Innlent

Hafi ráðist á sam­býlis­konu sína á Tenerife

Árni Sæberg skrifar
Frá Tenerife. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Frá Tenerife. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Getty/Walter Bibikow

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa á endurtekinn hátt ógnað lífi, heilsu og velferð barnsmóður sinnar og þáverandi og síðar fyrrverandi sambýliskonu árið 2024. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa ráðist á konuna á hótelherbergi á Tenerife, sent henni ærumeiðandi skilaboð um ætlað framhjáhald hennar og að hafa stolið öllum dekkjum undan bíl hennar.

Í ákærunni, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í dag, segir að maðurinn hafi í janúar 2024 á hótelherbergi á Tenerife veist með ofbeldi að konunni með því að beita líkamsþunga sínum gegn henni og setjast klofvega yfir hana, setja hné sín yfir hendur hennar og halda henni þannig fastri í gólfinu, kýlt hana margsinnis í andlitið ásamt því að hafa tekið hana kyrkingartaki þannig að hún náði ekki andanum. 

Allt hafi þetta verið með þeim afleiðingum að konan hlaut áverka víðs vegar um líkamann, mar og bólgu í andliti við vinstra auga, mar víðs vegar á báðum handleggjum, áverka á hálsi og mar víðs vegar á fótunum.

Sendi skilaboð á móður konunnar

Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa viðhaft ærumeiðandi ummæli um konuna með innleggi á ótilgreinda Facebooksíðu, skilaboðum til móður konunnar og skilaboðum til konunnar sjálfrar. Skilaboðin snúast aðallega um ásakanir mannsins í garð konunnar um að hún hafi haldið fram hjá honum.

Meðal ummælanna eru eftirfarandi:

  • „Er litla hóran hjá þér Til hamingju að hafa eignast svo ógeðslegt eintak sem ríður endalaust framhjá maka sínum“
  • „Innilega til hamingju með daginn elska og takk fyrir að koma hreint fram við mig áðan með að þú sért búin að vera að ríða […] undanfarið en njótið Ég veit hvað ég hef misst og ég veit hvað hann fékk [hlægjandi lyndistákn]“
  • „Ég ætla að láta þig vita Þú ert ógeðslegasta manneskja sem ég hef kynnst Annan eins viðbjóð hef ég ekki kynnst og þekki ég marga ræflana Þú rændir öllu af heimilinu þu stalst peningum af mér Þú varst alltaf að halda framhjá mér...“

Skemmdi farandbikar og stal dekkjum

Maðurinn er einnig ákærður fyrir eignaspjöll á munum í eigu konunnar, meðal annars fötum, höttum, málverkum og farandbikar, sem hún hafði til umráða.

Loks er hann ákærður fyrir þjófnað í þremur liðum en hann er sagður hafa stolið fjórum hjólbörðum ásamt felgum undan bíl konunnar, einni rúðuþurrku af bíl hennar og loks einum hjólbarða og einni felgu undan bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×