Erlent

Einn látinn eftir mögu­lega hryðjuverkaárás

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sebastian Lecornu, forsætisráðherra Frakka, greindi frá atvikinu.
Sebastian Lecornu, forsætisráðherra Frakka, greindi frá atvikinu. epa

Að minnsta kosti einn er látinn og fjórir aðrir slasaðir eftir árás í úthverfi Parísar í morgun. Málið gæti verið rannsakað sem hryðjuverk.

Þetta segir Sebastien Lecournu, forsætisráðherra Frakklands, samkvæmt umfjöllun BBC.

Atvikið átti sér stað í Trappes, sem er vestan við París. Haft er eftir ónefndum lögreglumanni að maður hafi skotið á aðra út úr bíl af gerðinni Renault Clio í morgun klukkan hálf níu að staðartíma. Hann var síðar handtekinn nálægt vettvanginum tveimur tímum síðar.

Hinn látni var 26 ára karlmaður frá Poissy samkvæmt Le Figaro. Tvö önnur fórnarlömb, tólf og 21 árs voru flutt með miklum forgangi á sjúkrahús. 

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur brugðist við árásinni með færslu á X. Þar segir hann að nokkur fjöldi sé særður en nefnir ekki nákvæmlega hversu margir. Hann hugsi til fórnarlambanna og fjölskyldna þeirra.

Hryðjuverkadeild saksóknara fylgist með málinu og gæti það því verið rannsakað sem hryðjuverk.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×