. maí 2022 11:35
Konum fækkar í borgarstjórn en eru enn í meirihluta Körlum í nýkjörinni borgarstjórn Reykjavíkur fjölgar um þrjá frá lokum síðasta kjörtímabils. Konur verða engu að síður áfram í meirihluta þar en þær eru þrettán af tuttugu og þremur borgarfulltrúum. Innlent 15. maí 2022 08:41
Skvetti bjór og byrjaði að berja dyravörð Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir tilkynnt var um konu sem hafði ráðist á dyravörð veitingastaðar í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan 22 í gærkvöldi. Innlent 15. maí 2022 07:22
Stórsigur Framsóknar setur Einar í bílstjórasætið Borgarstjórnarmeirihlutinn er fallinn og Framsóknarflokkurinn er í lykilstöðu fyrir myndun nýs meirihluta. Flokkurinn náði fjórum fulltrúum inn í borgarstjórn en Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn töpuðu tveimur fulltrúum hvor. Innlent 15. maí 2022 06:39
Lokatölur í Reykjavík: Meirihlutinn fallinn og stórsigur Framsóknar Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn. Innlent 15. maí 2022 04:50
Opin fyrir samstarfi með Framsóknarflokknum Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, segist vera opin fyrir því að starfa með Framsókn í borgarstjórn ef núverandi samstarfsflokkar missa meirihluta sinn. Samkvæmt fyrstu tölum er meirihluti Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna fallinn en Píratar bæta þó við sig manni. Innlent 15. maí 2022 03:16