„Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 31. október 2026 10:01 Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og stoðsviða hjá Kaldvík, segist algjör sökker fyrir vondu molunum í Mackintosh og heiðarlegri rauðri kók. Ólöf vill líka helst borða skúffukökukremið bara eintómt. Vísir/Anton Brink Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og stoðsviða hjá Kaldvík, segir orðatiltækið sitt „að sofna á sig“ umdeilt á heimilinu en stendur föst á sínu. Undanfarið hefur fjölskyldan átt notalegar stundir við eldhúsvaskinn á morgnana.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna eins og klukka, yfirleitt á milli sjö og hálfátta, og það skiptir litlu máli þótt ég reyni að sofa út, líkaminn er einfaldlega tilbúinn í daginn þá. Um helgar eru krakkarnir mínir á æfingum sem byrja yfirleitt á milli átta og níu, bæði laugardaga og sunnudaga, þannig að það er lítill tími til að hanga uppi í rúmi. Ég er líka hreint ömurleg í að slaka á og vil helst alltaf vera að skottast í einhverju. Þar að auki er ég mikið á ferðinni milli landshluta vegna vinnu og því byrja sumir dagar strax klukkan hálfsex til að ná innanlandsflugi eða leggja af stað í akstur austur eða norður á Akureyri.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Morgnarnir hjá mér hefjast á hefðbundinni fjölskyldurútínu. Hundinum er hent út í garð að pissa - smáhundur býr ekki við þann lúxus að fá morgungöngur - börnin klæða sig og taka vítamínin og svo er labbað eða keyrt í skóla og leikskóla. Undanfarið hafa baðherbergisframkvæmdir reyndar kallað á huggulegar samverustundir allrar fjölskyldunnar við eldhúsvaskinn. Sjálf er ég sannfærð um að það skipti öllu máli að byrja daginn á því að drekka vatn, kveikja ljósin eða draga frá og koma kroppnum í gang, ræsa kerfið almennilega svo maður sé ekki að vakna til lífsins upp úr hádegi. Þegar ég var unglingur bjó ég í Úganda, sem liggur við miðbaug og þar rís sólin í kringum hálfsjö árið um kring. Það er fullkomið fyrir líkamsklukkuna, en hér á Íslandi búum við auðvitað ekki við þann munað og því skiptir máli að finna aðrar leiðir til að koma sér af stað. Og svo er mjög heilög rútína að eiga morgunsímtöl við vinkonur á leiðinni í vinnuna, taka púlsinn og spegla sig aðeins inn í daginn. Ég neyðist samt til að viðurkenna að eitt af því fyrsta sem ég geri er að kíkja á tölvupóstinn og jafnvel svara símtölum, enda vinn ég með fólki á öðrum tímabeltum. Börnin mín eru því miður með meira próf í að vera með mömmu sinni í morgunsamtölum. Draumurinn er samt að byrja daginn á því að arka í sund. Ég æfði sund til sautján ára aldurs og hef alveg frá morgunæfingadögum unglingsáranna dreymt um að verða þetta klassíska gamalmenni sem hangir á húninum í Vesturbæjarlauginni klukkan hálfsjö. Ég get hreinlega ekki ímyndað mér betri leið til að byrja daginn.“ Hvaða freistingu í óhollustu fellur þú oftast fyrir? „Ég er algjör sökker fyrir vondu molunum í Mackintosh og heiðarlegri rauðri kók. Eftir jólin fæ ég iðulega heimsendingar frá fjölskyldu og vinum með molunum góðu sem sitja eftir eftir hátíðirnar og svo er ég alveg í himnaríki ef ég þarf að fara í búðarölt í janúar þar sem afgreiðsluborðin eru iðulega skreytt með blessuðum molunum. Ég er reyndar mikil kökukona og ef ég ætti að fá mér eitthvað góðgæti að kvöldi til væri ég helst til í eintómt skúffukökukrem. Viðurkenni að maðurinn minn segir gjarnan sögur af því að ef hann heyri í kaffivélinni síðla kvölds sé ég að búa mér til kökukrem til að gæða mér á.“ Ólöf notar Notes og Outlook Calenar fyrir skipulagið: bæði í einkalífi og starfi. Því Ólöf situr í nokkrum stjórnum, þarf að fylgjast með öllu sem gerist í lífi barna sinna - eins og flestir foreldrar ungra barna þekkja að getur verið mjög margt - og síðan eru það verkefnin hjá Kaldvík. Vísir/Anton Brink Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Þessa dagana er ég að vinna í því að byggja upp aukin tengsl við nærsamfélagið á Austurlandi. Kaldvík er stór vinnuveitandi og starfsemin skapar jafnframt fjölmörg tækifæri fyrir önnur fyrirtæki á svæðinu. Við viljum vera sýnilegri, eiga opið og gott samtal við íbúa og hagaðila og sýna betur hvaða áhrif starfsemin hefur á samfélagið. Þetta er ung atvinnugrein sem hefur vissulega tekist á við áskoranir en ég hef mikla trú á framtíð hennar. Hér hefur byggst upp mikil sérþekking á tiltölulega skömmum tíma og ég hef mikinn metnað fyrir því að við höldum áfram að þróa hana. Það sem mér finnst mest spennandi er að taka þátt í því að skapa ný tækifæri fyrir fólk og samfélög á Austurlandi. Kvöld vikunnar hafa svo líka farið í að undirbúa hrekkjavökupartí helgarinnar fyrir krakkana mína.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég nota Notes til að halda utan um verkefni og to-do listann fyrir daginn, en Outlook Calendar sér um að halda utan um restina af lífinu. Þar sem ég sit í nokkrum stjórnum og þarf líka að sjálfsögðu að fylgjast með öllu sem er að gerast í lífi barnanna minna, þá er ein gullin regla hjá mér: Ef það fer ekki strax í dagatalið, þá eru allar líkur á að það verði einfaldlega ekki að veruleika. Þeir sem eiga börn bæði í leik- og grunnskóla vita að þar eru hundrað ólíkir hlutir sem allir þurfa sitt heilaga pláss. Svo er ég reyndar óendanlega heppin að eiga hafsjó af dásamlegu fólki í kringum mig sem gerir það að verkum að allt gengur upp, meðal annars tvær frænkur sem sækja börnin mín þrisvar í viku og eiga með þeim ómetanlegar stundir. Fyrir mér á skipulagið fyrst og fremst að snúast um að skapa rými fyrir fólk, samtöl, samvinnu og að hitta aðra. Um þessar mundir er svo frábær samstarfsmaður minn að smíða fyrir mig skipulagstól með Claude, sem verður vonandi nýi besti vinur minn í skipulagi.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég sofna alltaf einhvern tímann á milli hálfellefu og ellefu. Kvöldin fara mest í að undirbúa næsta dag, hafa til föt, og ég vinn líka mikið á kvöldin til að vinna mér inn í haginn fyrir komandi dag eða vinna upp þar sem ég hef ekki komist í. Ég er alveg hræðilegur sjónvarpsáhorfandi. Ég gæti líklega ekki nefnt eina einustu seríu sem ég hef klárað á síðustu árum. Ef ég reyni að horfa á eitthvað á kvöldin þá „sofna ég iðulega á mig“ – orðatiltæki sem er reyndar mjög umdeilt á heimilinu. Maðurinn minn heldur því fram að maður geti ekki sofnað á sig, heldur sé þetta meðvituð ákvörðun um að leyfa sér að sofna með því að koma sér vel fyrir í þægilegri stellingu. Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Háleitustu æskudraumar Björns Inga Pálssonar, sölu- og rekstrarstjóra Hentar rekstrarleigu Öskju, voru engir smá. Því hann stefndi á heimsfrægð í dansi, hvorki meira né minna. Nýjasta nýtt hjá Birni er að syngja í pop-kór. 24. október 2026 10:02 Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Í fimmtán ár hefur Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, stefnt að því að fara í ræktina á morgnana. En snúsar frekar. Aðra hverja viku upplifir hún sig eins og vel undirmannaða í Home Alone-kvikmynd. 17. október 2026 10:02 Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, telur líklegt að hann sé í skemmtilegasta starfi í heimi. Sem þó er ekki hættulaust eins og góð saga frá Japan lýsir nokkuð vel. 10. október 2026 10:00 Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó. 3. október 2026 10:01 Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar. 26. september 2026 10:02 Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Sjá meira
Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Háleitustu æskudraumar Björns Inga Pálssonar, sölu- og rekstrarstjóra Hentar rekstrarleigu Öskju, voru engir smá. Því hann stefndi á heimsfrægð í dansi, hvorki meira né minna. Nýjasta nýtt hjá Birni er að syngja í pop-kór. 24. október 2026 10:02
Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Í fimmtán ár hefur Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, stefnt að því að fara í ræktina á morgnana. En snúsar frekar. Aðra hverja viku upplifir hún sig eins og vel undirmannaða í Home Alone-kvikmynd. 17. október 2026 10:02
Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, telur líklegt að hann sé í skemmtilegasta starfi í heimi. Sem þó er ekki hættulaust eins og góð saga frá Japan lýsir nokkuð vel. 10. október 2026 10:00
Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó. 3. október 2026 10:01
Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar. 26. september 2026 10:02