Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á Íslandi og fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Fylgst var með heimsókn hans hér á Vísi. Innlent 6. október 2026 07:15
Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Donald Trump segir að hann muni láta eigin pólitíska aðgerðanefnd, svokallaða Super PAC, greiða fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í bandarískum fjölmiðlum á undanförnum vikum. Auglýsingarnar, sem þykja mjög pólitískar í aðdraganda þingkosninga, hafa verið fjármagnaðar af heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna en stofnunum ætti að vera óheimilt að gera slíkar auglýsingar. Erlent 6. október 2026 00:00
Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sveitir ríkisstjórnar Jemen hafa sótt hratt fram gegn Hútum við strendur Rauðahafs. Ríkisstjórnin segist hafa hernumið mestallt það svæði sem Hútar lögðu skyndilega undir sig í síðasta mánuði og mun ríkisstjórnin hafa náð aftur stjórn á Bab el-Mandeb-sundi við suðurenda Rauðahafs. Erlent 5. október 2026 22:28
Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Maður sem birtist eitt sinn í þáttunum American Idol, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína til bana. Caleb Flynn sviðsetti innbrot eftir að hann skaut Ashley Flynn, eiginkonu sína, og hélt því fram að innbrotsþjófur hefði myrt hana. Erlent 5. október 2026 20:57
Rubio lentur á Íslandi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur í Keflavík. Hann segist mættur hingað til að ræða sameinleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna, eins og öryggi á norðurslóðum, efnahagstengsl og varnarsamstarf. Innlent 5. október 2026 17:54
Rubio spenntur að hitta Þorgerði Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segist spenntur fyrir Íslandsheimsókn sinni. Ísland sé góður vinur Bandaríkjanna og einn af stofnmeðlimum Nato. Innlent 5. október 2026 15:13
Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Barnsfaðir Gypsy Rose Blanchard, sem er þekkt fyrir að hafa orðið móður sinni að bana, fannst látinn á heimili sínu fyrir helgi. Lífið 5. október 2026 10:31
Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bandaríkjamenn hafa flutt allar sprengjuflugvélar sínar frá herstöðinni RAF Fairford í Bretlandi en vélunum var flogið til Bandaríkjanna í gær. Bandaríkjamenn hafa flogið sprengjuflugvélum frá herstöðinni til Mið-Austurlanda undanfarna mánuði en í síðustu viku voru fimm menn handteknir grunaðir um hryðjuverk í nágrenni herstöðvarinnar. Erlent 5. október 2026 09:06
Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa stofnað nýja verkefnastjórn sem á að sjá um málefni gervigreindar í Bandaríkjunum. Þetta gerir hann nokkrum dögum eftir að hann undirritaði tilskipun þess efnis að gervigreind myndi frekar bera heitið ofurgreind. Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækja hafa kallað eftir því að hægt verði á þróun gervigreindarinnar af öryggisástæðum. Erlent 5. október 2026 07:17
Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Kona á fertugsaldri var í gær handtekin í Bandaríkjunum, grunuð um njósnir fyrir kínverska ríkið. Á hún að hafa sent myndir af bílum og húsum sem fjölskylda forseta Taívan notaðist við. Erlent 5. október 2026 06:33
Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Lögreglumaður í Flórída í Bandaríkjunum hefur verið sýknaður af manndrápsákæru eftir að hann skaut svartan mann til bana í dyragættinni hjá honum árið 2024. Erlent 4. október 2026 22:28
Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Þann 23. september síðastliðinn rættist langþráður draumur Jónínu Shipp. Þá hlaut hún loksins íslenskan ríkisborgararétt, 67 ára að aldri. Að baki lá áralöng barátta sem hafði meðal annars falið í sér umsókn til Alþingis, samskipti við Útlendingastofnun, fingrafaratöku og sakavottorð frá FBI. Jónína hafði jafnframt um árabil verið með dvalarleyfi sem gilti í fimm ár í senn og reynt að fá formlega staðfestingu á því sem hún hafði sjálf aldrei efast um: Að Ísland væri hennar heimaland. Lífið 4. október 2026 20:02
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Öryggisstjóri gervgreindarfyrirtækisins OpenAI hefur sagt upp störfum og gagnrýnir fyrirtækið fyrir að hafa ekki sýnt nægilega aðgát við þróun tækninnar. Erlent 4. október 2026 16:45
Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla, hefur tjáð sig um hópnauðgun á konu í skólanum árið 2024. Hann segir málið vekja verulegan óhug og hefur heitið því að aðstoða við aukið gagnsæi í ljósi vaxandi reiði vegna meðferðar skólans á málinu. Erlent 4. október 2026 10:30
Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Leitarhópar hafa fundið brak úr sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í gær, laugardaginn 3. október, en sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Enn er leitað að eftirlifendum á svæðinu þar sem brakið fannst en það er undan strönd Nantucket, eyju í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum. Erlent 4. október 2026 07:56
Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Ómar Þór Ómarsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Optise, segir langþráðan draum verða að veruleika í október þegar hann heldur út til Bandaríkjanna sem fulltrúi fyrsta íslenska fyrirtækisins til að taka þátt í Startup Battlefield, sprotakeppni tæknimiðilsins TechCrunch. Viðskipti innlent 3. október 2026 21:00
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Bandaríska strandgæslan leitar nú að sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í dag. Sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Erlent 3. október 2026 17:52
Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Ráðamenn í Sádi-Arabíu eru sagðir skipuleggja stórsókn gegn Hútum í Jemen. Meðal annars kemur til greina að reka Húta frá stöndum Bab el-Mandebsunds, en vera þeirra þar gerir Hútum kleift að loka öðrum enda Rauðahafs. Sóknin yrði leidd af sveitum ríkisstjórnar Jemen, og nyti stuðnings Sáda úr lofti og ráðgjafar og upplýsinga frá Bandaríkjamönnum. Erlent 2. október 2026 22:45
Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til David Ellison, forstjóri Paramount Skydance segir að þegar kaupin á Warner Bros. Discovery ganga í gegn, muni fyrirtækið fá nafnið Skydance. Þannig munu vörumerkin Paramount og Warner heyra sögunni til, eftir að hafa verið áhrifamikil vörumerki í Hollywood í marga áratugi. Viðskipti erlent 2. október 2026 16:27
Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikarinn Michael Douglas hefur loksins gengist við því að hafa átt í leynilegu ástarsambandi með mótleikkonu sinni, Kathleen Turner, þegar þau tóku upp stórmyndina Romancing The Stone í Mexíkó árið 1984. Þau hafa alla tíð neitað fyrir sambandið sem Douglas ljóstrar nú upp um í nýrri ævisögu sinni. Bíó og sjónvarp 2. október 2026 16:04
G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Leiðtogar G7-ríkjanna svokölluðu hafa samþykkt að hleypa hundrað milljónum tunna af hráolíu og olíuafurðum úr neyðarbirgðum sínum á markað. Fyrst verða tuttugu milljónir tunna settar á markaðinn og mun restin fylgja yfir næstu fjóra mánuði. Með þessu er vonast til að lækka megi verð á díselolíu og öðrum olíuafurðum, sem hafa hækkað mikið á undanförnum mánuðum. Viðskipti erlent 2. október 2026 15:14
AGS segir skuldastöðu ríkja þrýsta upp langtímavöxtum Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að vaxandi áhyggjur fjárfesta af mikilli skuldsetningu ríkja eigi þátt í þeirri skörpu hækkun sem orðið hefur á langtímavöxtum á helstu skuldabréfamörkuðum beggja vegna Atlantshafsins. Þrátt fyrir snarpar verðhreyfingar að undanförnu sér sjóðurinn þó ekki merki um óskipuleg viðskipti eða alvarlega röskun á virkni markaðanna. Innherji 2. október 2026 12:40
Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Dómari hefur samþykkt tímabundið nálgunarbann sem franski leikarinn Olivier Martinez fór fram á gegn fyrrverandi eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Halle Berry. Martinez óskaði eftir nálgunarbanninu í kjölfar þess að hafa sakað Berry um að kyrkja tólf ára son þeirra og beita þá feðga áralöngu ofbeldi. Lífið 2. október 2026 10:54
Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, hefur skipað ríkissaksóknara New York sem sérstakan saksóknara til að rannsaka hópnauðgun á konu í Cornell-háskóla árið 2024. Gögn skólans í málinu varpa ljósi á það sem gerðist í aðdraganda þess að konan tilkynnti ofbeldið. Erlent 2. október 2026 09:09
„Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Hin fimmtuga Christa Pike, sem var dæmd til dauðarefsingar árið 1996, er enn á lífi en þó sögð í lífshættu eftir misheppnaða aftöku í gær. Erlent 1. október 2026 23:15
Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Bresk-íranskur ríkisborgari hefur verið handtekinn í Bretlandi þar sem hann er grunaður um að skipuleggja hryðjuverk í tengslum við atvik við RAF Fairford-herstöðina um helgina. Breskir og bandarískir ráðamenn hafa sakað írönsk stjórnvöld um aðkomu að atvikinu en þau þvertekið fyrir það. Erlent 1. október 2026 19:01
Marco Rubio á leið til Íslands Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands í næstu viku eftir að hafa þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn. Hans má vænta hinn 5. október en að því loknu heldur Rubio til Grikklands og Portúgal. Innlent 1. október 2026 18:07
Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum. Erlent 1. október 2026 16:01
Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Rapparinn Lil Wayne hefur staðfest að hann sé trúlofaður 23 ára áhrifavaldinum Madison Cannon en 21 ár skilur parið að. Dægurmálamiðlar fjölluðu um trúlofunina fyrr á árinu en rapparinn þvertók fyrir það í sumar og sagði leiðir hafa skilið hjá parinu. Lífið 1. október 2026 12:13
Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Ríkisstjórn Donalds Trump er að sniðganga nokkra mikilvæga bandamenn Bandaríkjanna og evrópsk hergagnafyrirtæki fyrir fund sem halda á í mánuðinum. Fundurinn á að snúast um framtíð Atlantshafsbandalagsins en mörgum af þeim aðildarríkjum sem verja hvað mestu til varnarmála hefur ekki verið boðið á hann. Erlent 1. október 2026 11:14