Allir nema Trump skilja hvað hann hefur gert Donald Trump hugsar ekki með strategískum hætti. Hann hugsar heldur ekki í sögulegu eða landfræðilegu samhengi, né heldur á rökréttan hátt. Hann tengir ekki saman ákvarðanir sem hann tekur einn daginn við atburði sem eiga sér stað vikum síðar. Hann veltir því ekki fyrir sér hvernig hegðun hans á einum stað hefur áhrif á viðbrögð annarra á öðrum stöðum. Umræðan 20.3.2026 09:50
Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka. Erlent 20.3.2026 06:33
Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Yfirmaður úkraínska járnbrautarkerfisins færði leikaranum Sean Penn silfraðan Óskar úr lestarbraki. Penn hafði sleppt því að mæta á Óskarinn um helgina, þar sem hann var valinn besti leikarinn í aukahlutverki, til að heimsækja Úkraínu. Bíó og sjónvarp 18.3.2026 13:19
Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Victor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur sakað yfirvöld í Úkraínu um að skipuleggja árásir á fjölskyldu sína. Andstæðingar Orban segja ásakanirnar lið í kosningabaráttu Orban. Erlent 12. mars 2026 11:56
Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hringdi í Vladimír Pútín, kollega sinn í Rússlandi, í gær og ræddu þeir saman í klukkutíma. Meðal umræðuefna voru stríðið gegn Íran, Venesúela, staðan á olíumarkaði og stríð Rússa í Úkraínu. Erlent 10. mars 2026 08:10
Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Yfirvöld í Rússlandi deila upplýsingum með Írönum um staðsetningar Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum, byggingar og önnur möguleg skotmörk fyrir skotflaugar og sjálfsprengidróna Írana. Erlent 6. mars 2026 15:30
Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir ráðamenn í Mið-Austurlöndum, Evrópu og Bandaríkjunum hafa leitað ráða hjá Úkraínumönnum um hvernig best sé að stöðva íranska sjálfsprengidróna. Íranar hafa notað gífurlegan fjölda slíkra dróna til árása á nágranna sína síðustu daga sem hafa notað mjög dýr flugskeyti til að stöðva þá. Erlent 5. mars 2026 16:41
Úkraína - 24. febrúar 1956 og 2022 24. febrúar 2022 réðst her Pútíns inn í Úkraínu. Pútín er einræðisherra sem vill stækka rússneska heimsveldið. Ferill hans er athyglisverður. Skoðun 2. mars 2026 11:48
Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Úkraínski drónaframleiðandinn Ukrspecsystems hefur opnað verksmiðju í í Mildenhall í Suffolk á Englandi. Verksmiðjan mun framleiða dróna til notkuna á vígvellinum í Úkraínu. Erlent 26. febrúar 2026 12:40
Yfir hundrað þúsund gert kröfu: „Réttlæti skal ná fram að ganga“ Alls hafa borist 115 þúsund kröfur í tjónaskrá fyrir Úkraínu sem sett var á fót á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík fyrir þremur árum. Gert er ráð fyrir að skaðabótanefnd taki til starfa innan tveggja ára. Formaður tjónaskrárinnar segir um fordæmalaust starf að ræða og að ekki verði slegið slöku við þótt á móti blási á alþjóðavettvangi. Innlent 25. febrúar 2026 14:32
Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Fyrirtæki í Rússlandi hafa notað bresk aflandssvæði til þess að komast í kringum þvingunaraðgerðir. Alþjóðleg samtök gegn spillingu telja að viðskipti fyrir allt að átta milljarða dollara hafi farið þessa leið frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu. Viðskipti erlent 25. febrúar 2026 10:34
Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Sjö gámar af búnaði og varahlutum frá Landsneti, Veitum og Norðurorku sem nýtast munu við enduruppbyggingu orkuinnviða Úkraínu verða sendir til Úkraínu í vikunni. Þetta er meðal þess sem Kristrún Frostadóttir upplýsti Úkraínumenn um í dag í heimsókn sinni til Kænugarðs. Erlent 24. febrúar 2026 23:00
Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Forsætisráðherra Íslands segir að þó stuðningur Íslands við Úkraínu nemi ekki háum upphæðum í stóru myndinni séu þær hlutfallslega háar og Íslendingar geti verið stoltir af stuðningi sínum við baráttu Úkraínumanna fyrir eigin fullveldi. Ráðherrann var í dag viðstödd minningarathafnir íKænugarði í tilefni af því að fjögur ár eru frá því að Rússar réðust inn í landið. Erlent 24. febrúar 2026 17:18
Rússneskur hermaður sem særðist í stríðinu gæti keppt á Ólympíumótinu Fjöldi hermanna hefur fallið og enn fleiri hafa slasast á þeim fjórum árum sem nú eru liðin frá innrás Rússlands í Úkraínu. Um fimm hundruð þeirra Rússa sem særðust æfa nú íþróttir og stefna sumir á að keppa fyrir hönd Rússlands á Ólympíumótum fatlaðra. Sport 24. febrúar 2026 13:32
Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari búsettur í Úkraínu, segir sorg ekki vera nægilega gott orð til að lýsa tilfinningunum sem vakna í dag. Fjögur ár eru síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 24. febrúar 2026 11:09
Að standa með Úkraínu er að standa með okkur sjálfum Í dag eru liðin fjögur ár frá því að Rússar hófu blóðugt landvinningastríð sitt í Úkraínu. Í þá 1460 daga sem liðnir eru síðan stjórnvöld í Kreml ákváðu að þverbrjóta alþjóðalög með innrás inn í fullvalda og friðsamt ríki, hafa íbúar Úkraínu mátt þola gegndarlausar árásir, oftast að næturlagi, sem beinast gegn venjulegu fólki og borgaralegum innviðum. Skoðun 24. febrúar 2026 07:01
Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er nú stödd í Kænugarði þar sem hún mun í dag verða viðstödd minningarathafnir vegna þess að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 24. febrúar 2026 06:57
Vopnin ekki til að drepa, heldur verja Það er þungbært og erfitt að horfa upp á að enn geisi stríð í heimalandinu að sögn úkraínskra kvenna sem búa á Íslandi. Þær eru þakklátar fyrir stuðning Íslendinga, í hvaða mynd sem hann er, en á morgun eru fjögur ár síðan allsherjarinnráð Rússa í Úkraínu hófst. Innlent 23. febrúar 2026 20:02
Þriðja heimsstyrjöldin Það er rétt að taka orð Zelensky, forseta Úkraínu alvarlega þegar hann segir innrás Rússa fyrir fjórum árum marka upphaf þriðju heimsstyrjaldarinnar. Skoðun 23. febrúar 2026 10:30
Börn og vopn Mér fannst vont að hlusta á utanríkisráðherra okkar í myndbandi sem tekið var upp í München, þar sem ráðherra sótti öryggisráðstefnuna 13-15. febrúar. Skoðun 20. febrúar 2026 09:02
„Leyfa morðingjum og vitorðsmönnum þeirra að keppa á Ólympíumótinu“ Úkraínsk yfirvöld eru vægast sagt ævareið yfir þátttöku Rússa á Ólympíumóti fatlaðra. Sport 19. febrúar 2026 07:00
Verjast fregna af viðræðum dagsins Þríhliða viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna um endalok innrásarstríðs Rússa í Úkraínu lauk í dag án eiginlegrar niðurstöðu. Viðræðurnar stóðu yfir í tvo daga í Genf í Sviss, en fundurinn í dag stóð yfir í aðeins tvær klukkustundir. Erlent 18. febrúar 2026 16:36
Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Maðurinn sem talinn er helsti pólitíski andstæðingur Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, hefur lengi forðast það að ræða pólitíkina þar í landi. Hann hefur nú opnað á þá umræðu í viðtali og varpað í leiðinni ljósi á deilurnar milli hans og Selenskís. Erlent 18. febrúar 2026 13:28
Fær um þrjátíu milljónir í sárabætur frá ríkasta manni Úkraínu Úkraínski sleðakappinn með heimsfræga hjálminn, Vladyslav Heraskevych, fékk ekkert fyrir sinn snúð frá alþjóða Ólympíunefndinni en ríkasti maður Úkraínu ætlar að leggja inn á hann um þrjátíu milljónir króna í sárabætur. Sport 18. febrúar 2026 09:01