Skoðun

Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja

Ingrid Kuhlman skrifar

Sumir sjúkdómar valda svo miklum líkamlegum, andlegum og tilvistarlegum þjáningum að hugmyndin um friðsæl lífslok verður fjarlæg. Þrátt fyrir framfarir í líknarmeðferð eru til aðstæður þar sem afar erfitt reynist að lina þjáningar með þeim hætti sem sá sem þjáist telur ásættanlegan.

Þetta er ein ástæða þess að fjölmargar þjóðir hafa gert dánaraðstoð að löglegum valmöguleika. Ísland er ekki í hópi þeirra landa. Hér er dánaraðstoð ekki heimil, en líknarslæving er eitt þeirra úrræða sem hægt er að beita þegar önnur meðferð dugar ekki til að lina þjáningar. Þá er meðvitundarstig sjúklings lækkað með lyfjum eða honum haldið sofandi til að lina þjáningar. Meðferðin getur verið allt frá vægri slævingu til djúprar og samfelldrar slævingar fram að andláti.

Markmið líknarslævingar er að lina óviðráðanlegar þjáningar, ekki að flýta fyrir andláti. Í því felst grundvallarmunurinn á líknarslævingu og dánaraðstoð, sem hefur það að markmiði að binda enda á líf einstaklings að hans upplýstu og sjálfviljugu beiðni.

Þegar sjúklingi er haldið í djúpri og samfelldri slævingu fram að andláti getur hann ekki lengur átt meðvituð samskipti við ástvini sína eða tekið þátt í frekari ákvörðunum um meðferð. Sumum kann að þykja það ásættanlegt til að losna undan óbærilegum þjáningum, öðrum ekki.

Hvers vegna ætti dánaraðstoð ekki að koma til greina að upplýstri og einlægri beiðni deyjandi einstaklings, ef talið er siðferðilega réttlætanlegt að halda honum sofandi fram að andláti til að lina óbærilegar þjáningar?

Sjálfræði og upplýst samþykki sjúklinga

Í endurskoðuðum leiðbeiningum um líknarslævingufrá Evrópusamtökum um líknarmeðferð (EAPC) árið 2024 er lögð sérstök áhersla á sjálfræði sjúklinga, upplýst samþykki og að dýpt slævingar miðist við þjáningar hvers og eins. Ákvörðun um vökvagjöf á jafnframt að vera sjálfstæð meðferðarákvörðun, ekki sjálfvirk afleiðing líknarslævingar.

En hvernig tryggjum við að vilji sjúklings liggi fyrir áður en hann missir getu til að tjá sig?

Samkvæmt íslenskri rannsókn sem birtist í Læknablaðinu árið 2025höfðu aðeins 9% svarenda heyrt um skipulögð samtöl um framtíðina og meðferðarmarkmið. Rúmlega 3% höfðu fengið tækifæri til að ræða óskir sínar um framtíðarmeðferð og umönnun og 55% höfðu aldrei hugleitt að skrá óskir um lífslok.

Rannsóknin var gerð meðal almennings en niðurstöðurnar vekja mikilvægar spurningar um hversu vel við undirbúum ákvarðanir um meðferð við lífslok. Þegar óskir hafa hvorki verið ræddar né skráðar geta aðstandendur og heilbrigðisstarfsfólk þurft að taka erfiðar ákvarðanir án þess að þekkja vilja einstaklingsins.

Alvarleg veikindi eiga ekki að svipta fólk sjálfræði. Þess vegna er mikilvægt að samtöl um meðferðarmarkmið og óskir við lífslok fari fram tímanlega, meðan einstaklingurinn getur sjálfur tekið þátt í þeim.

Aðstandendur þurfa líka upplýsingar og stuðning

Lífsvirðingu berast reglulega frásagnir frá aðstandendum sem lýsa erfiðri reynslu af síðustu dögum ástvina sinna. Sumir segja frá óróleika, angist og ófullnægjandi verkjastillingu. Aðrir lýsa vanmætti yfir því að hafa ekki skilið til fulls hvað meðferðin fæli í sér eða hversu lengi hún gæti staðið. Frásagnirnar sýna ekki einar og sér að rangt hafi verið staðið að meðferðinni, en þær undirstrika mikilvægi góðra upplýsinga, skýrra samskipta og stuðnings við aðstandendur.

