Íran

Íran

Höfuðborg: Teheran. Mannfjöldi: 89,6 milljónir (2025). Flatarmál: 1.648.195 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Boðar harðar á­rásir og her­nám Kharg-eyju

Donald Trump segir að Bandaríkjamenn muni gera mjög kröftugar árásir á Íran í kvöld. Þá segir forsetinn að Bandaríkjamenn muni hernema Kharg-eyju á Persaflóa á næstunni. Þá muni Bandaríkjamenn taka alfarið yfir olíu- og gasmarkaði Íran, ekki ósvipað því sem hann gerði í Venesúela.

Erlent
Fréttamynd

Báðir segjast hættir, í bili

Útlit er fyrir að átökunum milli Ísrael og Íran, sem blossuðu upp á nýjan leik í gærkvöldi, sé lokið eða í það minnsta í bili. Ráðamenn í báðum ríkjum segjast hættir árásum en halda möguleikanum á því að hefja þær að nýju opnum.

Erlent
Fréttamynd

Íranir skjóta á Ísrael

Íranir gerðu í kvöld loftárás á Ísrael í kjölfar þess að Ísraelsmenn gerðu árásir í höfuðborg Líbanon fyrr í dag þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi þar. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael í tæpan mánuð. Ísraelsmenn heita hefndum.

Erlent
Fréttamynd

Segir Kúbu næsta á eftir Íran

Bandaríkin beittu í gær Miguel Díaz-Canel, forseta Kúbu, refsiaðgerðum. Auk hans voru eiginkona hans og þrír aðrir einnig beittir refsiaðgerðum en Bandaríkjamenn hafa sett verulegan þrýsting á nágranna sína og hefur Donald Trump hótað hernaðaraðgerðum gegn eyríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Marjane Satrapi er látin „úr sorg“

Íransk-franski teiknimyndasöguhöfundurinn og Óskarsverðlaunatilnefndi leikstjórinn Marjane Satrapi er látin, 56 ára að aldri. Fjölskylda hennar segir Satrapi hafi dáið „úr sorg“ eftir að hafa misst eiginmann sinn, Mattias Ripa, rúmu ári fyrr.

Menning
Fréttamynd

Sami flug­maðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit

Bandaríski flugmaður F-15E herþotunnar sem skotin var niður yfir Íran í vor var einnig skotinn niður yfir Kúveit, nokkrum vikum áður. Hann var því tvisvar sinnum skotinn niður á rétt rúmum mánuði, sem fyrrverandi herforingi líkir við að verða tvisvar sinnum fyrir eldingu.

Erlent
Fréttamynd

Áfram­haldandi á­tök í Líbanon þrátt fyrir sam­komu­lag

Átök héldu áfram í Líbanon í nótt þrátt fyrir að Ísraelar og Hezbollah hafi samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um staðbundið vopnahlé. Hezbollah gerði í nótt þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri þorpum í norðurhluta Ísrael og ríkismiðlar í Líbanon hafa greint frá árásum Ísraela í suðurhluta landsins.

Erlent
Fréttamynd

Samnings­drög sam­þykkt en beðið eftir grænu ljósi for­setans

Samningamenn Bandaríkjanna og Írans eru sagðir hafa samþykkt frumdrög að samkomulagi sem myndi framlengja vopnahlé þeirra á milli um sextíu daga og hefja samningaviðræður um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans. Donald Trump Bandaríkjaforseti á enn eftir að samþykkja samkomulagið en hann er sagður deila samningsdrögum með bandamönnum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Ó­sáttur við skil­yrðin

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst enn ósáttur við þau samningsskilyrði sem Íranir og Bandaríkjamenn semja nú um. Íranskir ríkismiðlar hafa greint frá meintum samningsdrögum en Hvíta húsið kallar þau hreinan uppspuna.

Erlent
Fréttamynd

Trump vill ekki flýta sér

Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning.

Erlent