Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Íbúar og ræktendur í Mosfellsdal og nærsveitum eru verulega áhyggjufullir eftir að hundruð ef ekki þúsundir minka sluppu úr búrum sínum í morgunsárið. Lögregla rannsakar innbrot í búið. Brotist var inn í svínabú í maí og kjúklingabú í júní. Innlent 29.7.2026 10:55
Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Stjórn Víghóls, íbúasamtaka Mosfellsdals, segist verulega brugðið yfir því að hundruðir minka hafi sloppið út í Dalsbúi. Mosfellsdalur sé gróðursæl náttúruparadís, þar sem sé að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem nú steðjar ógn að. Innlent 29.7.2026 10:27
Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Bæjarstjóri Mosfellsbæjar ráðleggur íbúum að halda dýrum sínum inni á meðan mynd kemst á stöðuna í tengslum við atvikið á Dalsbúi í nótt, þar sem hundruðum minka var sleppt úr búrum sínum. Innlent 29.7.2026 10:04
Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóð í Mosfellsbæ í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er helmingseigandi félagsins á móti föður sínum. Krafan er upp á tæpan milljarð króna. Innlent 17. júlí 2026 08:01
Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Drangar, sem eiga meðal annars Nettó, Lyfjaval og Brauð og Co., ætla að opna nýjan verslunarkjarna á Korputúni. Forsvarsmenn Dranga og Reita undirrituðu leigusamning þess efnis í dag. Viðskipti innlent 14. júlí 2026 12:44
Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Tímabilskort hækka um rúm þrjú prósent í nýrri gjaldskrá Strætó. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt. Neytendur 14. júlí 2026 08:19
„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum. Innlent 7. júlí 2026 15:21
Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní. Innlent 6. júlí 2026 13:58
Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum er meðal þeirra sem sóttu um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 29. júní 2026 09:39
Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann Lögreglunni barst tilkynning um árekstur á áttunda tímanum í morgun, fimmtudaginn 25. júní, þar sem ekið hafði verið á reiðhjólamann með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu. Þá hafnaði hann á gangstéttarkanti og var fluttur á slysadeild en ekki liggur fyrir hve alvarlega áverka hann hlaut. Innlent 25. júní 2026 17:57
„Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Á níunda tímanum í kvöld, mánudaginn 22. júní, skall hurð nærri hælum á göngustíg við Ásgarð í Mosfellsbæ en minnstu munaði að þrír ungir fjallahjólarar keyrðu niður barnungan dreng. Móðir drengsins segist enn vera í hálfgerðu áfalli en að „skyndileg ónotatilfinning“ hafi orðið til þess að hún greip son sinn upp og hljóp með hann af stígnum augnabliki áður en drengir á fjallahjólum birtust ofar á stígnum. Þá segir hún alls ekki vera við þá að sakast enda sárvanti betri merkingar og skilti við stíginn. Innlent 22. júní 2026 23:32
Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Einn hefur verið kærður fyrir stórfellda líkamsárás í Kópavogi í gærkvöld eða nótt. Greint er frá í dagbók lögreglu en ekki kemur nánar fram um atvik eða þann sem er ákærður en einn er samkvæmt dagbók vistaður í fangageymslu eftir nóttina. Innlent 22. júní 2026 06:06
Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Athuganir óháðra sérfræðinga í Varmá eru að engar vísbendingar hafi komið fram um fiskdauða eða annað umfangsmikið tjón á lífríki árinnar. Þá er jafnframt ekkert sem bendir til fækkunar fugla. Veitur stöðvuðu við lok síðasta mánaðar borframkvæmdir í Skammadal. Árfarvegurinn í Varmá var orðinn gruggugur og íbúar höfðu miklar áhyggjur af dýralífi. Óháðir sérfræðingar hafa tekið út áhrifin síðustu vikur. Ræða á aðgerðir Veitna og leitina á íbúafundi á morgun. Innlent 21. júní 2026 18:03
Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt. Innlent 20. júní 2026 14:38
Baráttan um 17. júní Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa úr ýmsu að velja á þjóðhátíðardaginn. Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður og Mosfellsbær hafa öll birt dagskrár fyrir 17. júní og verður dagurinn víða merktur með hefðbundnum hátíðaratriðum, tónlist og dagskrá fyrir börn og fjölskyldur. Innlent 15. júní 2026 14:17
Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Margt var um manninn og mikið um dýrðir í veislum gærkvöldsins en um það bil tvö þúsund og sjö hundruð háskólanemar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands. Lögreglan fékk ítrekaðar tilkynningar um tónlistarhávaða í Reykjavík en meðal annarra mála voru innbrot í hverfi 101 og líkamsárás þar sem þrír voru handteknir. Á Austurlandi voru ökumenn hins vegar til fyrirmyndar að sögn lögreglu. Innlent 14. júní 2026 08:21
Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Eldur hefur komið upp í vinnuvél í Álfsnesi á Kjalarnesi. Reykjarmökkur sést víða að og lögregla og slökkvilið eru á vettvangi. Innlent 8. júní 2026 12:45
Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Hilmar Gunnarsson hefur tekið við sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mynduðu nýjan meirihluta í sveitarfélaginu eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar en Hilmar er oddviti Sjálfstæðismanna. Innlent 4. júní 2026 23:26
Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn hennar á innbroti í Reykjabú á Suður-Reykjum í Mosfellsbæ aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Innlent 3. júní 2026 11:52
„Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, MAST, segir aðgerðir manns á Reykjabúi aðfaranótt mánudags ekki hafa neitt með dýravelferð að gera. Innlent 2. júní 2026 23:32
Dýrum stefnt í hættu Starfsmaður alifuglabús segir dýrum hafa verið stefnt í hættu þegar brotist var inn í búið í vikunni. Aflífa þurfti dýr sem hleypt var út. Innlent 2. júní 2026 19:31
Fordæma innbrot í Reykjabú Samtök fyrirtækja í landbúnaði fordæma harðlega innbrot hjá Reykjabúi aðfaranótt mánudags. Í tilkynningu segja samtökin mikilvægt að háttsemi af þessu tagi sé skýrt fordæmd og stjórnvöld undirstriki að ólögmæt innkoma í landbúnaðarfyrirtæki verði ekki liðin. Matvælastofnun hyggt kæra brot á lögum um velferð dýra til lögreglu. Innlent 2. júní 2026 15:44
„Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Bóndi á Reykjabúi í Mosfellsbæ segir einn mann hafa verið að verki í innbroti á býlið aðfaranótt mánudags, maðurinn hafi borið fugla út sem síðar hafi þurft að aflífa. Hann hafi skilið eftir bréf þar sem hann hafi afsakað gjörðir sínar. Bóndinn segir um mikið áfall að ræða. Innlent 2. júní 2026 11:00
Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar. Innlent 2. júní 2026 10:08