Í febrúar 2026 birtist alþjóðleg yfirlitsrannsókn í tímaritinu BMC Palliative Care sem tók saman niðurstöður ellefu rannsókna um reynslu 1.061 aðstandanda sjúklinga sem fengu líknarslævingu. Niðurstöðurnar sýndu að þótt líknarslæving gæti veitt sjúklingum líkn og aðstandendum hugarró gat henni einnig fylgt verulegt tilfinningalegt álag, sem jókst eftir því sem slævingin stóð lengur. Aðstandendur lýstu meðal annars óvissu um líðan sjúklingsins og áhyggjum af því hvort tekist hefði að lina þjáningar hans. Skýrar upplýsingar og gott samband við heilbrigðisstarfsfólk reyndust afar mikilvæg.

Hvernig er framkvæmd líknarslævingar háttað á Íslandi?

Niðurstöðurnar vekja spurningar um líknarslævingu hér á landi. Hversu margir sjúklingar fá djúpa og samfellda líknarslævingu árlega og hversu lengi stendur meðferðin að jafnaði? Hvernig er tryggt að vilji sjúklings liggi fyrir og hver tekur ákvörðun þegar hann getur ekki lengur tjáð sig? Hvaða verklagsreglur gilda um framkvæmdina, hvernig er fylgst með líðan sjúklinga og hver hefur eftirlit með því að reglunum sé fylgt?

Ef við teljum mikilvægt að dánaraðstoð lúti skýrum reglum og sjálfstæðu eftirliti ættum við einnig að leggja ríka áherslu á gagnsæi, samræmt verklag og vandaða framkvæmd líknarslævingar. Hún hefur enda afgerandi áhrif á síðustu daga og stundir manneskju.

Rétturinn til að velja

Í umræðunni er stundum stillt upp tveimur valkostum, annars vegar góðri líknarmeðferð og hins vegar dánaraðstoð, eins og annað útiloki hitt. En hvers vegna ætti það að vera svo?

Líknarmeðferð er ómissandi þáttur í heilbrigðisþjónustu og líknarslæving getur verið nauðsynleg þegar önnur úrræði duga ekki. Dánaraðstoð svarar hins vegar annarri þörf, ósk einstaklings um að fá að ljúka lífi sínu á eigin forsendum þegar hann glímir við óbærilegar þjáningar vegna ólæknandi sjúkdóms eða ástands.

Þetta snýst því ekki um að gera lítið úr mikilvægi líknarmeðferðar eða líknarslævingar. Spurningin er hvort einstaklingar eigi að hafa fleiri valkosti þegar þjáningar verða óbærilegar og þeir telja önnur úrræði ekki samræmast eigin óskum og gildismati.

Lögleiðing dánaraðstoðar myndi ekki svipta neinn réttinum til líknarmeðferðar eða líknarslævingar. Hún myndi hins vegar bæta við valkosti fyrir þá sem uppfylla ströng skilyrði og óska sjálfir eftir slíkri aðstoð. Engin ein leið hentar öllum.

Samkvæmt könnun Maskínu fyrir Lífsvirðingu í mars 2026 eru 73,3% Íslendinga hlynntir því að einstaklingar geti fengið dánaraðstoð við ákveðnar aðstæður og aðeins 9% eru andvíg.

Þótt dánaraðstoð sé lögleg í fjölmörgum löndum og fylkjum er hún aðeins hluti allra andláta. Hlutfallið er mjög mismunandi eftir löndum og lagalegu fyrirkomulagi. Á Spáni var það 0,13% árið 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum, í Hollandi 5,97% sama ár og í kanadíska fylkinu Québec 7,9% á tímabilinu 1. apríl 2024 til 31. mars 2025.

Virðing fyrir mannlegri reisn felst ekki aðeins í því að lina þjáningar, heldur einnig í því að hlusta á þann sem þjáist. Þegar kemur að síðustu stundum lífsins ætti rödd sjúklingsins að vega þyngst.

Höfundur er formaður Lífsvirðingar.




Skoðun

Sjá meira


×