Menning

Hilmir Snær svarar gagn­rýn­endum

Boði Logason skrifar
Vala Kristín og Hilmir Snær leika hjónin Katarinu og Frank í Djöflum en þau eru jafnframt saman í raunheimum.
Vala Kristín og Hilmir Snær leika hjónin Katarinu og Frank í Djöflum en þau eru jafnframt saman í raunheimum. Borgarleikhúsið

Hilmir Snær svaraði harðri gagnrýni um leiksýninguna Djöfla í Vikunni hjá Gísla Marteini og sagði mýflugur ekki stoppa gæðing á Spretti. Menningarvaktin ræddi sýninguna Djöfla og viðtökur hennar, tilvonandi uppsetningu á Stellu í orlofi í Borgarleikhúsinu, kvikmyndina Digger og nýja plötu Teits Magnússonar.

Menningarvaktin er komin á fulla ferð á Vísi á ný og í nýjasta þættinum fékk Símon Birgisson leikhúsgagnrýnandi til sín Magnús Jochum Pálsson, menningarblaðamann og gagnrýnanda, og Ómar Úlf, dagskrárstjóra Bylgjunnar.

Fyrst barst talið að Stellu í Orlofi en nýverið var tilkynnt að þessi sögufræga bíómynd yrði gerð að leikriti á stóra sviði Borgarleikhússins á næsta ári. 

„Þetta er svosem alveg skemmtilegt. Það hefur færst í aukana ákveðinn nostalgíugröftur leikhúsanna og menningarinnar. Við erum stöðugt að pæla í gömlum menningarminjum heilt yfir. Líka í kvikmyndum þar sem er verið að endurgera og endurræsa gamlar myndi,“ sagði Magnús og nefndi sýningarnar Ladda og Níu líf í Borgarleikhússins.

Brynhildur Guðjónsdóttir mun leikstýra verkinu, sýningin byggja á kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur og sonur Guðnýjar, Halldór Laxness (Dóri DNA), mun skrifa handritið. Halldór sagðivið Rúv að stóra verkefnið væri að endurvinna handritið í takt við nýja tíma og stinga sögunni í samband við tíðarandann og samfélagið.

„Mér fannst áhugavert það sem Dóri DNA sagði um að stinga sögunni í samband,“ sagði Símon. „Í síðasta skipti sem ég heyrði um að einhverju yrði stungið í samband var í tengslum við Hamlet í Borgarleikhúsinu. Það tókst ekkert sérstaklega vel.“ 

„Spurning hvort það verði Justin Bieber-reffar í Stellu í orlofi og snjallsímar,“ svaraði Magnús.

Oft lent í því að fá „skítagagnrýni“

Talið barst að sýningunni Djöflar í Borgarleikhúsinu sem fékk tvær stjörnur í nokkuð hörðum dómi Símonar á Vísi. Símon vakti máls á því að aðalleikarinn, Hilmir Snær Guðnason, hefði verið spurður út í dóminn í þættinum Vikan með Gísla Marteini.

„Þú ert í nýju verki, frægt skandinavískt verk eftir Lars Norén. Þið leggið líf og sál í þetta og svo kemur einhver skítadómur, hefur það einhver áhrif á þig?“ spurði Gísli.

„Þetta hafði meiri áhrif þegar ég var yngri, ég lýg því ekki. En ég hef náttúrlega lent í þessu svo oft - að fá skítagagnrýniþ Maður er kominn með skráp og áttar sig á þetta er bara eins manns dómur og skoðun. Hann hefur fullan rétt á sinni skoðun og áhorfendur eru að sýna okkur eitthvað allt annað. En ég meina, nokkrar mýflugur stöðva ekki gæðing á spretti,“ sagði Hilmir um gagnrýni Símonar.

,,Einmitt, ég get í ímyndað mér að hann hafi heyrt nóg í gegnum tíðina. Snertir eflaust voða lítið við honum,“ sagði Magnús um ummæli Hilmis.

Símon sagði að ekki væri eingöngu við Hilmi að sakast. 

„Ef góðir leikarar standa sig ekki vel er það sjaldnast bara leikurunum að kenna. Það er líka leikstjórnin. Hilmir er einn okkar allra besti leikari. Hann er í toppklassa og mér finnst hann hafa verið mjög góður upp á síðkastið. Hann var góður í Ketti á heitu blikkþaki, góður í Oresteiu og í Hamlet,“ sagði Símon.

Hann bætti við að í þeim þremur sýningum væri Hilmir að leika næstu kynslóð fyrir ofan sig, patríarka, konung og föður. „Hann er þar kominn í þetta hlutverk sem Arnar Jónsson var í lengi,“ bætti Magnús við.

„Það sem truflaði mig í Djöflum var að það er verið að láta hann leika niður í aldri, þetta á að vera verk um fólk sem er í kringum þrítugt, ímyndar maður sér,“ sagði Símon og tók sem dæmi hvort Hilmir myndi leika pabbinn eða einn af sonum ef Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson væri sett upp í dag.

Loks mætti Ómar Úlfur á plötuvaktina og rýndi í plötuna Ask eftir Teit Magnússonog Ride Lonesome eftir Beck. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á vefsíðu Tal og á öllum helstu streymisveitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.