Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Til­kynningum um inn­brot fjölgar á ný

Íbúar í og við miðborg Reykjavíkur hafa orðið varir við ítrekuð innbrot í bíla í hverfinu. Einn íbúanna fann síma annars í bílnum sínum. Aðalvarðstjóri segir að tilkynningum um innbrot fjölgi á ný.

Innlent
Fréttamynd

Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag

Von er á metþátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga sem fram fer á morgun og taka fyrstu götulokanir í miðborg Reykjavíkur gildi núna í hádeginu. Mikil eftirvænting ríkir fyrir vagni tónlistarmannsins Páls Óskars.

Innlent
Fréttamynd

Þjófar herja á fyrir­tæki borgarinnar

Áfram var nokkuð um innbrot og þjófnaði miðsvæðis í Reykjavík í dag, samkvæmt skrá lögreglu yfir verkefni dagsins. Þá gerðust tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu sekir um það að vera í þriðja skipti teknir án ökuréttinda.

Innlent
Fréttamynd

Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða

Sundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

„Það bara fannst ekki neitt“

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst rétt fyrir klukkan fimm síðdegis tilkynning um reyk á stigagangi í Asparfelli. Viðbragð slökkviliðs er þó nokkuð þar sem um stórt fjölbýlishús er að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu

Hjónin Hrafnhildur Helga Össurardóttir og Árni Hjaltason hafa sett 162 fermetra einbýlishús sitt að Lokastíg á sölu. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum og er ásett verð 172,9 milljónir króna.

Lífið
Fréttamynd

Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni

Yfirfullir fangaklefar hafa reynst lögreglu fjötur um fót í baráttunni gegn innbrotahrinu í miðbæ Reykjavíkur þar sem ekki hefur verið hægt að vista grunaða í fangageymslum. Lögreglufulltrúi segir lögreglu þó farna að sjá til lands en enn sé tilefni fyrir fólk að gæta vel að heimilum sínum.

Innlent
Fréttamynd

Dósaþjófur hótaði að bíta hús­ráðanda

Húsráðandi á Seltjarnarnesi lenti illa í dósaþjófi sem ráfaði um garð sinn. Eftir að hafa tilkynnt konuna, sem vígbúin var dósum og öðru slíku, til lögreglu hélt húsráðandi út í garðinn og reyndi að ræða við konuna. Hún brást þá hin versta við og hótaði að bíta hann.

Innlent
Fréttamynd

Stefnir í stærstu Gleði­göngu sögunnar

Hinsegin dagar voru settir í Reykjavík í gær, formaður segir að það stefni í metþátttöku í Gleðigöngunni á laugardag. Það sé til marks um breiða samstöðu með hinsegin samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Reykja­vík er frjáls

Hinsegin dagar í Reykjavík hófust í gær en síðan 1999 hefur Gleðigangan verið einn fjölsóttasti og flottasti viðburður í borginni ár hvert - og blessunarlega alla tíð staðið undir nafni. Gleðigangan er líka kröfuganga sem minnir okkur á hvernig samfélag við höfum byggt upp og viljum halda áfram að byggja upp. Við viljum Reykjavík þar sem fólk er frjálst og tilheyrir. Frjálst til að vera einsog það er og frjálst til að elska fólkið sem það elskar. Samfélag sem áttar sig á því að fjölbreytileiki mannflórunnar er óendanlegur og veit að einmitt í fjölbreytninni búa okkar mestu styrkleikar. Samfélag sem fagnar öllum litunum og býður þá velkomna. Enda væri þessi heimur leiðinlegt pleis ef allir væru eins.

Skoðun
Fréttamynd

Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi

Tilkynnt var um tvo vopnaða aðila í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt en að sögn tilkynnanda voru þeir ógnandi og árásargjarnir. Annar þeirri reyndist vopnaður öxi og hinn hamri en þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Lagt var hald á vopn í málinu en ekki liggur fyrir hvort bæði öxin og hamarinn hafi verið haldlögð.

