Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Lögreglu barst tilkynning um aðila sem reynt hafði að greiða með stolnu kreditkorti í verslun miðsvæðis í Reykjavík. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að aðilinn var með þýfi á sér úr annarri verslun og var hann handtekinn. Maðurinn var einnig með meint fíkniefni á sér. Innlent 11.8.2026 17:27
Hafa borið kennsl á hinn látna Lögregla hefur borið kennsl á lík sem fannst við Austurbæjarskóla í Reykjavík laust fyrir klukkan 13 í dag. Innlent 11.8.2026 17:00
Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er 60 kílómetrar á klukkustund eða meiri á meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Innlent 11.8.2026 14:57
Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Helga Lára Haarde hefur verið ráðin aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Hún hefur störf á skrifstofu borgarstjóra á næstu vikum. Innlent 10. ágúst 2026 17:44
Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Eigendur spænska veitingastaðarins La Barceloneta í Templarasundi munu skella staðnum í lás í hinsta sinn á sunnudag. Ástæðan er sú að þeir geta ekki leigt rýmið í Templarasundi áfram og þeir leita að nýju rými undir staðinn. Viðskipti innlent 10. ágúst 2026 16:38
Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Alexandra Briem, Pírati og fyrrverandi borgarfulltrúi, gat ekki hringt í neyðarlínuna um helgina þegar tveir menn bönkuðu upp á hjá henni alblóðugir. Hún segir frá þessari reynslu í Facebook-færslu en mennirnir lentu í slysi nærri heimili hennar í miðbænum. Innlent 10. ágúst 2026 15:53
Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Lítill skemmtibátur sem Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan um í morgun er fundinn. Áður en hann fannst var leit að bátnum orðin nokkuð umfangsmikil og björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út. Þá var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í þann mund að taka á loft þegar samband náðist við áhöfn bátsins. Innlent 10. ágúst 2026 12:55
Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verst allra fregna vegna rannsóknar á manndrápi sem mun hafa verið framið í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í gær. Nokkrir hafa verið handteknir vegna málsins, en ekki liggur fyrir hversu margir þeir eru, og hvort farið verði fram á gæsluvarðhald á hendur þeim, eða einhverjum þeirra. Innlent 10. ágúst 2026 11:56
TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Landhelgisgæslan hefur hafið eftirgrennslan um lítinn skemmtibát, sem siglt var út á Sundin í morgun, þar sem áhöfn hans hefur ekki látið vita af sér. Ekkert bendir til þess að báturinn sé sokkinn en eftirlits- og björgunarflugvélin TF-SIF hefur verið ræst út til að svipast um eftir bátnum. Innlent 10. ágúst 2026 11:41
Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Áhættuleikkonan Arna Magnea Danks lenti í mótorhjólaslysi á sunnudaginn, fótbrotnaði illa og þarf að fara í tvær aðgerðir. Hún var á mótorhjólinu í Gleðigöngunni á laugardaginn og var á leið með það í bílskúr þegar hún lenti í slysi á Sæbrautinni. Lífið 10. ágúst 2026 11:01
Árekstur á Suðurlandsbraut Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsbraut um hálfníuleytið í kvöld. Einhverjir voru fluttir á sjúkrahús vegna hans. Innlent 9. ágúst 2026 21:56
Nokkrir handteknir vegna mannsláts Einn var handtekinn fljótlega eftir að alvarleg líkamsárás var framin í heimahúsi í Kópavogi í dag. Í kjölfarið voru nokkrir handteknir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur. Sá sem varð fyrir árásinni er látinn. Innlent 9. ágúst 2026 20:49
Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Mikill viðbúnaður lögreglu var við íbúðarhús sem er í verslunarkjarna við Gnoðarvog í Reykjavík um fimmleytið í dag, en þegar mest var voru minnst sex lögreglubílar á vettvangi. Þá voru að minnsta kosti tveir menn leiddir út í járnum. Innlent 9. ágúst 2026 17:32
Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Dyrum Kattakaffihússins, fyrsta og eina kattakaffihúss landsins, á Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað þann 23. ágúst næstkomandi fyrir fullt og allt eftir átta ára rekstur. Viðskipti innlent 9. ágúst 2026 14:35
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Hópur manna kastaði grjóti í átt að grínista og leikkonu sem var á leið sinni heim af Gleðigöngunni í gær í Vesturbæ Reykjavíkur. Atvikið hafi ekki verið í fyrsta sinn sem hún lendir í slíkri árás en bakslag í málefnum hinsegin fólks sé raunverulegt og samfélaginu beri skylda að bregðast við. Innlent 9. ágúst 2026 14:18
„Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Það var margt um manninn og mikið um dýrðir síðasta sólarhringinn á höfuðborgarsvæðinu en slökkviliðsfólk hafði þar af leiðandi í nægu að snúast. Vanalega er slökkviliðið ræst út talsvert oftar á dagvöktum en næturvöktum en því var öfugt farið í þetta skiptið. Innlent 9. ágúst 2026 11:22
Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Sjö líkamsárásir rötuðu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt, sem þykir heldur mikið, en fjöldi fólks var samankominn í miðborginni vegna Hinsegin daga sem fóru fram í vikunni. Nokkrir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild en ekki liggur fyrir hversu alvarlegar árásirnar voru. Innlent 9. ágúst 2026 11:01
Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Bandaríski leikarinn Jason Bateman, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í gamanþáttunum „Arrested Development“, var meðal gesta á veitingastaðnum Horninu um helgina. Hann var þar ásamt dóttur sinni Francescu Nora en hann á tvær dætur með eiginkonu sinni, leikkonunni og kvikmyndaframleiðandanum Amandu Anka. Lífið 9. ágúst 2026 09:41
Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Sjö mismunandi tilkynningar um líkamsárásir bárust vakthafandi lögreglu á lögreglustöð eitt, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Mikill fjöldi var samankominn í miðborginni í gær en hin árlega Gleðiganga fór þar fram og var lögregla kölluð til vegna samkvæmishávaða á svæðinu. Innlent 9. ágúst 2026 07:45
Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Hápunktur hinsegin daga fór fram í dag þegar Gleðigangan var gengin í Reykjavík frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og endaði með útitónleikum í Hljómskálagarðinum. Lífið 8. ágúst 2026 21:19
Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Flugvél Icelandair þurfti að hætta við að taka á loft frá Reykjavíkurflugvelli rétt fyrir flugtak vegna fugls sem hafnaði á vélinni. Innlent 8. ágúst 2026 20:01
Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Mikið álag var á Strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag, enda stefndu margir á miðbæ Reykjavíkur þar sem Gleðigangan fór fram. Í Háaleitishverfinu ók troðfullur strætó án þess að nema staðar og hleypa inn farþegum á stoppistöð, en samkvæmt sjónvarvotti var Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á meðal þeirra sem komst ekki í vagninn. Innlent 8. ágúst 2026 19:02
Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti útkalli í dag vegna fólks sem virti ekki götulokanir í miðborginni vegna Gleðigöngunnar, sem hófst klukkan 14 í dag og lauk með tónleikum í Hljómskálagarðinum sem kláruðust nú um fimmleytið. Innlent 8. ágúst 2026 17:36
Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Eigendur Barnaloppunnar biðla til leigjenda sinna að áframselja ekki barnavörur keyptar í Góða hirðinum á hærra verði í versluninni. Innlent 8. ágúst 2026 14:58