Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Helsti herbloggari Rúss­lands hand­tekinn í Svart­fjalla­landi

Mikhail Zvinchuk, einn helsti herbloggari Rússlands og stofnandi áhrifamikils miðils sem kallast Rybar, var handtekinn í Svartfjallalandi í morgun. Forsætisráðherra landsins segir hann hafa verið handtekinn eftir viðvaranir um tilraunir til að grafa undan stöðugleika í Svartfjallalandi.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fjár­festi í SpaceX og hóf svo á­tak sem gæti hagnast fyrir­tækinu

Tveimur dögum áður en hann hóf sérstakt átak í því að draga úr reglugerðum varðandi geimferðir einkafyrirtækja og kallaði eftir ríkisstuðningi við slík fyrirtæki, keypti Donald Trump skuldabréf SpaceX fyrir allt að fimm milljónir dala. Hann keypti einnig hlutabréf í Meta fyrir allt að 25 milljónir dala en í heildina framkvæmdi hann 517 viðskiptagjörninga í ágúst.

Erlent
Fréttamynd

Maður skotinn af full­trúum ICE í New York

Fulltrúar bandarísku innflytjenda- og tollgæslustofnunarinnar, þekktir sem ICE, skutu mann í New York-borg í gær. Borgarstjóri New York gagnrýnir atvikið og vill að bundinn verði endi á aðgerðir ICE í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Er Skúli Mog að selja túr­istum niður­greitt kornsíróp?

Árið er 1973. Matvælaverð í Bandaríkjunum fer óðum hækkandi. Richard Nixon bregst við með ríkisstuðningi við landbúnað. Bændur eru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfir – eða „frá einni girðingu að þeirri næstu“ eins og landbúnaðarráðherra hans orðar það. Ívilnunin dregur hins vegar dilk á eftir sér.

Lífið
Fréttamynd

Margaret Hamilton er látin

Margaret Hamilton, tölvunarfræðingurinn sem stóð að baki rannsóknum sem áttu þátt í að koma fyrsta manninum til tunglsins, er látin. Hún varð níutíu ára gömul.

Erlent
Fréttamynd

Ráð­herra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðar­fjall

Eigendur jarðarinnar Eiðis á Langanesi hafa í hálfa öld staðið í baráttu fyrir því að mengun eftir herstöðina á Heiðarfjalli verði hreinsuð upp. Á ýmsu hefur gengið, meðal annars varð ráðherra svo reiður vegna erindis þeirra að hann lét henda þeim út af ráðherraskrifstofunni. Þeir ætla samt ekki að gefast upp.

Innlent
Fréttamynd

Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“

Donald Trump sagði í dag að forverar hans, þeir Joe Biden og Barack Obama, hefðu gert „mjög slæma hluti“ og að hann hefði getað látið rannsaka þá og Hillary Clinton, sem hann sigraði í forsetakosningunum 2016. Það hafi hann ekki gert vegna þeirrar virðingar sem hann segist bera fyrir forsetaembættinu.

Erlent
Fréttamynd

Skuld­settustu ríkin geta ekki lengur slegið aðhaldsað­gerðum á frest

Skuldsettar þjóðir geta ekki lengur treyst á að hagvöxtur einn og sér leysi vanda ríkisfjármálanna, að mati framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hún hvetur stjórnvöld til að hemja útgjaldavöxt og móta trúverðugar áætlanir um lækkun skulda til að draga úr verðbólgu og þrýstingi á vexti.

Innherji
Fréttamynd

Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu

Michael Douglas hefur gengist við enn einu framhjáhaldi í markaðsherferðinni fyrir nýja ævisögu sína. Nýverið greindi leikarinn frá því að hann hefði haldið framhjá fyrri eiginkonu sinni, Diöndru Luker, með leikkonunni Kathleen Turner. Í ævisögunni kemur fram að Douglas hafi líka haldið framhjá Luker með leikkonunni Jean Tripplehorn við tökur á kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi

Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni til landsins, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna á varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland.

Innlent
Fréttamynd

Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu

Bandarísk stjórnvöld segja fátt um svör frá Rússum vegna andláts rússneskrar konu sem starfaði á rannsóknarstofu í Síberíu og sögð er hafa látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Bandarískir miðlar hafa greint frá því að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætli að herða leit sín að svörum frá þeim rússnesku og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagst munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið.

Erlent
Fréttamynd

Eva Marie Saint er látin

Eva Marie Saint, leikkona og Óskarsverðlaunahafi, lést af náttúrulegum orsökum á heimili sínu. Hún var 102 ára.

Lífið
Fréttamynd

Endur­greiðir ekki ríkinu fyrir aug­lýsingarnar um­deildu

Donald Trump ætlar ekki að endurgreiða bandaríska ríkinu fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í sjónvarpi vestanhafs. Í gær sagði forsetinn að pólitísk aðgerðanefnd hans, MAGA Inc, myndi greiða fyrir auglýsingarnar sem hafa verið harðlega gagnrýndar, þar sem þær hafa verið fjármagnaðar með skattfé og þykja mjög pólitískar.

Erlent
Fréttamynd

Komin til með­vitundar eftir mis­heppnaða af­töku

Christa Pike er vöknuð og getur tjáð sig en hún er enn á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tennessee misheppnaðist í síðustu viku. Lögmenn hennar segja enn óljóst hvort hún muni ná bata og segja þeir að hún standi frammi fyrir löngu bataferli, verði ekki aftur reynt að taka hana af lífi.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert leyndar­mál að herinn sé önnum kafinn

Bandaríkjamenn drógu úr aðkomu sinni að varnaræfingu á Íslandi vegna þess að herinn var önnum kafinn annars staðar í heiminum, að sögn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna. „Ég held að þetta sé ekki varanleg ákvörðun,“ sagði hann á blaðamannafundi í Reykjavík í dag.

Innlent
Fréttamynd

Greinir skýran vilja til meira sam­starfs

Ráðamenn vestanhafs hafa sýnt skýran vilja til að efla samstarf Bandaríkjanna og Íslands enn frekar. Þetta segist Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hafa fundið vel eftir fundi hennar með Donald Trump, forseta, og Marco Rubio, utanríkisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Engar leyni­skyttur gættu Ru­bio

Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni.

Innlent
Fréttamynd

Barnaspítalabindi Billy stal senunni

William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann bar enn einu sinni óvenjulegt og litríkt bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að full­veldi Ís­lands“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum.

Innlent
Fréttamynd

Rubio farinn af landi brott

Heimsókn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands er lokið en hann flaug af landi brott um hádegisbil í dag. Rubio heldur ferðalagi sínu um Evrópu áfram og mun á næstu dögum funda með ráðamönnum bæði í Portúgal og Grikklandi.

Innlent
Fréttamynd

Rubio: Ís­land í miðjunni

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta af­takan með af­töku­sveit frá stríðs­lokum

Bandaríska varnarmálaráðuneytið segist ætla að taka fyrrverandi majór í hernum sem framdi mannskæða skotárás í herstöð af lífi með aftökusveit. Þetta verður í fyrsta skipti sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Erlent