Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. október 2026 12:18 Ríkisstjórn Mette Fredrikssen hefur hætt við að sækja um undanþágu til ESB varðandi minkarækt. Samsett Brátt mun minkarækt í Danmörku heyra sögunni til en dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að falla frá áformum sínum um að sækja um undanþágu frá banni Evrópusambandsins við rækt minka. Bannið tekur gildi á næsta ári.
Fyrri ríkisstjórn Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur greiddi atkvæði gegn reglugerð ESB árið 2025 og ákvað í kjölfarið að sækja um undanþágu svo að danskir minkabændur gætu haldið ræktuninni áfram. Núverandi samsteypustjórn, sem kjörin var í júní, ákvað hins vegar í gær að halda umsókninni ekki til streitu. Danska ríkisútvarpið greinir frá. „Þessu lýkur endanlega núna og það finnst okkur í SF gott, því það hefur aldrei verið góð dýravelferð að loka rándýr inni í pínulitlu búri,“ er haft eftir Carl Valentin, talsmanni SF í dýravelferðarmálum, í frétt DR. Sjö starfandi minkabú Fyrirhugað bann Evrópusambandsins á loðdýrarækt tekur gildi þann 7. ágúst 2027 og við tekur tveggja ára aðlögunartímabil. Sjö minkabú eru enn starfandi í Danmörku með um 15 þúsund minka. „Atvinnugrein á ekki að halda áfram bara vegna þess að hún hefur verið til lengi. Hún verður líka að vera skynsamleg fyrir samfélagið, efnahaginn og dýrin,“ er haft eftir Christian Rabjerg Madsen, umhverfisráðherra Danmerkur. Danir voru um langt skeið einir stærstu framleiðendur minkafelds á heimsvísu. Árið 2020 voru allar 14 milljónir minka Danmerkur aflífaðar af skipum stjórnvalda vegna stökkbreytts afbrigðis kórónuveiru sem fannst í einhverjum dýrum. Þá komst í ljós að ríkisstjórnin hafði raunar ekki lagalega heimild til að fyrirskipa slíkt. Mette Frederiksen baðst afsökunar og sagði að danska dýra- og matvælaeftirlitið hefði gert mistök með því að krefjast þess að allir minkar landsins verði drepnir. Þá sagði Mogens Jensen, ráðherra matvæla-, sjávarútvegs- og landbúnaðarmála Danmerkur, af sér embætti vegna málsins.
Danmörk Loðdýrarækt Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Krefjast þess að minkarnir verði grafnir upp Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Danmörku hafa kallað eftir því að milljónir minka, sem aflífaðir voru eftir að stökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar fannst í þeim, verði grafnir upp og færðir annað. 27. nóvember 2020 18:03 Biður minkabændur innilegrar afsökunar eftir svarta skýrslu nefndar Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur beðið minkabændur í landinu afsökunar á þeim skapraunum og sorg sem ákvörðun danskra stjórnvalda um að lóga öllum minkum landsins í kórónuveirufaraldrinum hafi valdið þeim. Hún segir ákvörðunina um að fella stofninn þó hafa verið nauðsynlega. 1. júlí 2022 09:05 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira
Krefjast þess að minkarnir verði grafnir upp Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Danmörku hafa kallað eftir því að milljónir minka, sem aflífaðir voru eftir að stökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar fannst í þeim, verði grafnir upp og færðir annað. 27. nóvember 2020 18:03
Biður minkabændur innilegrar afsökunar eftir svarta skýrslu nefndar Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur beðið minkabændur í landinu afsökunar á þeim skapraunum og sorg sem ákvörðun danskra stjórnvalda um að lóga öllum minkum landsins í kórónuveirufaraldrinum hafi valdið þeim. Hún segir ákvörðunina um að fella stofninn þó hafa verið nauðsynlega. 1. júlí 2022 09:05