Innlent

Birti ekki dánartilkynninguna: „Ég myndi aldrei eyða fjöru­tíu þúsund krónum í þetta“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Íris Helga Jónatansdóttir mætti fyrir dóm í dag.
Íris Helga Jónatansdóttir mætti fyrir dóm í dag. Vísir

Íris Helga Jónatansdóttir, sem er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, neitar því að hafa staðið fyrir birtingu falskrar dánartilkynningar. Hún játaði í örfáum liðum en gagnrýndi rannsókn lögreglunnar og dró gögnin í efa.

Aðalmeðferð yfir Írisi Helgu hófst í morgun. Um er að ræða afar umfangsmikla ákæru og fer allur fyrsti dagurinn í skýrslutöku þar sem hver ákæruliður er tekinn fyrir. Ákæruliðirnir eru 68 talsins.

Þriðji hluti ákærunnar sneri að meintri framkomu hennar gagnvart Sölva Guðmundssyni og dóttur hans. Sölvi hefur þegar stigið fram eftir að birt var dánartilkynning í Morgunblaðinu þar sem hann var sagður látinn. 

Íris Helga var handtekin í kjölfarið en þetta gerðist þremur dögum eftir að ákæran var gefin út og því ekki hluti af henni. Hún var samt sem áður spurð út í málið og neitaði sök.

„Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta,“ sagði hún.

Fékk málið á heilann

Íris Helga lýsir því fyrir dómi að hún og Sölvi hafi verið í sambandi í níu mánuði en hún hafi lokið því og hann ekki verið sáttur. Sölvi hafi verið afar upptekinn af hluta málsins sem tekið var fyrir í morgun og varðaði einn mannanna þriggja, sambýliskonu hans og fjölskyldu hennar. 

„Hann fær þetta mál á heilann um áramótin 2023,“ segir hún.

Þá segist hún hafa séð fyrir Sölva, oft oh tíðum lánað honum bílinn sinn og borgað fyrir flest. Sölvi á þá að hafa verið afar ósáttur með sambandsslitin og hótað henni óbeint með skilaboðum sem í stóð „það hættir enginn með mér“. Þá er Íris Helga spurð hvað hann meini.

„Ég sit líklega hérna út af því, því hann sagði það.“

Noti ekki TikTok

Dóttir Sölva er einnig í hópi brotaþola en segir Íris að samband þeirra hafi verið gott. Börn Sölva hafi oft gist hjá henni á meðan sambandið stóð yfir. Þær hafi rætt eitthvað örlítið eftir að sambandinu lauk.

„Hún sakaði mig um að hafa skorið dekk á bílnum hjá pabba hennar, sem var ekki hægt að rekja til mín,“ sagði Íris Helga.

Hluti af ákærunni snýr að því að Íris á að hafa sent á dótturina niðrandi skilaboð um hana sjálfa, föður og móður í gegnum Instagram og TikTok. Íris Helga ítrekar að hún sé ekki með aðgang á TikTok og hafi aldrei notað samfélagsmiðilinn. Þá var hún ekki viss um að Instagram-reikningurinn sem skilaboðin voru send frá væri í hennar eigu.  

Hún þvertekur fyrir að hafa átt í einhverjum samskiptum og segist ekki treysta gögnum frá lögreglunni. Þá séu fleiri sem hafi aðgang að tækjunum hennar en gat hún ekki nefnt nákvæmlega hver.

„Ég treysti engum gögnum,“ sagði hún. „Ég vil fá staðfestingu á því að þetta sé minn eigin reikningur, ég er farin að draga allt í efa.“

Íris Helga svaraði ítrekað við skýrslutökuna að hún væri ekki viss eða myndi ekki eftir tilteknum atburðum. Hún sé með áfallastreituröskun vegna málsins og það hafi áhrif á minni hennar.

Netfangið sást á tölvuskjánum

Annar ákæruliðurinn segir einnig að Íris hafi haft samband við skóla dóttur Sölva í gegnum tölvupóst og sakað hana um áreita drengi innan skólans. Netfangið var undir fölsku nafni og sagði Íris Helga ekki kannast við það. Hún hafi ekki vitað að stúlkan gengi í þann skóla þar sem Íris hafi hjálpað henni að komast inn í annan skóla.

Fyrir dómi lá hins vegar fyrir mynd sem fannst í síma Írisar Helgu af tölvuskjá. Einn flipinn á skjánum hét sama nafni og umrætt netfang sem tölvupósturinn var sendur úr. Einnig var sjálfvirk útfylling notuð fyrir netfangið sex sinnum í tölvu í eigu Írisar. 

Hún var spurð nokkrum sinnum út í þessi gögn.

„Ég treysti ekki gögnunum ykkar, sorry,“ svaraði hún þá heldur hvöss. 

Íris Helga var annars nokkuð róleg og talaði skýrt. Hún setti af og til út á gögn málsins og spurði spurninga en áréttaði dómarinn að hún væri einungis í dómsal til að svara spurningum.

Þurfti að skila föndurdóti

Írisi er einnig gefið að sök að hafa sent skilaboð um að hún væri þunguð og Sölvi væri faðirinn. Hún átti einnig að hafa birt ítrekað efni á samfélagsmiðlum um að hún væri ólétt og að faðirinn myndi ekki fá aðgang að barninu. Hún játar að hafa sagt ósatt um þungunina en neitar því að hafa birt umræddar færslur á samfélagsmiðlum og sent skilaboðin.

Meðal myndanna sem voru birtar var þegar hún gekk með barn árið 2018. Þá benti hún á að það væri sífellt verið að breyta um aðalmynd á reikningnum sem væri eitthvað sem hún gerði ekki.

Hins vegar játaði hún sök í liðnum þar sem hún var sökuð um að fara heim til Sölva og hitt dóttur hans. Þá hafi hún átt leið til Reykjavíkur og verið búin að festa kaup á páskaföndri áður en flosnaði upp úr sambandi þeirra. Það hafi verið hræðileg tilhugsun að dóttir Sölva fengi ekki föndrið. Íris hafi ekki farið inn í húsið heldur afhent föndrið og farið.

Sendi tilkynningu

Að lokum var Íris Helga spurð út í tilkynningu til félags- og skólaþjónustu sveitarfélags um að Sölvi væri að beita dóttur sína ofbeldi. Tilkynningin var send undir fölsku nafni og neitaði Íris Helga því. 

„Ég sendi einu sinni tilkynningu undir mínu eigin nafni,“ sagði Íris.

Hún hafi haft miklar áhyggjur af dótturinni þar sem þær hafi rætt ofbeldi föður hennar og hafi Íris einnig orðið vitni að því. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×