Íslenski boltinn

„Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elísa Viðarsdóttir vann fjölda stórra titla á ferlinum og flesta þeirra með Val. 
Elísa Viðarsdóttir vann fjölda stórra titla á ferlinum og flesta þeirra með Val.  Vísir/Hulda Margrét

Knattspyrnukonan Elísa Viðarsdóttir tilkynnti í kvöld að hún ætli að leggja fótboltaskóna á hilluna eftir tímabilið. Lokaleikurinn verður annað kvöld þegar Breiðablik tekur við Íslandskildinum eftir leik við FH.

Elísa skrifaði pistil á samfélagsmiðla sína þar sem hún segir að nú sé komið að einhverju öðru en fótboltanum.

Elísa varð Íslandsmeistari á fyrsta og eina tímabili sínu með Breiðabliki en hafði áður unnið Íslandsmeistaratitilinn fjórum sinnum með Val.

Elísa lék alls 54 landsleiki fyrir Ísland og leikurinn á morgun verður hennar 213. í efstu deild á Íslandi.

„Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn,“ byrjar Elísa pistil sinn.

„Það er ótrúlega skrítið að skrifa þessi orð. Fótboltinn hefur verið svo stór hluti af lífi mínu svo lengi sem ég man eftir mér og það er erfitt að ímynda sér lífið án hans,“ skrifaði Elísa.

„Eftir mikla umhugsun hef ég þó ákveðið að nú sé komið að því að leggja skóna á hilluna. Ákvörðunin hefur ekki verið auðveld enda er ég að kveðja eitthvað sem hefur mótað mig sem manneskju og gefið mér svo ótrúlega mikið,“ skrifaði Elísa.

Það má lesa allan pistil hennar hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×