Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Valur Páll Eiríksson skrifar 31. október 2026 17:55 Michael Carrick fylgdist raunamæddur með tapinu gegn Chelsea í dag. Getty/Adam Davy Michael Carrick, stjóri Manchester United, reiknar með að vera áfram við stjórnvölinn þegar liðið mætir Roma í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn. Hann vildi lítið tjá sig um rauða spjaldið sem Lisandro Martínez fékk í 2-0 tapinu gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Carrick sagði margt jákvætt hafa verið í gangi í fyrri hálfleik enda skapaði United sér þá dauðafæri en eftir markalausan fyrri hálfleik var Chelsea mun beittara í seinni hálfleik og vann 2-0. Klippa: Carrick niðurlútur eftir tap gegn Chelsea Segja má að úrslitin hafi verið ráðin á 64. mínútu þegar Martínez fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt og Cole Palmer skoraði úr vítaspyrnunni sem dæmd var vegna brots Argentínumannsins. „Við komumst ekki almennilega í gang í seinni hálfleik. Auðvitað hefðum við átt að vera yfir eftir fyrri hálfleik, mér fannst allt vera eins jákvætt og við gátum vonast eftir og við hefðum getað skapað fleiri færi með betri lokasendingum. Við litum mjög hættulega út og vorum á góðum stað þegar við fórum inn í hálfleik en fundum leið til að klúðra því í seinni hálfleik. Auðvitað slæmt mark að fá á sig og svo vítaspyrnan, og þá vorum við komnir í mjög erfiða stöðu á þeim tímapunkti, þannig að þetta snerist algjörlega við,“ sagði Carrick. Hann tók ekki undir að sjálfstraustið væri vandamál og að menn hefðu hengt haus eftir fyrra mark Chelsea: „Ég held að menn hangi ekki haus. Það er ekki hægt að fela þá staðreynd að við höfum ekki unnið nógu marga leiki. Strákarnir voru á góðum stað í byrjun og það sást á frammistöðunni á svo margan hátt. En þeir slógu fyrsta höggið í seinni hálfleik og að lokum réð það úrslitum,“ sagði Carrick. En hvað fannst honum um vítaspyrnudóminn og rauða spjaldið? „Ég hef ekki skoðað það, satt best að segja, þannig að ég hef ekki séð það,“ sagði Carrick en fannst honum Martínez bregðast honum með framgöngu sinni? „Nei.“ Stuðningsmenn sungu nafn Carricks í lok leiks en aftur var baulað á leikmenn United. Carrick vonast hins vegar til að liðið geti byggt ofan á góðan fyrri hálfleik og segist reikna með að stýra liðinu gegn Roma á þriðjudaginn. „Það eru miklar tilfinningar, við erum frábært knattspyrnufélag en við viljum vinna fótboltaleiki. Stuðningsmenn koma og eins og ég hef sagt margoft þá leggja þeir mikið á sig og borga mikla peninga til að koma og horfa á okkur spila. Það sást í dag að strákarnir voru í réttum gír. Hugurinn var á réttum stað en hlutirnir hafa fallið gegn okkur og þetta fór hratt úr böndunum. Þannig að það eru miklar tilfinningar í gangi núna.“
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira