Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar 31. október 2026 10:32 Það er einkennileg byggðastefna sem birtist í því að gera fólki sífellt erfiðara fyrir að búa úti á landi. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur mótmælt harðlega fyrirhugaðri fækkun flugferða til og frá Vopnafirði, úr fimm ferðum á viku í þrjár. Það er ekki minniháttar breyting heldur 40% skerðing á þjónustu sem íbúar treysta á. Fyrir samfélag sem býr við miklar vegalengdir frá t.d. opinberri þjónustu og takmarkað úrval samgöngukosta skiptir slíkt verulegu máli. Það vekur jafnframt athygli að fækkunin skuli meðal annars rökstudd með nýtingu flugsins, þó auðvitað þurfi að fara vel með opinbert fé en þegar um er að ræða ríkisstuddar almenningssamgöngur hlýtur spurningin að vera stærri en einfaldlega hversu mörg sæti eru seld í hverri ferð. Tilgangurinn með slíkum stuðningi er einmitt að tryggja samgöngur þar sem markaðurinn einn og sér stendur ekki undir þeirri þjónustu sem samfélagið þarf á að halda. Ef opinberar ákvarðanir eru teknar eingöngu út frá kostnaði á hvern farþega er hætt við að niðurstaðan verði alltaf sú sama: Þjónustan minnkar þar sem fæst er fólkið. Síðan er svo hægt að benda á fækkun farþega í kjölfarið sem rök fyrir enn frekari niðurskurði. Þannig verður til vítahringur sem gerir landsbyggðinni smám saman erfiðara fyrir. Það er ekki hlutverk almenningssamgangna að þjóna aðeins þeim stöðum þar sem þær skila mestum fjárhagslegum arði. Þær eiga líka að tryggja fólki raunhæfan möguleika á að sækja vinnu, nám, heilbrigðisþjónustu og aðra nauðsynlega þjónustu, óháð því hvort það býr í Reykjavík eða á Vopnafirði. Til samanburðar má benda á að nýting Strætó á höfuðborgarsvæðinu er einungis um 5% og mætti því með sömu rökum leggja til fækkun ferða, eða hvað? Nei, það myndi væntanlega ekki mælast vel fyrir. En gilda einhver önnur lögmál ef áhrifasvæðið er bara nógu langt frá Reykjavík líkt og Vopnafjörður eða Húsavík? Slík viðhorf koma í það minnsta reglulega fram í aðgerðum stjórnvalda og hafa gert um árabil. Fækkun flugferða er ekki bara breyting á flugtímaáætlun heldur er hún líka ákvörðun um þjónustustig og þar með um búsetuskilyrði fólks. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur krafist þess að fimm flugferðir á viku verði áfram tryggðar og að haft verði raunverulegt samráð við sveitarfélagið áður en ákvörðun er tekin. Það er eðlileg krafa. Byggðafesta verður ekki tryggð með fallegum orðum í stefnuskjölum. Hún verður að sjást í ákvörðunum og verkum stjórnvalda. Byggðastefnu núverandi ríkisstjórnar mætti allt eins kalla höfuðborgarstefnu. Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Það er einkennileg byggðastefna sem birtist í því að gera fólki sífellt erfiðara fyrir að búa úti á landi. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur mótmælt harðlega fyrirhugaðri fækkun flugferða til og frá Vopnafirði, úr fimm ferðum á viku í þrjár. Það er ekki minniháttar breyting heldur 40% skerðing á þjónustu sem íbúar treysta á. Fyrir samfélag sem býr við miklar vegalengdir frá t.d. opinberri þjónustu og takmarkað úrval samgöngukosta skiptir slíkt verulegu máli. Það vekur jafnframt athygli að fækkunin skuli meðal annars rökstudd með nýtingu flugsins, þó auðvitað þurfi að fara vel með opinbert fé en þegar um er að ræða ríkisstuddar almenningssamgöngur hlýtur spurningin að vera stærri en einfaldlega hversu mörg sæti eru seld í hverri ferð. Tilgangurinn með slíkum stuðningi er einmitt að tryggja samgöngur þar sem markaðurinn einn og sér stendur ekki undir þeirri þjónustu sem samfélagið þarf á að halda. Ef opinberar ákvarðanir eru teknar eingöngu út frá kostnaði á hvern farþega er hætt við að niðurstaðan verði alltaf sú sama: Þjónustan minnkar þar sem fæst er fólkið. Síðan er svo hægt að benda á fækkun farþega í kjölfarið sem rök fyrir enn frekari niðurskurði. Þannig verður til vítahringur sem gerir landsbyggðinni smám saman erfiðara fyrir. Það er ekki hlutverk almenningssamgangna að þjóna aðeins þeim stöðum þar sem þær skila mestum fjárhagslegum arði. Þær eiga líka að tryggja fólki raunhæfan möguleika á að sækja vinnu, nám, heilbrigðisþjónustu og aðra nauðsynlega þjónustu, óháð því hvort það býr í Reykjavík eða á Vopnafirði. Til samanburðar má benda á að nýting Strætó á höfuðborgarsvæðinu er einungis um 5% og mætti því með sömu rökum leggja til fækkun ferða, eða hvað? Nei, það myndi væntanlega ekki mælast vel fyrir. En gilda einhver önnur lögmál ef áhrifasvæðið er bara nógu langt frá Reykjavík líkt og Vopnafjörður eða Húsavík? Slík viðhorf koma í það minnsta reglulega fram í aðgerðum stjórnvalda og hafa gert um árabil. Fækkun flugferða er ekki bara breyting á flugtímaáætlun heldur er hún líka ákvörðun um þjónustustig og þar með um búsetuskilyrði fólks. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur krafist þess að fimm flugferðir á viku verði áfram tryggðar og að haft verði raunverulegt samráð við sveitarfélagið áður en ákvörðun er tekin. Það er eðlileg krafa. Byggðafesta verður ekki tryggð með fallegum orðum í stefnuskjölum. Hún verður að sjást í ákvörðunum og verkum stjórnvalda. Byggðastefnu núverandi ríkisstjórnar mætti allt eins kalla höfuðborgarstefnu. Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi.
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun