Opinberi geirinn „skilar nánast auðu“ í aðlögun hagkerfisins
Mikil kólnun á íslenskum vinnumarkaði og vaxandi svartsýni atvinnurekenda bendir til þess að hagvaxtarhorfur næstu missera kunni að vera ofmetnar, samkvæmt nýrri greiningu. Á sama tíma og störfum fækkar á almennum vinnumarkaði heldur opinberum starfsmönnum áfram að fjölga, sem veldur því að aðlögun hagkerfisins að minni eftirspurn verður mun harðari í einkageiranum.
Tengdar fréttir
Ekkert lát á fjölgun starfa hjá hinu opinbera en fækkar ört í einkageiranum
Fjölgun starfandi fólks á vinnumarkaði hefur verið drifin áfram af opinbera geiranum allt þetta ár á meðan starfsfólki fækkar ört í öðrum atvinnugreinum, einkum í byggingarstarfsemi og ferðaþjónustu.
Óttast „harða lendingu“ með efnahagssamdrætti og verulegu atvinnuleysi
Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“.
Óbreyttur tónn bankans og vonir um frið á vinnumarkaði lækkar markaðsvexti
Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda vöxtum óbreyttum, stutt af öllum nefndarmönnum, var viðbúin og engar breytingar voru gerðar á framsýnni leiðsögn hennar. Skömmu áður hafði náðst samkomulag hjá stórum hluta launþegahreyfingarinnar við SA um að slíta ekki kjarasamningum og hafa skuldabréfafjárfestar tekið vel í þær fréttir og markaðsvextir óverðtryggðra ríkisbréfa lækkað.
Varaseðlabankastjóri varar við hættu á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum
Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi halda vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun, varar við því að háir vextir og miklar birgðir af óseldum íbúðum muni auka hættuna á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum. Hann bendir á að „raunveruleg fjármögnunarskilyrði“ heimila hafi versnað umfram stýrivaxtahækkanir samhliða mikilli hækkun verðtryggðra markaðavexta frá því í vor.