Akureyringur gafst ekki upp og hafði betur gegn flugrisa Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið EasyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur. Neytendur 28.7.2026 16:55
Senda norðlenskt rusl úr landi Íslenska gámafélagið opnaði fyrr á árinu stóra endurvinnslustöð á Akureyri þaðan sem sorp, sem áður var urðað, er sent til húsaupphitunar í Danmörku. Þá er gler notað í malbik. Innlent 27.7.2026 22:01
Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Sjúkraflugferðum hefur fjölgað umtalsvert á milli ára en slökkviliðsstjóri á Akureyri segir ástæðurnar vera margar. Það hafi hátt í níutíu flugferðir verið skráðar það sem af er liðnum júlímánuði, sem sé met, en gott veður víða um land, ferðamannastraumur og minni heilbrigðisþjónusta í boði á landsbyggðinni sé meðal þess sem valdi miklum fjölda ferða. Það sé nauðsynlegt að auka fjármagn til að tryggja góða þjónustu. Innlent 25.7.2026 18:07
Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Nú liggja fyrir lög um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Markmið einföldunar eru oft góð og gild. Hins vegar vakna spurningar um hvort verið sé að veikja úrræði sveitarfélaga og eftirlitsaðila á sama tíma og vandamál vegna slæmrar umgengni fara vaxandi. Skoðun 17. júlí 2026 11:02
Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Slasaður hjólreiðamaður sem sóttur var í Glerárdal við Akureyri í gærkvöldi er látinn. Innlent 17. júlí 2026 10:41
Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hernámsins á Akureyri á tímum síðari heimsstyrjaldar er minnst með nýrri sýningu Minjasafns bæjarins. Forsvarsmenn sýningarinnar þurftu að vera frumlegir við uppsetninguna þar sem margar minjar höfðu glatast. Innlent 16. júlí 2026 21:11
Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Slasaður maður var fluttur undir læknishendur með sjúkraflugi á níunda tímanum í dag en þyrla Landhelgisgæslunnar og allar björgunarsveitir í Eyjafirði voru kallaðar út. Innlent 16. júlí 2026 21:08
Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Mótorhjólakappinn Ómar Geirsson varð var við bilun í fornhjólinu sínu á leið heim frá Akureyri en stuttu seinna fór að rjúka undan hjólinu að aftan. Mótorhjólið brann til kaldra kola fyrir augunum á honum en hann hafði keypt það skömmu áður og var nýkominn með það úr ástandsskoðun. Innlent 15. júlí 2026 22:24
Ljóðrænt hótel á Akureyri Íslensk ljóðlist er í hávegum höfð á nýju hóteli í miðbæ Akureyrar. Handskrifuð ljóð og bréf frá Davíði Stefánssyni prýða veggi hótelsins. Lífið 14. júlí 2026 20:00
„Þetta mun breyta öllu fyrir okkur“ KA mun vígja nýja stúku síðar í mánuðinum og eftir ár verður ásýnd svæðisins orðin allt önnur. Sport 14. júlí 2026 09:31
Krummafótur um helgina Sviðslistahátíðin Krummafótur fer fram í fyrsta sinn á Akureyri um helgina. Um er að ræða grasrótarhátíð og fer opnunarhátíðin fram heima hjá stofnanda hátíðarinnar. Lífið 10. júlí 2026 16:27
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Viðbragðsáætlun var virkjuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri í dag vegna fjarskiptavanda. Innlent 6. júlí 2026 09:57
„Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Yfirlögregluþjónn á Vesturlandi er sáttur eftir tónlistarhátíðina Lopapeysuna sem fór fram á Akranesi um helgina. Gönguhópar skiluðu sínu. Innlent 5. júlí 2026 13:54
„Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Fjórir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir á Akureyri vegna stórfelldrar líkamsárásar í gærkvöldi. Tveir voru fluttir á bráðamóttökuna með beinbrot. Innlent 4. júlí 2026 17:10
„Klukkan er fimm einhvers staðar“ Pollamótið hófst með pompi og prakt á Akureyri í dag. Elstu keppendurnir eru á sextugs- og sjötugsaldri en sumir voru ekki með hugann endilega við boltann. Lífið 3. júlí 2026 20:44
Bylgjulestin fer norður á morgun Bylgjulestin brunar nú til Akureyrar og verður í beinni útsendingu á morgun milli klukkan 12 og 16 á Pollamótinu og N1 mótinu. Lífið samstarf 3. júlí 2026 10:59
Skilur eftir minningar alveg eins og leikurinn Tvö þúsund strákar í fimmta flokki í fótbolta munu keppa á N1-mótinu á Akureyri um helgina. Mótið hófst í dag og bærinn er fullur af fólki. Framkvæmdastjóri íþróttafélagsins KA segir mótið fara mjög vel af stað og minningarnar verði ekki síður til utan vallar. Fótbolti 1. júlí 2026 20:32
Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Skóflustunga vegna byggingar á nýrri álmu við Sjúkrahúsið á Akureyri, SAk er mikið fagnaðarefni. Með því hefst framkvæmdin formlega og eru það tímamót sem lengi hefur verið stefnt að og marka upphafið að einu mikilvægasta heilbrigðisverkefni á landsbyggðinni. Skoðun 28. júní 2026 13:32
Hætta á að námsframboð dragist saman Bæjarstjóri Akureyrar segir eftirspurn eftir námi í bænum meiri en kerfið ræður við. Ríkið þurfi að grípa til aðgerða og styðja við menntastofnanir bæjarins. Hætta sé á að námsframboð dragist saman. Innlent 27. júní 2026 17:16
Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Vísindaskóli unga fólksins á Akureyri er hápunktur sumarsins hjá mörgum en hann er fyrir börn á aldrinum ellefu til þrettán ára. Ýmis námskeið eru á boðstólum og í ár fengu krakkarnir fræðslu um jafnréttismál, málefni norðurslóða, sorpmál og margt fleira. Innlent 25. júní 2026 23:45
Sálin tekin úr skólunum Ræða Karls Frímannssonar, skólameistara Menntaskólans á Akureyri, við útskrift skólans 17. júní sl. hefur vakið mikla athygli. Skoðun 25. júní 2026 07:01
Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Tekjur samstæðu Samherja námu 78,4 milljörðum króna á síðasta ári og nam hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára. Viðskipti innlent 23. júní 2026 14:26
Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Erilsamri viku er nú lokið á Akureyri en þar höfðu síðustu daga farið fram Bíladagar, útskriftir úr mennta- og háskóla með tilheyrandi veisluhaldi, mótorhjólahittingur og fleira. Aðalvarðstjóri segir þrjú alvarleg ofbeldisbrot hafa verið tilkynnt til lögreglu. Innlent 23. júní 2026 10:46
Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Á þessum árstíma fyllast samfélagsmiðlar af færslum og myndum af útskriftum og fagnaðarstundum. Þá minnir einnig Júbilantahátíð Menntaskólans á Akureyri okkur árlega á þann mikilvæga sess sem menntun hefur í sögu bæjarins og lífi þúsunda Íslendinga. Skoðun 23. júní 2026 08:02