Sport

Fylkir kennir fjöl­miðlum um og Magnús heitur í Kópa­voginum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heimir er farinn frá Fylki og stefnir upp á Akranes.
Heimir er farinn frá Fylki og stefnir upp á Akranes. vísir/hulda margrét

Fylkir staðfesti í gær að Heimir Guðjónsson væri á förum frá félaginu og gerði það með afar einkennilegri yfirlýsingu.

„Í fjölmiðlum og hlaðvörpum hefur nafn Heimis ítrekað verið tengt við önnur félög á undanförnum mánuðum. Eftir rót síðustu vikna er það mat stjórnar Knattspyrnudeildar Fylkis að hagsmunum Fylkis sé best þjónað með slitum á samstarfinu við Heimi Guðjónsson,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Samkvæmt þessari yfirlýsingu var samningurinn óuppsegjanlegur af beggja hálfu. Heimir er á leið til ÍA og er afar ólíklegt að Fylkir hafi ekki fengið pening fyrir hann. Annað má þó skilja á yfirlýsingunni og það er afar sérstakt að kenna fjölmiðlum um að Heimir sé ekki lengur þjálfari félagsins.

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, sagði bara gamla góða no komment er Vísir spurði hann út í Breiðablik í gær. Stuðullinn á að hann tæki við Blikum hrundi í kjölfarið. Leit Blika heldur áfram.

Liverpool og Man. City skriðu áfram í deildabikarnum í gær eftir vítaspyrnukeppnir. Meira um það í þætti dagsins.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×