Innlent
Fréttamynd

Í­trekað hjólað á móti um­ferð

Fólk á reðihjólum og rafhlaupahjólum hjólar ítrekað á móti umferð við Hverfisgötu í Reykjavík, en ekki virðast allir átta sig á því þar sé einstefna sitt hvoru megin við götuna. Formaður Landsambands hjólreiðamanna segir að bæta þurfi vegmerkingar við götuna. Einstefnuhjólastígum á að fara fjölgandi í borginni á næstu árum, að sögn Reykjavíkurborgar.

Innlent
Fréttamynd

Næturborun í sjó lokið og verk­takar þakka í­búum þolin­mæðina

Síðustu vikur hefur borun staðið yfir að næturlagi í sjónum úti fyrir Kársnesi en henni er nú lokið. Borunin er skref í smíði Fossvogsbrúar sem verður 270 metra löng, allt að sautján metra breið og opnar þann 16. júní árið 2028, ef allt fer eftir áætlun. Staðarstjóri segir framkvæmdina vera hreint út sagt ótrúlega en meðal þeirra sem hafa komið að smíðinni eru atvinnukafarar sem sérhæfa sig í logsuðu neðansjávar.

Innlent
Fréttamynd

„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“

Hinsegin dagar standa nú yfir og er fjöldi viðburða á dagskrá næstu daga, svo sem glansverkstæði, hýr húslestur, trans kirkja og hinsegin hraðstefnumót. Listrænn stjórnandi opnunarhátíðarinnar segir bakslag í samfélaginu augljóst en að hinsegin fólk sé óhrætt við að ögra. Í ár sé sérstaklega kappkostað að gera ungu hinsegin fólki hátt undir höfði og er lag hátíðarinnar samið og flutt af hinum átján ára gamla Guðjóni Þorgils Kristjánssyni.

Innlent
Fréttamynd

Enn eitt inn­brotið í mið­bænum

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrotsþjóf í heimahúsi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þjófurinn var staðinn að verki við að brjótast inn í mannlausa íbúð en nágrannar yfirbuguðu hann og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang.

Innlent
Fréttamynd

Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti

Til skoðunar er að stækka það svæði í miðborginni sem vaktað er með öryggismyndavélum að sögn borgarstjóra. Ráðist verður í nágrannavörsluátak í Reykjavík í kjölfar innbrotahrinu.

Innlent
Fréttamynd

Enn brotist inn í mið­bænum

Tilkynnt var um enn eitt innbrotið í fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík í dag. Fjallað hefur verið um þráláta hrinu innbrota í miðborginni undanfarið.

Innlent
Fréttamynd

Regn­boginn kominn aftur á tröppurnar

Regnbogafáninn er kominn aftur á tröppurnar við Grafarvogskirkju. Íslenski fáninn var í skjóli nætur málaður yfir regnbogafána sem áður prýddi tröppurnar þann áttunda júlí.

Innlent
Fréttamynd

Loðinn laumu­far­þegi sníkti far frá Úlfarsfelli

Steinunn Þórðardóttir lenti í miður skemmtilegri upplifun eftir að hafa hlaupið tuttugu kílómetra á Úlfarsfelli á fimmtudaginn. Eftir að hún kom heim í Hlíðarnar skaust minkur upp undan húddinu á bíl hennar, stökk af bílnum og hljóp í átt að Kringlumýrabraut.

Lífið
Fréttamynd

Búast við fjöl­mennasta Innipúka til þessa

Nóg verður um að vera um verslunarmannahelgina sem nú er gengin í garð. Skipuleggjendur Einnar með öllu ætla ekki að láta rigningu á sig fá og finna fyrir því að Blö-menn hafi aukið áhugann á Akureyri yfir helgina. Skipuleggjendur Innipúkans í Reykjavík búast við sinni stærstu hátíð til þessa.

Innlent
Fréttamynd

Bruni við Breiðhöfða

Eldur kom upp í gámasamstæðu á byggingarreit við Breiðhöfða í Reykjavík í kvöld. Slökkvistarf hefur gengið vel.

Innlent