Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar 2. nóvember 2026 12:01 Það hefur ekki farið fram hjá mér hvernig umræðan um kennarastéttina hefur verið undanfarið og get ekki annað en fundið fyrir ákveðnum áhyggjum. Umræða um námsárangur nemenda, veikindafjarvistir kennara, launakjör og jafnvel hæfni þeirra til að sinna starfi sínu. Gagnrýnin er oft hörð og stundum virðist sem heil starfsstétt sé dregin í dilka og henni eignaðar þær áskoranir sem steðja að íslensku skólakerfi. Ekki aðeins vegna þess hvernig talað er um kennara, heldur einnig vegna þeirra skilaboða sem umræðan sendir til fólks sem er að íhuga að leggja fyrir sig kennslu. Ég er á fimmta ári í kennaranámi og stefni á að ljúka kennararéttindum næsta vor. Samhliða náminu hef ég starfað við kennslu og er þetta þriðja árið mitt í starfi. Ég skrifa því ekki aðeins sem nemandi sem horfir inn í framtíðina, heldur einnig sem manneskja sem hefur fengið að kynnast starfinu af eigin raun. Það sem ég hef upplifað hefur fyrst og fremst styrkt mig í þeirri ákvörðun að vilja starfa við kennslu. Á þessum árum hef ég lært gríðarlega mikið, ekki síst af samstarfsfólki mínu og stjórnendum sem ég lít upp til. Ég hef fengið að sjá samheldni, fagmennsku og úthald sem erfitt er að lýsa nema hafa upplifað það sjálfur. Ég hef séð fólk mæta dag eftir dag, takast á við fjölbreyttar áskoranir, finna lausnir og styðja hvert annað, jafnvel þegar aðstæður eru krefjandi. Umfram allt hef ég fengið að sjá hversu miklu máli góður kennari getur skipt í lífi barna og ungmenna. Þess vegna finnst mér erfitt að horfa upp á umræðu þar sem dregið er úr mikilvægi starfsins og kennurum ítrekað lýst sem hluta af vandanum, jafnvel sem vanhæfum til að sinna starfi sínu. Auðvitað á skólastarf að þola gagnrýni. Það er bæði eðlilegt og nauðsynlegt að ræða launakjör, námsárangur og þau verkefni sem skólakerfið þarf að takast á við. En slík umræða þarf að vera heiðarleg og taka mið af heildarmyndinni. Námsárangur verður ekki skilinn frá þeim aðstæðum sem börn búa við, þeim stuðningi sem stendur skólum til boða, mönnun, fjármagni og samfélagslegum breytingum. Veikindafjarvistir verða ekki ræddar af sanngirni án þess að horft sé til vinnuálags og starfsumhverfis. Þá þarf umræða um laun að endurspegla þá ábyrgð, menntun og fagmennsku sem starfið krefst. Það á að benda á það sem betur má fara, ræða kerfislæga vankanta og kalla eftir úrbótum. Kennarar eru ekki hafnir yfir gagnrýni, rétt eins og aðrar starfsstéttir. En það er mikilvægur munur á uppbyggilegri gagnrýni og umræðu sem grefur undan virðingu fyrir heilli starfsstétt. Mér finnst við þurfa að staldra við og spyrja okkur hvaða áhrif þessi umræða hefur á þá sem eru að íhuga kennarastarfið. Hvað hugsar ung manneskja sem sér hvernig talað er um kennara þegar hún veltir fyrir sér kennaranámi? Hvað hugsar kennaranemi sem hefur lokið hluta námsins en á eftir að ljúka kennsluréttindum? Hvað hugsar manneskja sem hefur brennandi áhuga á menntun, börnum og skólastarfi en sér sífellt neikvæða umræðu um starfsvettvanginn sem hún stefnir á? Ég hef áhyggjur af því að við séum að fæla fólk frá kennarastarfinu áður en það fær tækifæri til að kynnast því. Fólk gæti lokið hluta námsins en ákveðið að fara ekki alla leið í réttindin. Ekki endilega vegna þess að áhuginn sé ekki til staðar eða hæfileikana skorti, heldur vegna þess að sífelld neikvæð umræða getur smám saman dregið úr löngun fólks til að velja sér kennslu sem framtíðarstarf. Ef við tölum í sífellu um stéttina með þeim hætti að starfið virðist óaðlaðandi, vanmetið og jafnvel óæskilegt, hvaða skilaboð erum við þá að senda þeim sem eru að íhuga að leggja það fyrir sig? Þetta er ekki eingöngu mál kennara, heldur samfélagslegt málefni og sameiginleg ábyrgð okkar. Við getum ekki ætlast til þess að kennarar leysi allar áskoranir skólakerfisins á sama tíma og dregið er ítrekað úr virðingu fyrir starfi þeirra. Við þurfum að hlúa að þeim sem þegar starfa í skólum og skapa aðstæður þar sem fólk sér framtíð í faginu. Ég óska ekki eftir gagnrýnislausri umræðu um skólastarf. Ég óska eftir sanngjarnari umræðu sem sér bæði áskoranirnar og allt það góða starf sem á sér stað á hverjum einasta degi í skólum landsins. Umræðu sem gerir ráð fyrir að kennarar séu fagfólk með þekkingu, reynslu og vilja til að þróa og bæta starfið. Ég er stolt af því að vera á leið inn í kennarastéttina. Ég er þakklát fyrir það sem ég hef lært, fyrir fólkið sem ég hef fengið að vinna með og fyrir þá reynslu sem hefur mótað mig á þessum þremur árum í starfi. Ég veit að starfið er krefjandi og að það eru mörg verkefni sem þarf að takast á við. En ég veit líka hversu gefandi það getur verið. Það er sú hlið kennarastarfsins sem ég vildi óska að fengi meira rými í samfélagsumræðunni. Við þurfum að geta rætt áskoranir skólakerfisins án þess að grafa undan þeim sem starfa innan þess. Við þurfum að byggja upp traust, sýna fagfólki virðingu og skapa aðstæður þar sem fólk vill starfa í skólum og sjá framtíð sína þar. Ef við viljum að fleiri velji kennarastarfið þurfum við að sýna þeim að þetta sé starf sem samfélagið metur að verðleikum. Því ef við viljum fleiri kennara í framtíðinni þurfum við líka að spyrja okkur hvernig við tölum um þá sem þegar eru til staðar. Það er ekki aðeins á ábyrgð kennara að standa vörð um framtíð skólastarfsins. Það er á ábyrgð okkar allra. Spurningin er ekki aðeins hvernig við tölum um kennara í dag, heldur líka hvers konar skóla við viljum að börnin okkar gangi inn í á morgun. Eyrún Ósk Hjartardóttir, kennaranemi á 5. ári. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun