Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Tómas Arnar Þorláksson skrifar 31. október 2026 16:03 Frá handtöku í tengslum við málið hér á Íslandi. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir fíkniefni hafa streymt til landsins í gegnum umfangsmikið kerfi fólks víða um Evrópu sem átti rætur sínar að rekja til Litáens. Loku var skotið fyrir umsvif höfuðpaursins í aðgerð sem nefnist Operation Matrix.
Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem vann áður sem tengiliður Íslands hjá Europol, segir álagið á landamærunum gífurlegt og leggur mikla áherslu á alþjóðlegt samstarf í sínu máli. Operation Matrix gekk vel Sem dæmi nefnir hann lögregluaðgerð sem bar heitið Operation Matrix. Málið er komið í ákærumeðferð eftir að hafa verið í eitt og hálft ár í rannsókn. 24 sakborningar voru handteknir í fjórum löndum á aðgerðardegi. Þar af voru ellefu handteknir á Íslandi. Fjallað var um málið á Vísi í október. „Þetta verkefni kemur upp úr því að það er töluverður fjöldi burðardýra sem er að flytja kókaín til landsins sem við náum að tengja saman. Með greiningu og upplýsingaskiptum erlendis teljum við okkur komast að því hverjir standa á bak við þetta. Þá er farið í samstarf í gegnum bæði Europol og Eurojust. Við meðal annars Spán og Litáen og fleiri ríki. Við ákváðum síðan saman hvernig við ætluðum að tengja þessi mál saman og fara á eftir höfuðpaurnum.“ Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, ræddi um Operation Matrix.vísir/sigurjón Höfuðpaurinn var handtekinn í Litáen og var komist að samkomulagi um að hann yrði sóttur til saka þar. Hann dúsir nú í fangelsi þar í landi og bíður þungs dóms. Burðardýrin hafi verið fjölmörg. Um hafi verið að ræða mörg mál yfir langan tíma sem tengdust í gegnum umræddan höfuðpaur. „Ég held að við höfum lauslega reiknað að það sem tengdist þessu væru um 100 kíló af kókaíni sem koma til landsins. Þetta fólk kom fljúgandi alls staðar að og aðferðinni var breytt reglulega eftir árangri lögreglu eða tollgæslu. Þetta voru yfirleitt nýir einstaklingar.“ Greiningarvinna lögreglu og öflugt eftirlit tollgæslu hafi skipt sköpum. Gífurlegt álag á landamærunum Stefán segir gífurlegt álag á landamærunum og að þörf sé fyrir meiri mannskap. „Það er mjög mikið af fíkniefnamálum sem veldur miklu álagi á lögregluna. Það eru alls kyns brot, það er vændisstarfsemi, það eru aðilar sem koma til landsins hugsanlega til að fremja alvarleg ofbeldisbrot. Ísland er orðið partur af brotaumhverfinu í Evrópu. Við erum ekki að horfa lengur á það að Ísland sé tíu árum á eftir öðrum löndum. Þetta gerist hér örskömmu eftir að eitthvað kemur upp í Evrópu. Hvort sem við erum að tala um ofbeldi eða tegundir efna þá kemur þetta mjög hratt hingað. Það er stöðugur og mikill þrýstingur á landamærin.“ Stefán vann áður um nokkur ár hjá Europol sem tengiliður Íslands. Hann ítrekar mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu fyrir lögregluna og segir reynslu sína hjá Europol koma að góðum notum. „Í nær öllum þessum málum sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi er þessi alþjóðlegi vinkill. Þá er gríðarlega mikilvægt að hafa leiðir og tengslanet til að geta fengið önnur lönd til þess að bregðast hratt við okkar beiðnum. Þar er starfsemi eins og tengslafulltrúi Europol gríðarlega mikilvæg þar sem þú getur hreinlega bara gengið til fulltrúa allra landa,“ segir hann og tekur fram að þetta flýti verulega fyrir upplýsingaskiptum og beiðnum sem geti skipt sköpum. Börnum afhent byssur og handsprengjur Stefán segir fleiri dæmi um að erlendir glæpamenn séu fluttir til landsins í því skyni að fremja alvarleg ofbeldisbrot. Greint var frá því á dögunum að mönnum hafi verið vísað frá landi við landamærin á Keflavíkurflugvelli. Grunur lék á að þeim hafi verið boðin greiðsla gegn því að sinna ofbeldisbroti. Mynd úr safni.vísir/vilhelm „Í þessu máli teljum við að það hefði mögulega leitt til mjög alvarlegs brots. Þarna eru aðilar sem við komumst á snoðir um að væru að koma til landsins til að fremja ofbeldisbrot í þágu brotahóps á íslandi,“ segir hann og heldur áfram: „Það sem sýnir hvers lags hópur þetta var þá var innan tveimur vikum eftir að þeim var brottvísað hér var einn þeirra handtekinn fyrir tilraun til manndráps þar sem þeir nýttu sextán ára stúlku til þess að lokka fórnarlambið á ákveðinn stað þar sem var síðan reynt að myrða hann með skotvopni.“ Ofbeldi til kaups sé að færast í aukana í Evrópu. Ákveðnir brotahópar geri sig út fyrir það að sinna slíkri þjónustu. Jafnvel sé hægt að tala um launmorðingja. „Þetta höfum við séð færast niður í mjög ung börn, til dæmis á Norðurlöndunum. Þá eru krakkar fengnir til að koma á ákveðna staði í gegnum samfélagsmiðla þar sem þeim er afhent skotvopn eða handsprengjur. Þau eru svo send á ákveðna staði til að fremja þessa glæpi.“ Lögreglan hafi töluverðar áhyggjur af þessari þróun og er í samstarfi við Europol í gegnum verkefni sem kallast OTF Grimm til að stemma stigu við þessu.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Víða kaldi og skúrir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Sjá meira